Download presentation
Presentation is loading. Please wait.
1
38 Myntsvæði og evran
2
Evran: Til góðs eða ills?
Kostir og gallar sameiginlegrar myntar Kenningin um hagkvæm myntsvæði Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði? Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði Ísland Göngum á röðina
3
Evran Maastricht-sáttmálinn 1992 kvað á um:
Ýmis skilyrði, sem lönd þyrftu að uppfylla til að fá aðgang að fyrirhuguðu myntbandalagi (EMU) Tímatöflu fyrir sjósetningu sameiginlegu myntarinnar, evrunnar Reglur um stofnun Evrópska seðlabankans (ECB) Evran var tekin í notkun 1. janúar 1999 Fyrstu evruseðlarnir og peningarnir fóru í umferð 1. janúar 2002
4
Evran Fyrst voru evrulöndin 12, nú eru þau 17.
Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU) var talið nauðsynlegur endahnútur á sameinaðan Evrópumarkað (SEM) Sameinuðu Evrópulögin (e. Single European Act), sem voru samþykkt í Evrópuþinginu 1986, tiltóku 300 ráðstafanir, sem voru taldar nauðsynlegar til að reka smiðshöggið á samrunann: sameinaðan Evrópumarkað
5
23 lönd nota evruna 17 ESB-lönd nota evruna, og það gera einnig
6 lönd utan ESB Austurríki Holland Portúgal Andorra Belgía Írland Slóvakía Kósóvó Eistland Ítalía Slóvenía Mónakó Finnland Kýpur Spánn Svartfjallaland Frakkland Lúxemborg Þýzkaland San Marínó Grikkland Malta Vatíkanið
6
11 ESB-lönd nota ekki evruna, ekki enn
Bretland Danmörk Svíþjóð Lettland Litháen Pólland Tékkland Ungverjaland Búlgaría Rúmenía Króatía
7
Evran Ýmsum tilmælum (e. European Directives) var beint til ríkisstjórna aðildarríkjanna um ráðstafanir til að ná fjórum meginmarkmiðum: Frjálst flæði vöru, þjónustu, vinnuafls og fjármagns milli aðildarlandanna (fjórfrelsið) Samræming viðkomandi laga og reglugerða í aðildarlöndunum Sameiginleg samkeppnisstefna handa öllum ESB-löndunum til að auka hagkvæmni Sameiginleg viðskiptastefna: einn tollur út á við
8
Kostir og gallar sameiginlegrar myntar
1 Kostir og gallar sameiginlegrar myntar Sameiginleg mynt hlýtur að hafa bæði kosti og galla Hvers vegna? Ef hún hefði eintóma kosti, myndu allar þjóðir taka hana upp – eða hvað? Ef hún hefði eintóma galla, myndi engin þjóð líta við henni vitandi vits
9
Kostir sameiginlegrar myntar
Kostnaðurinn við að skipta einni mynt yfir í aðra er allratap (e. deadweight loss) Þessi kostnaður minnkar með upptöku sameiginlegrar myntar: það er allra hagur í andstöðumerkingu við allratap Sameiginleg mynt dregur úr líkunum á verðmismunun milli landa, því að ... ... ef allir nota sömu mynt, er erfiðara að breiða yfir verðmismunun, sbr. lögmálið um eitt verð
10
Kostir sameiginlegrar myntar
Engar gengissveiflur … Það, sem ekki er til, getur ekki sveiflazt til … og þar af leiðir minni óvissu um afkomu fyrirtækja í viðskiptum við önnur ESB-lönd Fyrirtæki gætu að vísu tryggt sig gegn gengisáhættu, ... ... en bankar taka gjald fyrir slíkar tryggingar Sameiginleg mynt hlífir fyrirtækjum við þessum kostnaði
11
Kostir sameiginlegrar myntar
Stöðugt gengi auðveldar rekstur fyrirtækja og bætir afkomu þeirra ... ... og fólksins, sem þau hafa í vinnu ... ... og örvar bæði innlenda og erlenda fjárfestingu – og hagvöxt! Allir hagnast! – eða hvað?
