Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl 20051 Brjóstvit eða fræði Rannsókn á kennsluaðferðum kennara til eflingar lesskilningi á miðstigi í grunnskólum.

Slides:



Advertisements
Similar presentations
Hver er staðan? Hvað næst?. Tímarammi Fyrsti áfangi verkefnisins hófst vorið 2007 með kynningu á verkefninu og umræðum. Í öðrum áfanga ( ) var.
Advertisements

Hugræn atferlismeðferð með börnum og unglingum
Áhrif námsefnis á kennsluhætti Námsgagnastofnun IS /
Hvað er læsi?. Það að kunna að lesa læsi sem táknumsýslan  læsi sem merkingarsköpun.
Námsmat – Í þágu hvers? Kynning á niðurstöðum þriggja ára þróunarverkefnis (2006–2009) um einstaklingsmiðað námsmat í Ingunnarskóla og Norðlingaskóla Kynningar.
Áhugasamir nemendur – Árangursríkt skólastarf Þróunarverkefni í Heiðarskóla 2010.
Starfshættir í grunnskólum Vettvangsathuganir (í kennslustundum) og viðtöl málstofa doktorsskóla MVS föstudaginn 30. apríl.
Áhugasamir nemendur – Árangursríkt skólastarf Þróunarverkefni í Heiðarskóla 2010.
Samskipti og bekkjarbragur Dagskrá fyrir kennara Grunnskóla Dalvíkurbyggðar Laugardagur 13. október, kl –14.00 Leiðbeinendur: Ingvar Sigurgeirsson.
Að vanda til námsmats. Helgi Hermannsson Jón Ingi Sigurbjörnsson Tengsl námsmatsaðferða við einkunnir og brottfall – Samanburðarrannsókn (FSu / ME) 4,5=5,0.
Stefnur í kennslufræðum Háskóli Íslands - Kennaradeild KEN201F-H10 Inngangur að kennslufræði (Vorið 2011)
Málþing um kennaramenntun á tímamótum Hvert verður hlutverk kennarans og hvernig getur hann best sinnt því? Jón Torfi Jónasson, prófessor í uppeldis- og.
Helstu niðurstöður: Notkun upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu við KHÍ er nauðsynleg. Tölvan er einkum notuð sem námstæki: Sem stuðningur Til.
Allskonar kynjasamþætting Halldóra Gunnarsdóttir Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar.
Vorfundur Skólapúlsins maí 2011 Salur Námsmatsstofnunar Almar M. Halldórsson Kristján K. Stefánsson.
Hvað eru aðrir kennarar að gera í námsmati? Dæmi um fjölbreytt námsmat.
Rannsóknanámssjóður [Umsóknir til samkeppnissjóða] Málstofa doktorsnema Dr. Gunnar Þór Jóhannesson Mannfræðistofnun.
Áfengi og fíkniefni Kolbeinn. Kynning Í þessu verkefni munum við aðallega fjalla um áfengi, fíkniefni og hættu þess að neyta of mikils af því. Aðallega.
1 Stærðfræðinám ungra barna Námskeið fyrir kennara í Hafnarfirði 19. nóvember 2007 Jónína Vala Kristinsdóttir
Að kenna upplestur Baldur Sigurðsson, KHÍ nóvember 2008 Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn.
Fyrirlestur um fyrirlestra fyrir starfsfólk Greiningar og ráðgjafarstöðvar Fyrirlestur sem kennsluaðferð! Hvað má læra af rannsóknum á góðum kennurum?
Líkamstjáning mannsins Þróun mannsins Kolbrún Franklín.
Jacques-Louis David, Dauði Sókratesar, 1787
Ágúst 2006 © Þóra Björk Jónsdóttir 2 Ég fékk C fyrir víravirkið mitt !? Má ég koma með spurningu? Hvernig getur maður fengið C fyrir víravirki? Er það.
1 Stærðfræðikennsla á 21. öld Álftamýrarskóli 27. nóvember Jónína Vala Kristinsdóttir.
Sólveig Jakobsdóttir, Bára Mjöll Jónsdóttir og Torfi Hjartarson. (2004). Gender, ICT-related student skills, and the role of a school library in an Icelandic.
Kæru nemendur Snaraði nokkrum meginhugmyndum greinarinnar yfir á íslensku til að auðvelda ykkur að hugsa um efni hennar. Betri tillögur um þýðingu vel.
Sterkustu straumarnir: Leiðsagnarmat – einstaklingsmiðað námsmat Grunnskólarnir í Fjallabyggð Þróunarverkefni / námskeið: Fjölbreytt námsmat.
Það skiptir svo miklu máli hvernig þetta er gert fyrir námið. Námsmat út frá sjónarhóli nemenda. 20 eininga eigindleg rannsókn. Leiðbeinandi: Ingvar Sigurgeirsson.
