Kynning á rannsóknaráætlun á málstofu í KHÍ.mars 2008

Slides:



Advertisements
Similar presentations
Menntun í alþjóðlegu samhengi
Advertisements

Vefur: Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum.
Mankiw; 3. kafli Ávinningur verslunar
Aðferðafræði II: Inngangur að tölfræði Haust 2013
Ásgeir Jónsson Viðskipta- og hagfræðideild
Jónína Vala Kristinsdóttir, KHÍ
Leiðsagnarnám (formative assessment)
Leið til bjartari framtíðar
Námsmatsstofnun 21. ágúst 2012 Almar Miðvík Halldórsson
Staðlar um samfélagslega ábyrgð og fleira áhugavert
Vinnuhópar innan Lyfjastofnunar Evrópu
Geðheilsuþjónusta fyrir foreldra á meðgöngu og ungbarnafjölskyldur
Hæfnikröfur 21. aldar, áhrif á skólastarf og kennsluhætti
Frumlyfjaþróun á Íslandi
Við vitum öll hvað það er þangað til við þurfum að skilgreina það
GETA ISO STAÐLAR AUKIÐ GÆÐI Í SKÓLASTARFI
Breyttar áherslur – virkt samspil kerfa í allra þágu
Móðurmál samtök um tvítyngi
Endurheimt vistkerfa á Norðurlöndum - Reno
Gamalt vín á nýjum belgjum eða gamlir belgir með nýtt vín...
Skóli og skólastefna, menntun og menntastefna
Skólaþing sveitarfélaga: „Á ég að gera það?“ 6. nóvember, 2017
Að vanda til námsmats Námskeið fyrir framhaldsskólakennara 2008–2009
Kynningarfundur á Höfn 21. september 2009
Málþing um skóla framtíðarinnar Lykilhæfni - tækni - nýsköpun
Fræ í frjósömum jarðvegi Vangaveltur um einstaklingsmiðað nám
Frá hugmynd til framkvæmdar
© Setrið í Sunnulækjarskóla 2009 Öryggi SÁTT Tónlistarhringur.
Forysta, samvinna og ábyrgð: Hættum að reyna að breyta nemendum
Íslensk netverslun Alþjóðleg verslun í litlu landi
Markaðsfærsla þjónustu
Innleiðing Kanban við verkefnastjórnun í hugbúnaðarþjónustu
Sustainable Aquaculture of Arctic charr NORTHCHARR
Að efla útrásina enn frekar - tækifæri sjávarútvegsins
Guðrún Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur MS Verkefnisstjóri Geðræktar
Economuseum Northern Europe
Einstaklingsmiðað nám
Hvað er einstaklings- miðað nám?
Sigríður H. Gunnarsdóttir 27. febrúar 2008
Nordisk ministerråd Island 2012
Fyrirlestur um fyrirlestra
Sustainable Heritage Areas: Partnerships for Ecotourism
Er íslenskt skólakerfi "dýrt"?
Starfsgleði! dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir Dósent, Viðskiptadeild HÍ
Einstaklingsmiðað nám í orði og á borði!
Reykingar konur og karlar
Innra mat skóla SKN0210 – Málstofur Elín Birna Vigfúsdóttir
„… að hrista upp í kennslunni …“
Hvernig kennari vil ég verða?
Almar Miðvík Halldórsson Verkefnisstjóri PISA
Innleiðing á ISN2016 Þórarinn Sigurðsson
Innleiðing og þróun leiðsagnarmats í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ
SMALLEST Solutions for Microgeneration to ALLow
15:30 Kynning. Flettibækur með Bookr 16:00 Veggspjöld með Glogster
Eigindlegar rannsóknaraðferðir II
Alþjóðavæðing og hagvöxtur
Fjölskyldubrúin Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi Geðsviði LSH.
Barnvæn sveitarfélög Akureyri
Leikir í frístunda- og skólastarfi
Áhættuhegðun barna og unglinga Fyrirlestur haldinn 3
Árangursrík stærðfræðikennsla byrjenda
Orðasöfn, gagnabankar og vefurinn
Skólapúlsinn ársuppgjör 08-09
Sampling and Sampling Distributions Úrtak og úrtaksdreifingar
Er íslenskt skólakerfi "dýrt"?
Iðunn Kjartansdóttir Náms- og starfsráðgjafi
Þolmörk sem stjórntæki í uppbyggingu sjálfbærrar ferðamennsku
Þjóðarstolt eða samrunaþrá
„Do–Live–Well“ = „Gerðu líf þitt gott“
Jónína Vala Kristinsdóttir
Presentation transcript:

Vinnubrögð kennara með fjölbreytta nemendahópa - Skóli án aðgreiningar- Kynning á rannsóknaráætlun á málstofu í KHÍ.mars 2008 Bryndís Björnsdóttir Leiðbeinandi: Gretar L. Marinósson