12
Gallar sameiginlegrar myntar
Land, sem gengur í myntbandalag, fórnar sjálfstæði sínu í peningamálum ... ... það fórnar frelsi sínu til að stjórna peningamálum, t.d. vöxtum, á eigin spýtur … … og þar með getunni til að bregðast við áföllum með því að breyta gengi eigin gjaldmiðils með gamla laginu Ekki er hægt að breyta því, sem ekki er til
13
Gallar sameiginlegrar myntar
Hugsum okkur breyttan smekk: fólk vill ekki lengur þýzkar vörur, heldur franskar Heildareftirspurnarkúrfan hliðrast til vinstri í Þýzkalandi og til hægri í Frakklandi Af þessu leiðir tvennt Meira atvinnuleysi og minni verðbólguþrýsting í Þýzkalandi Minna atvinnuleysi og meiri verðbólguþrýsting í Frakklandi
14
Mynd 1. Breyttur smekkur við föstu gengi: Eftirspurn flyzt frá þýzkum vörur yfir á franskar
Heildarframboð til lengdar Verðlag Verðlag Heildarframboð í bráð, AS1G Heildarframboð til lengdar 2 2 1 1 Heildareftirspurn, AD1G Framleiðsla Framleiðsla Þýzkaland Frakkland Bæði löndin færast fyrst úr A í B og síðan smátt og smátt í C, þar eð laun lækka með auknu atvinnuleysi í Þýzkalandi og laun hækka með minnkandi atvinnuleysi í Frakklandi
15
Gallar sameiginlegrar myntar
Ef ríkisstjórnir Þýzkalands og Frakklands gera ekkert í málinu og gengið er fast, kemst full atvinna samt aftur á að endingu Atvinnuleysi leitar í eðlilegt horf fyrir tilstilli launabreytinga, svo að náttúrulegt atvinnuleysi kemst aftur á Ef löndin tvö hefðu hvort sína mynt, hefðu skammtímasveiflur heildareftirspurnar mildazt fyrir tilstilli gengisbreytinga
16
Mynd 2. Breyttur smekkur við fljótandi gengi
Raungengið er E = eP/P*, svo að lækkun P og hækkun P* þýðir lækkun E í Þýzkalandi, en í Frakklandi leiðir hækkun P og lækkun P* til hækkunar E Heildarframboð til lengdar Verðlag Verðlag Heildarframboð til lengdar Framleiðsla Framleiðsla Þýzkaland Frakkland Raungengi þýzka marksins lækkar, svo að hreinn útflutningur eykst og heildareftirspurn réttir úr kútnum Raungengi franska frankans hækkar, svo að hreinn útflutningur minnkar og aukning heildareftirspurnar snýst við
17
Gallar sameiginlegrar myntar
Ef gengið er fast, þ.e. ef löndin hafa eina og sömu mynt, þá kynni þýzka ríkisstjórnin að vilja lækka vexti til að örva fjárfestingu og heildareftirspurn, ... en franska stjórnin kynni að vilja hækka vexti til að hemja fjárfestingu og heildareftirspurn Seðlabanki Evrópu gæti ekki komið til móts við óskir beggja landa í senn Vextirnir eru í grófum dráttum eins í öllum ESB-löndum
18
Gallar sameiginlegrar myntar
Seðlabanki Evrópu hefur sett sér verðbólgumarkmið Ef verðbólgan í einu ESB-landi er neðan við meðaltal ESB-landanna, þá telst peningastjórnin vera of ströng í því landi Ef verðbólgan í einu ESB-landi er ofan við meðaltal ESB-landanna, þá telst peningastjórnin vera of slök í því landi
19
Kenningin um hagkvæm myntsvæði
2 Kenningin um hagkvæm myntsvæði Sum myntsvæði eru klárlega of lítil T.d. Breiðholtið, Villingaholt … ... og Vestmannaeyjar Er nokkurt myntsvæði of stórt? Allur heimurinn eitt myntsvæði? Hvar liggja mörkin?