Tungumálið Spilling tungumáls (Caleb Thompson). Spilling tungumáls Caleb Thompson „Philosophy and Corruption of Language“. Sérstaklega bls
1 Stærðfræðikennsla sem tekur mið af þörfum ólíkra nemenda Rannsóknarnálgun við stærðfræðinám.
Sjöfn Guðmundsdóttir Starfendarannsókn Að bæta umræður í lífsleikni... Starfendarannsókn í Menntaskólanum við Sund.
Berglind Eyjólfsdóttir, rannsóknarlögreglumaður. Hvernig eru fórnalömb mansals? Staðalímynd Hvernig sjáum við fyrir okkur fórnalamb mansals? Hver er raunin.
THE GOAL Kaflar The Goal. 16. Kafli Alex kemur heim úr skátaferðinni og kemst að því að konan hans er farin frá honum. Ekki verður fjallað meira.
Leiðsagnarmat – Reynslan í Fjölbrautaskóla Snæfellinga Námsstefna um námsmat í framhaldsskólum Skriðu 27. maí 2009.
Er lesskilningur „bara heilans vandamál?” Starfendarannsókn á kennslu í gagnvirkum lestri og fyrirhuguð kennarahandbók.
Aðgengi fatlaðra að vefsíðum. Áætlað er að um 20% af notendum Internetsins á aldrinum ára eigi við einhvers konar fötlun að stríða. Margar lausnir.
Opnum kennslustofuna Áhrif námsumsjónarkerfis á námið í kennslustofunni Meistaraverkefni Október 2008 Prófessor: Jón Torfi Jónasson Hafdís Ólafsdóttir.
1 Hvað eru starfendarannsóknir?. Samtal Menntavísindasvið M.Ed Hver er ég ? Hvernig vil ég starfa? Hvað er mér kært? Sjálfsrýni Dagbók.
Second-line treatment in advanced colon cancer: are multiple phase II trials informative enough to guide clinical practice? Bjarki Þorvaldur Sigurbjartsson.
Jónína Vala Kristinsdóttir KHÍ1 Að fá að treysta á eigin hugsun og glíma við krefjandi verkefni í skólanum.
Samræða um fyrirlestra sem kennsluaðferð Kennsluaðferðir í háskólum Hvað má læra af rannsóknum á góðum kennurum? Nokkur álitamál um fyrirlestra Nokkur.
Kennsluaðferðir í háskólakennslu Ingvar Sigurgeirsson Nóvember 2006 Hvað er kennsluaðferð? Hverjar eru helstu kennsluaðferðirnar? Hvaða kennsluaðferðir.
Nám fremur en kennsla - Er hægt að fara nýjar leiðir í gömlum skóla ? - Hildur Hauksdóttir Margrét Kristín Jónsdóttir.
Borgarfjarðarbrú Áherslur í Borgarnesi Skólaárið Sjálfstæði – ábyrgð – virðing - samhugur.
Heilsufarsskoðanir fótboltaiðkenda KSÍ þing 2010.
Þau sem unnu að rannsókninni Ásrún Matthíasdóttir Háskólinn í Reykjavík Michael Dal Kennaraháskóli Íslands Samuel Currey Lefever Kennaraháskóli Íslands.
Jo Boaler Sérhæfir sig í stærðfræðimenntun og menntun kennara. Menntun
Berglind Axelsdóttir Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Sólrún Guðjónsdóttir
Algengar spurningar og svör um HighScope stefnuna.
Málstofa um kennaramenntun í Bolholti Hafþór Guðjónsson
Þróun skilnings barna á reikniaðgerðum
Innkauparáðstefna Ríkiskaupa 2007
Ritstuldarvarnir með Turnitin
Það er firra að allir íslenskir grunnskólar séu eins
Stafahlekkir & skilaboðaskjóðan
FYLGJUMST MEÐ ! MSN spjallið Um hvað eru krakkarnir að spjalla ?
Effects of Ramipril on Coronary Events in High-Risk Persons
Leiðir til að efla lesskilning Gagnvirkur lestur - GVL
með Turnitin gegnum Moodle
FYLGJUMST MEÐ ! MSN spjallið Um hvað eru krakkarnir að spjalla ?
Þuríður Hjálmtýsdóttir Fjölskylduráðgjafi/sálfræðingur
Notkun ASEBA skimunarlista á Barnaverndarstofu
Stelpur og tækni Gréta María Bergsdóttir Verkefna- og viðburðastjóri.
Skipulag stærðfræðikennslu í skóla fyrir alla
Vandinn við lestur – hverju er sleppt og hverju er haldið?
Að vanda til námsmats 17. október 2008 Rúnar Sigþórsson HA
Námsmarkmið í lestri Námsmarkmið í ritun
Mælingar Aðferðafræði III
Participation, knowledge and beliefs
Presentation transcript:

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Brjóstvit eða fræði Rannsókn á kennsluaðferðum kennara til eflingar lesskilningi á miðstigi í grunnskólum á Austurlandi

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Brjóstvit eða fræði Tilgangur rannsóknarinnar var að svara tveimur spurningum: Hvaða aðferðum beita kennarar í grunnskólum á Austurlandi til að efla lesskilning nemenda sinna á miðstigi? Eru merkjanleg tengsl milli þeirra aðferða sem þeir beita og niðurstaðna í lesskilningsþætti samræmds prófs í íslensku í 7. bekk?

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Brjóstvit eða fræði Rannsóknaraðferðir: Nafnlaus spurningalistakönnun með 44 spurningum sem flestar voru fjölvalsspurningar Viðtöl við 5 kennara í jafnmörgum skólum.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Brjóstvit eða fræði Rannsóknarhópur: Kennarar barna í 5., 6. og 7. bekk í grunnskólum í umdæmi Skólaskrifstofu Austurlands. Umdæmið nær frá Vopnafirði í norðri til og með Breiðdalsvíkur í suðri. Heildarfjöldi kennaranna var 114 og þar af svöruðu 76 kennarar spurningalistunum eða um 67%.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Lesskilningur Lesskilningur felur í sér nákvæman skilning á því sem ritað er eða er sagt. Lesandinn endurgerir þá merkingu sem sendandinn hafði í huga við ritunina. Lesskilningur felst í smíði merkingar í gagnvirkum tengslum lesanda og texta og þess samhengis sem tjáskiptin eiga sér stað í. Merking textans getur verið sú sama hjá sendanda og móttakanda en þó þarf svo ekki að vera því túlkun er háð fyrri þekkingu og reynslu móttakandans (The Litaracy Dictionary,1995).

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Fræðilegur grunnur Hugsmíðahyggjan gerir ráð fyrir að fjölmargir þættir hafi áhrif á lesskilning, og fylgjendur stefnunnar telja að unnt sé að fræða nemendur um aðferðir til að bæta lesskilning þeirra.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Lesskilningur Lesskilningur er flókið ferli og tekur tíma. Til að öðlast skilning á texta verður lesandinn að ráða yfir þeirri grundvallarfærni að geta umritað bókstafi í orð og setningar. Lesandinn verður að geta tengt lesefnið fyrri þekkingu og nýtt sér fjölda lesskilningsaðferða til stuðnings við að gera textann sem lesinn er merkingarbæran í huga sér (van den Broek og Kremer,2000)

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Lesskilningur Lesandinn þarf að vera meðvitaður um hugsun sína og geta stjórnað athygli sinni og beitt þeim lesskilningsaðferðum sem henta hverju sinni allt eftir því samhengi sem lesið er í. Eiginleikar textans, umhverfið og kennsluaðferðir geta haft áhrif á lesskilning nemenda (sbr. Van den Broek og Kremer, 2000, og sjá einnig Blachowicz, Camille og Donna Ogle, 2001)