Persónuleg tildrög og val á verkefni Ég er þroskaþjálfi með B.A próf í sérkennslufræðum - stýrði sérdeild fyrir einhverf börn - fagstjóri í sérkennslu - nýir tímar kalla á ný markmið sem kalla á ný vinnubrögð - getum við haldið áfram að vinna eins og alltaf hefur verið gert en búist við annarri útkomu? Bryndís Björnsdóttir

Rannsóknarspurning Hvað hefur megináhrif á vinnubrögð kennara með fjölbreytta nemendahópa? Mögulegir áhrifaþættir: Hugmyndir / hugsmíðar kennara um nemendur og viðbrögð við þeim. Reynsla kennara og menntun Skólinn sem félagskerfi og stofnun Hugsmíðar og gildismat samstarfsmanna Hugsmíðar og gildismat nemenda Opinber stefna, m.a. námskrár Viðhorf og gildismat í samfélaginu Bryndís Björnsdóttir

Fræðileg tildrög efnisvals Í skýrslu sinni Tálmar og tækifæri draga Gretar L. Marinósson og félagar (2007) fram þær niðurstöður að skólinn sé „normal” staður og öll meiriháttar frávik í hegðun eða hugsun séu álitin vandamál sem þarf að laga. Þessar niðurstöður samræmast einnig skoðunum Rannveigar Traustadóttur (2003) sem telur að hér á landi sé ríkjandi hefðbundin sýn á fötlun, hið læknisfræðilega líkan sé enn ráðandi og hinn félagslegi skilningur á fötlun hafi ekki náð hér fótfestu nema að litlu leyti. Í ljósi þessarar hugmyndafræði fannst mér athyglisvert að velta fyrir mér hæfni kennara til að kenna börnum með ólíkar námsþarfir í einum bekk, á hvern hátt þeir skipuleggi kennslu fyrir börn á ólíku getustigi og hvernig samskiptum þeirra við nemendur er háttað. Einnig er forvitnilegt að íhuga hvaða aðstæður það eru í skóla sem stuðla að námi fremur en aðrar. Samhæfing lykilatriði þar sem jafn margir ólíkir aðilar þurfa að vinna saman að svo fjölþættu verkefni. Verkaskiptingin þarf að vera ksýr og hlutverk hvers og eins vel skilgreint. (bls.17) Undirbúningur kennara þarf að miða að því að auka þekkingu þeirra á sérþörfum einstakra nemenda. Hann þarf einnig að miða að auka færni kennara í að beita kennsluaðferðum sem stuðla að félagslegum jöfnuði og fullri þátttöku allra nemenda í almennu bekkjarstarfi. Kröfur til kennara eru miklar auk venjulegra þekkingar á námsgreinum og færni í bekkjarstjórnun þurfa þeir að læra að vinna með ýmiskonar fötlun og öðlast færni og í að stuðla að jákvæðum samskiptum ásamt þátttöku og aðild allar að bekkjarstarfinu. (bls.25) Kennsluaðferðir og námsumhvefi verða að endurspegla áherslu skólans á félagsleg samskipti og þátttöku allra nemenda í bekkjartarfinu. Styðja þarf kennara til að auka þekikingu sýna og fæni í að efla samskipti og félagstengsl nemenda. Þetta er ekki sýst nauðsynlegt þegar sumir nemendanna þurfa að nota sérhæfðar aðferðir til að gera sig skiljanlega. Bryndís Björnsdóttir

Fræðileg tildrög frh. Einnig hafa fræðimenn hérlendis komist að þeirri niðurstöðu að sérkennsla stjórnist frekar af tæknilegum aðferðum, sem miða að því að lækna börn og laga, fremur en félagslegum eða uppeldislegum markmiðum (Ingólfur Á. Jóhannesson ofl. 2002). Bryndís Björnsdóttir

Fræðileg tildrög frh. ….að stefna stjórnvalda eigi að vera nám án aðgreiningar en ekki skóli án aðgreiningar. Framtíðarsýnin sé að skólinn bjóði upp á fjölbreytni sem miði að þjálfun hvers nemanda, valfrelsi og sveigjanleika með áherslu á einstaklingsmiðaða námskrá að einhverju leyti fyrir alla (Menntamálaráðuneytið, 2006). Bryndís Björnsdóttir

Fræðileg umfjöllun kennarinn er kjarninn í öllu skólastarfi og gegnir um leið lykilhlutverki í öllu breytingarstarfi (Fullan,2001,Hargreaves,1994). að bæta við þekkingu sem inniheldur leiðir og bjargir sem skólastarf getur nýtt sér í átt að skóla án aðgreinar. Bryndís Björnsdóttir