20
Hagkvæm myntsvæði Hagkvæmt myntsvæði er hópur landa, sem sjá sér hag í að sameinast um eina mynt og mynda myntbandalag Kenningin um hagkvæm myntsvæði leitast við að tilgreina þau skilyrði, sem myntsvæði þarf að fullnægja til að geta talizt vera hagkvæmt Með ,,hagkvæmu” myntsvæði er átt við getu landanna á svæðinu til að draga úr kostnaðinum, sem fylgir myntbandalagi, og nýta sér kostina, sem fylgja bandalagi
21
Hagkvæm myntsvæði: Kostir sameiginlegrar myntar
Ef raunlaun eru sveigjanleg og bregðast vel við breytingum á atvinnuleysi, kemst langtímajafnvægi fljótt á aftur í hagkerfinu í kjölfar ytri áfalla Ef vinnuafl er hreyfanlegt milli aðildarlanda myntbandalags, verður stöðugleikinn í efnahagslífinu með líku lagi meiri en ella Flutningur vinnuafls frá Þýzkalandi til Frakklands myndi draga úr verðbólguþrýstingi í Frakklandi og atvinnuleysi í Þýzkalandi, sbr. Kaliforníu og Texas Sameiginleg tunga skiptir máli ... ... eða t.d. almenn enskukunnátta
22
Hagkvæm myntsvæði: Kostir sameiginlegrar myntar
Ef fjármagn er hreyfanlegt milli landa, verður efnahagslífið ónæmara fyrir ytri áföllum Íbúar lands, þar sem efnahagslífið er í lægð, geta tekið lán í öðrum löndum, þar sem efnahagslífið er í uppsveiflu, til mótvægis við tímabundna lægð heima fyrir – og endurgreitt í næstu uppsveiflu
23
Hagkvæm myntsvæði: Kostir sameiginlegrar myntar
Mikil viðskipti milli landa gefa enn meira af sér en ella, ef löndin stofna myntbandalag sín á milli Þjóðmynt er viðskiptahindrun ... ... eða ígildi viðskiptahindrunar Það kostar sitt að þurfa sífellt að skipta einni mynt yfir í aðrar
24
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
3 Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði? Hlutdeild útflutnings og innflutnings aðildarlanda ESB til annarra ESB landa í landsframleiðslu hvers lands er til marks um það, hversu náin viðskiptatengslin eru innbyrðis í ESB Við getum kallað þetta viðskiptadýpt
25
Tafla 1. Útflutningur og innflutningur 15 ESB-landa til og frá öðrum ESB-löndum (% af VLF)
Evrusvæðið Belgía Þýzkaland Grikkland Spánn Frakkland Írland Ítalía Lúxemborg Holland Austurríki Portúgal Finnland Utan Evrusvæðis Danmörk Svíþjóð Bretland ! Heimild: Eurostat. Ísland 2005: 50,3%
26
Viðskipti Íslands Mest viðskipti við Evrópu
ESB: 65% af útflutningi og innflutningi 2005 Evrópa: 73% af útflutningi og innflutningi 2005 Mun minni viðskipti við Bandaríkin 24% af útflutningi og innflutningi 2005 Hlutur Bandaríkjanna í viðskiptunum var mun meiri fyrir nokkrum áratugum Restin er einkum Asía Japan: 3% af útflutningi og innflutningi 2005
27
Viðskipti Íslands Tölur úr þjóðhagsreikningum fyrir 2005
Útflutningur vöru og þjónustu: 324 mkr. Innflutningur vöru og þjónustu: 450 mkr. Erlend viðskipti samtals: 774 mkr. VLF: mkr. Erlend viðskipti sem hlutfall VLF: 774/1.012 = 77% Viðskipti við ESB-lönd sem hlutfall VLF: 65% af 77%, það er 50%, fjórða hæst í töflunni
28
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Viðskiptin eru mismikil, en dýptin er mikil að jafnaði Dýptin hefur aukizt með tímanum Vöxtur hennar hefur aukizt síðan evran kom til skjalanna Viðskiptadýptin er innri stærð Tafla 1 bendir til, að upptaka evrunnar hafi skilað talsverðum viðskiptahag
29
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Rannsóknir benda til, að vinnumarkaðurinn á meginlandi Evrópu sé ósveigjanlegri en víðast hvar annars staðar um heiminn Vinnumarkaður Bretlands er nú orðið sveigjanlegri en víða annars staðar Munurinn stafar m.a. af því, að miðstýring kjarasamninga á landsvísu tíðkast enn víða á meginlandinu, en ekki lengur á Bretlandi
30
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Upptaka evrunnar hefur þó aukið sveigjanleika launa og hreyfanleika vinnuafls í Evrópu Breiðvirkir kjarasamningar, jafnvel á landsvísu, kveða á um laun í mörgum ESB-löndum Evran gerir launamun milli landa gegnsæjan Það er erfitt fyrir vinnuveitanda að standa gegn launahækkun í Þýzkalandi, ef hann verður að hækka laun í Frakklandi vegna mikillar samkeppni á frönskum vinnumarkaði, þótt atvinnuleysi sé í Þýzkalandi