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Lestrarumhverfi Aidan Chambers leggur mikla áherslu á að kennarar skapi nemendum fjölbreytt lestrarumhverfi. Í því felst að bjóða upp á gott aðgengi að úrvali bóka í kennslustofunni, að gefinn sé tími til að handleika bækur, fletta þeim og lesa og að samræður eigi sér stað um texta. Að nemendur fái daglega tíma til að lesa í skólanum enda séu aðstæður barna mjög ólíkar og viðhorf á heimilum oft á tíðum andstæð lestri.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Lestrarumhverfi Chambers telur einnig mikilvægt að kennarar séu duglegir að segja börnum sögur, lesa fyrir þau því að að hlustun á texta auðveldi fólki að verða lesendur bókmennta. Börn geta á hverjum aldri hlustað á þyngri texta en þau ráða við að lesa og með því móti fá þau tækifæri til að þróa lestur sinn. Hlustun á texta getur einnig orðið hvati að því að börn lesi texta sem þau annars myndu fara á mis við.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Kennsluaðferðir sem efla lesskilning Vitund um eigið nám (metacognition),,skoða, spyrja, lesa, segja, rifja upp”,,gagnvirkur lestur”,,kann, vil vita, hef lært: KVL” (Sjá Rósu Eggertsdóttur í Fluglæsi, 1998) (,,Questioning the Author” sjá Beck. Isabel L. og fleiri, 1997) (Textatengsl, sjá, Keene, Ellin Olliver og Susan Zimmermann 1997, Harvey, Stephanie og Anne Goudvis, 2000).

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Rannsóknin mín: Brjóstvit eða fræði Spurningalistinn Spurt var um aldur, kyn, starfsaldur, menntun, kennsluaðferðir í lestri, notkun aðferða til að efla lesskilning, um mat á lestri, um almenna þekkingu kennara á lesskilningi og kennsluaðferðum tengdum honum, endurmenntun vegna lestrarkennslu og umfjöllun um lesskilning og lestur undanfarin ár í skólunum.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Rannsóknin mín: Brjóstvit eða fræði Viðtölin: Notaður var hálfstaðlaður viðtalsrammi með tólf spurningum. Viðtölin voru hljóðrituð og afrituð orðrétt í tölvu. Við greiningu þeirra var notuð aðleiðsla, þ.e.a.s. gengið út frá rannsóknarspurningum, lykilhugtökum og fyrri rannsóknum fræðimanna.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Rannsóknin mín: Brjóstvit eða fræði Meðaltalstölur skólanna úr lesskilningsþætti samræmds prófs í íslensku, 7. bekk frá haustinu 2002 voru fengnar hjá Námsmatsstofnun. Notað var tölfræðiforritið SPSS við úrvinnslu gagnanna og tölurnar tengdar við niðurstöður spurningalistanna

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Helstu niðurstöður Menntun þátttakenda

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Helstu niðurstöður Starfsreynsla þátttakenda

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Helstu niðurstöður Umsjón og kennsla námsgreina 5. bekkur 6. bekkur 7. bekkur 12 bekkjardeildir 14 bekkjardeildir 15 bekkjardeildir 11 umsjónarkennarar 13 umsjónarkennarar 14 umsjónarkennarar tóku þátt tóku þátt tóku þátt Kennsla námsgreina Íslenska 45,3% Stærðfræði 40,8% Samfélagsfr. 40,8% Erlend mál 35,5% Náttúru,-eðlis og efnafr. 27,6% Mynd og handm. 25,3% Heimilisfr. 10,5% Aðrar greinar 35,5%

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Notkun fjögurra kennsluaðferða Spyrja nemenda spurninga úr texta 77% af 74 sem svara segjast gera það fremur eða mjög oft, 15 % stundum, 8% sjaldan eða aldrei Leggja fyrir skrifleg verkefni 61% gerir það fremur eða mjög oft, 27% stundum og 12% sjaldan eða aldrei Útdrættir 14% af 73 sem svara gera það fremur eða mjög oft, 40% stundum og 46% sjaldan eða aldrei Bútum raðað í merkingarbæra heild 4% gera það fremur eða mjög oft, 15% stundum og 81% sjaldan eða aldrei