Fræðileg umfjöllun frh. Í skóla án aðgreiningar er kennarinn lykilpersóna, hann trúir á framfarir nemenda sinna, væntir þess að þeir nýti sér hæfileika sína til fulls og styður þá við að finna réttu leiðina með fjölbreyttum kennsluaðferðum (Rúnar Sigþórsson o.fl. 2005) Bryndís Björnsdóttir

Fræðileg umfjöllun frh. kennarar eru á milli tveggja kennslulíkana..... líkan 20.aldarinnar sem ýtir undir aðgreiningu nemenda og nemendum er skipt í flokka. líkan 21. aldarinnar byggir á nýrri sýn um að allir geti lært sé þeim búin rétt skilyrði.(Shepard 2000) Shepard (2000) setur fram svipaðar kenningar þegar hún segir kennara vera á milli tveggja kennslulíkana sem séu ríkjandi í þeirra starfsumhverfi. Þessi líkön telur hún að hafi áhrif á með hvað hætti kennarar kenna og skipuleggja kennslu sína og námsmat. Samkvæmt kenningum Shepard (2000) verður að líta á námskrá, kennsluhætti og námsmat sem eina samofna heild og að grundvallarhugmyndir kennara verði að vera þær sömu. Kennslulíkön sín kennir hún annars vegar við arfleifð 20.aldarinnar og hinsvegar það sem hún telur í mótun nú í byrjun þeirrar 21. Áhrif 20. aldarinnar segir Shepard (2000) birtast í námskenningum atferlisstefnunnar og hugmyndum um tengsl áreitis og svörunar sem undirstöðu náms sem meðal annars birtist í ítarlegum atferlismarkmiðum í námskrá. Í slíkri námskrá er líka byggt á aðgreiningu nemenda, þar sem nemendum er skipt í flokka samkvæmt þröngum skilgreiningum á námsgetu. Einnig byggjast þessi áhrif frá 20. öldinni á oftrú á gildi vísindalegra mælinga bæði á greind og námsárangri. Kennslumódel 21.aldarinnar byggist á námskenningum félagslegrar hugsmíðahyggju og einnig á nýrri sýn á námskrá sem gerir ráð fyrir námi án aðgreiningar og hefur sem grunnhugmynd að allir nemendur geti lært svo framanlega sem þeim séu búin rétt skilyrði og viðeigandi viðfangsefni (Shepard, 2000). Bryndís Björnsdóttir

Fræðileg umfjöllun frh. ....oft þarf einungis að nýta þá þekkingu sem til staðar er, virkja hana og styðja kennara í að greina kennslu sína.... (Ainscow 1999) Ainscow (1999) segir að oft þarf einungis að nýta þá þekkingu sem til staðar er, virkja hana og styðja kennara í að greina kennslu sína um leið og hann telur þekkingu kennara meiri en kennsluaðferðir þeirra sýna. Bryndís Björnsdóttir

Rannsóknarsnið og aðferð Eigindleg rannsóknaraðferð Viðtöl við kennara Vettvangsathuganir Gagnarýning - skólanámskrár - einstaklingsnámskrár - kennsluáætlanir Bryndís Björnsdóttir

Þátttakendur Tilgangsstýrt val - þátttakendur sem rannsakandi telur að búi yfir upplýsingum sem tengjast rannsókninni. - áætlað er að tilvikin verði þrjú Bryndís Björnsdóttir

Verkáætlun gagnaöflun febrúar - maí 2008. úrvinnsla gagna mars - júlí 2008. ritun og túlkun júní - ágúst 2008. útskrift október 2008. Bryndís Björnsdóttir

Heimildaskrá Bryndís Björnsdóttir Ainscow, M. (1991). Effective schools for all. London: Fulton. Fuller, M. (2001). The new meaning of education change.Columbia Univercity. Gretar L. Marinósson (2007). Tálmar og tækifæri. Menntun nemenda með þroskahömlun á Íslandi. Reykjavík. Háskólaútgáfna. Hargreaves, A. (1994). Changing Teachers, changing times: teachers´work in the postmodern age. London, Wellington house. Menntamálaráðuneytið (2006). Áfangaskýrsla. Menntamálaráðuneytið. Shepard.L.A. (2000). The role of classroom assessment in teaching and learning. (CSE technical report 517). Los Angeles: National Center for Research on Evaluation, Standards,and Student Testing (CRESST) Graduate School of Education University of California. Rannveig Traustadóttir (2003). Fötlunarfræði. Sjónarhorn, áherslur, og aðferðarfræði á nýju fræðasviði. Í Rannveig Traustadóttir (ritstj.) Fötlunarfræði. Nýjar íslenskar rannsóknir (bls.17-54). Reykjavík: Háskólaútgáfan Rúnar Sigþórsson,Börkur Hansen, Jón Baldvin Hannesson, Ólafur H. Jóhannesson, Rósa Eggertsdóttir, Mel West.(2005). Aukin gæði náms; skólaþróun í þágu nemenda. Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands. Bryndís Björnsdóttir