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Endursagnir og samræður nemenda ÁherslaNemendur þjálfaðir í að endursegja texta (72 svara) Áhersla lögð á samræður nemenda um texta (65 svara) Fremur eða mjög mikil 25%40% Hvorki lítil né mikil 49%35% Fremur eða mjög lítil 26%25%

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Algengi notkunar á aðferðum til að efla lesskilning nemenda

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Notkun nemenda á mörgum lesskilningsaðferðum í einu fremur en einni í senn

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Lesskilningsaðferðir Spurt var um hvort kennarar kenndu nemendum að: Skilgreina markmið með lestrinum (55% stundum eða oftar) Skoða textann áður en lesið er(50% stundum eða oftar) Spá fyrir um atburðarás (45% stundum eða oftar) Að virkja fyrri þekkingu á viðfangsefnum texta (79% stundum eða oftar) Að hugsa upphátt meðan lesið er(25% stundum eða oftar) Að nota byggingu textans til skilningsauka (50% stundum eða oftar) Að sjá fyrir sér myndir í huganum meðan lesið er(66% stundum eða oftar) Að leita meginhugmynda í í textanum(83% stundum eða oftar) Að draga saman aðalatriði textans(90% stundum eða oftar) Að spyrja sig spurninga úr textanum meðan lesið er(50% stundum eða oftar) Að athuga ókunnugleg orð (81% stundum eða oftar) Að hafa stjórn á hugsun sinni og athygli (75% stundum eða oftar) Ath. Þeir sem svara eru frá eftir spurningum

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Aðferðir við kennslu lesskilningsaðferða Algengast er að kennarinn leiðbeini um notkun aðferða og nemandi axli ábyrgðina smám saman (78%) Næst algengast er að kennarinn sýni notkun aðferðar með því að nota hana sjálfur (56%) Fátítt er að kennslan feli í sér að nemendur noti lesskilningsaðferðir sem þeir hafa lært í hópvinnu eða að kennari lýsi aðferðinni nákvæmlega og hvenær heppilegt er að nota hana (41%) Athyglisvert er að margir svara ekki spurningum um aðferðirnar sem þeir beita (56-59 þátttakendur svara spurningunum)

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Þekking á sérstökum kennsluaðferðum Gagnvirkur lestur Skoða, spyrja, lesa, rifja upp Kann- vil vita- hef lært

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Notkun sérstakra kennsluaðferða

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Ekki reyndist unnt að svara spurningunni um tengsl notkunar kennara á sérstökum kennsluaðferðum og meðaleinkunnum nemenda í lesskilningsþætti samræmds prófs í 7. bekk frá 2002 vegna þess hve fáir kennarar notuðu sérstakar aðferðir til að efla lesskilning nemenda sinna. Kennsluaðferðir – einkunnir

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Samhengi texta og kennsluaðferða Val á texta fyrir nemendur

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Þekking kennara á lesskilningi og kennsluaðferðum

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Lestur fræðigreina um lesskilning og kennsluaðferðir

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Kennarar og leiðbeinendur Fleiri kennaramenntaðir þátttakendur virðast kenna nemendum að skilgreina markmið með lestrinum og einnig að semja spurningar úr texta meðan lesið er. Aðrir þátttakendur (leiðbeinendur) virðast líklegri til að kenna nemendum að skapa myndir í huga sér meðan þeir lesa

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Viðtöl við kennara Könnuðust ekki við að fjallað hefði verið um lesskilning eða kennsluaðferðir í KHÍ Þjálfun kennaranema varðandi lestrarkennslu takmörkuð Segjast þjálfa lesskilning en fremur ómeðvitað en af ásetningi Höfðu jákvætt viðhorf til lestrar, lásu sjálf mikið og töldu lestur eina mikilvægustu námsgrein í skólanum

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Ályktanir Ekki er unnt að alhæfa út frá niðurstöðum rannsóknarinnar um kennsluaðferðir kennara almennt heldur eiga niðurstöðurnar aðeins um þá sem þátt tóku í rannsókninni með því að svara spurningalistum og eiga viðtöl við rannsakanda.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Ályktanir-umræða Kennarar í bekk á Austurlandi sem þátt tóku í rannsókninni beita almennt ekki markvissum kennsluaðferðum til eflingar lesskilningi (2003) Þeir segjast þjálfa nemendur í beitingu lesskilningsaðferða en ef til fremur ómeðvitað en af ásetningi Fremur fátítt er að þeir sæki sér þekkingu með því að lesa fræðilegar greinar hvort heldur um lesskilning eða kennsluaðferðir til að þjálfa hann eða námskeið um lestur Hefðbundin lestrarkennsla er algeng, og einnig að kennarar spyrji nemendur spurninga úr texta og leggi fyrir skrifleg verkefni úr lesefninu í því skyni að efla lesskilning Námsmat í lestri ber keim af lestrarkennslunni

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Ályktanir- umræða Lítill munur virðist vera á faglærðum kennurum og leiðbeinendum varðandi þjálfun lesskilnings hjá nemendum 77% austfirskra kennara spyrja nemendur spurninga úr texta og 61% leggja skrifleg verkefni úr texta fyrir nemendur sína

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Ályktanir- umræða Kennarar þekkja almennt ekki kennsluaðferðir til eflingar lesskilningi og kemur það heim og saman við athugun Rósu Eggertsdóttur meðal norðlenskra kennara /3 þátttakenda ver engum tíma til kennslu sérstakra lesskilningsaðferða

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Ályktanir- umræða Kennarar velja texta fremur með hliðsjón af lestrarfærni nemenda en af því hvaða lesskilningsaðferðir þeir eru að þjálfa hjá nemendum sínum 40% þátttakenda leggja áherslu á að nemendur ræði saman um texta sem þeir hafa lesið Þátttakendur í rannsókninni þjálfa fremur notkun einnar lesskilningsaðferðar en margar í senn sem getur bent til þess að þjálfun þeirra sé ekki markviss ef marka má viðtöl við kennarana fimm

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Að lokum Bæta þarf menntun varðandi lestur, lesskilning og kennsluaðferðir í kennaramenntastofnunum Skólastjórnendur verða að beita sér fyrir því að kennarar tileinki sér,,nýjungar” á sviði lestrarkennslu Gefa verður kennurum sérstakan tíma í skólastarfinu sjálfu til að fylgjast með í faginu, leita upplýsinga, lesa þær og tækifæri til að ræða við jafningja sína Við kennarar þurfum að vera vakandi fyrir nýrri þekkingu og hugmyndum sem stöðugt birtast í fagtímaritum, bókum og í upplýsingabönkum á Netinu

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Að lokum Lestur í grunnskólanum Hversu mikla áherslu ber að leggja á lestrarkennslu á ólíkum námsstigum og þá hvers konar lestrarkennslu? Hvaða þekkingu verða kennarar að hafa til að kenna lestur?

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Brjóstvit eða fræði Brjóstvitið er gott og gilt en er ekki ástæða til að huga betur að fræðunum? Hverjir eiga að bera ábyrgð á því að koma þekkingunni á framfæri við kennara?

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Nokkrar góðar bækur fyrir kennara sem langar að kynna sér kennsluaðferðir sem komið geta sér vel við þjálfun lesskilnings Beck, Isabel, L Questioning the Author, an Approach for Enhancing Student Engagement with Text. USA, IRA. Blachowicz, Camille og Donna Ogle Reading Comprehension, Strategies for Independent Learners New York. The Guilford Press. Chambers, Aidian Tell me, Children Reading and Talk. Great Britain. Thimble Press. Chambers, Aidian Reading Environment. Great Britain. Thimble Press. Harvey, Stephanie og Anne Goudvis Strategies That Work. Teaching Comprehension to Enhance Understanding. Canada. Pembroke Publishers. Keene, Ellen Oliver og Susan Zimmermann Mosaic of Thought, Teaching Comprehension in a Reader´s Workshop. USA. Heinemann. Pressley, Michael Reading Instruction That Works. The Case for Balanced Teaching. New York, The Giulford Press.

Jarþrúður Ólafsdóttir -málstofa í HA 16.apríl Frábært rit sem allir ættu að lesa Fluglæsi, Áherslur, stefnumörkun og aðferðir í lestrarkennslu sem gefið er út af Skólaþjónustu Eyþings og Rósa Eggertsdóttir ritstýrði.