31
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Stirður vinnumarkaður Það kostar meira að reka og ráða starfsmenn á meginlandi Evrópu en í Bretlandi og Bandaríkjunum Breytingar á raunlaunum virðast ólíklegar til að leiða til aðlögunar að ósamhverfum ytri áföllum (t.d. olíuverðshækkun) á evrusvæðinu, þar eð raunlaun eru ósveigjanleg niður á við
32
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Vinnuafl hreyfist hægt milli landanna 17 á evrusvæðinu Innan hvers lands er vinnuaflið óhreyfanlegra en innan Bandaríkjanna, hvað þá milli landa á Evrusvæðinu Evrópa talar ólík tungumál Í þessu tilliti er Evrópa ekki hagkvæmt myntsvæði
33
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Áður en evran kom til skjalanna, áttu evrulöndin ekki mikil viðskipti með fjármagn sín í milli Frá því evran var tekin upp, hafa fjármagnsviðskipti milli evrulandanna aukizt til muna Fjármagnsmarkaður evrulandanna er hnausþykkur og vinnur vel Vextirnir þar eru nær alls staðar eins
34
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Vextir á ríkisskuldabréfamarkaði evrulandanna eru svipaðir og sveiflast í takt Það er til marks um mikla viðskiptadýpt á evrópskum fjármagnsmarkaði Dýptin er minni í smásölu á bankamarkaði Bankaviðskipti eru ekki mikil milli landa Innlendir bankar eru reglan, og fákeppni Erlendir bankar eru undantekning, fer fjölgandi Bankavextir eru ólíkir í ólíkum löndum
35
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Hagsveiflur í evrulöndum fylgjast að Uppsveiflur fylgjast að Niðursveiflur fylgjast einnig að Ótti við ósamhverf ytri áföll, þ.e. misgengar hagsveiflur, sem fylgjast ekki að, í evrulöndum virðist ekki eiga við rök að styðjast
36
Mynd 3A. Hagvöxtur í Þýzkalandi, Frakklandi og á evrusvæðinu í heild 1990-2003
Vöxtur VLF (% á ári) Keimlíkar sveiflur Frakkland Þýzkaland Evrusvæðið Heimild: Eurostat.
37
Mynd 3B. Hagvöxtur í Þýzkalandi, Frakklandi og á evrusvæðinu í heild 1999-2009
Vöxtur VLF (% á ári) Keimlíkar sveiflur Þýzkaland Frakkland Evrusvæðið Heimild: Eurostat.
38
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Tvö andstæð sjónarmið Lönd líkjast hvert öðru meira, þegar þau taka upp meiri viðskipti sín á milli Hagsveiflurnar verða líkari, misgengið minnkar (Finnland, Svíþjóð) Aðrir segja: Lönd líkjast hvert öðru minna, þegar þau taka upp meiri viðskipti sín á milli Þau neyta skjóls innan viðskiptabandalagsins til aukinnar sérhæfingar (Massachusetts)
39
Fylgni landsframleiðslu á mann við evrusvæðið
Fylgni vaxtar landsframleiðslu á mann við evrusvæðið Fyrir evru Eftir evru Grikkland 0,63 0,76 Ísland 0,19 0,68 Írland 0,03 0,72 Portúgal 0,86 Heimild: Útreikningar úr gögnum Alþjóðabankans, World Development Indicators 2011. Löndin á útjaðri Evrópu tóku upp evru til að líkjast hinum meira Jafnvel Ísland aðlagaðist, án evru Sjá Magnús Bjarnason (2010), The Political Economy of Joining the European Union: Iceland’s Position at the Beginning of the 21st Century (doktorsritgerð, University of Amsterdam)
40
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Sum lönd vaxa hraðar en önnur Írland óx hraðar en önnur Evrulönd , og óx enn hratt og örugglega eftir það, en hægði á sér og lenti í djúpri lægð 2009 Evrópska tígrisdýrið ... ... missti tennurnar
41
Mynd 4A. Hagvöxtur á Írlandi og evrusvæðinu 1990-2003
Síðan sló í bakseglin á Írlandi, þegar bankar komust í þrot og skattgreiðendum var gert að borga brúsann Vöxtur VLF (% á ári) Evrusvæðið Írland Heimild: Eurostat. Hagvöxturinn þarf ekki að fylgjast að
42
Mynd 4A. Hagvöxtur á Írlandi og evrusvæðinu 2000-2010
Vöxtur VLF (% á ári) Evrusvæðið Írland Heimild: Eurostat.
43
Er Evrópa hagkvæmt myntsvæði?
Niðurstaða: Ekki er hægt að svara spurningunni afdráttarlaust Spurningin er ekki eingöngu hagræn Hún er öðrum þræði pólitísk Kannski ræðst svarið af því, hversu langlíf evran reynist Grikkland getur ekki staðið skil á skuldum ríkisins og gæti ákveðið að hætta að nota evru Evran lifir það af Ítalía getur staðið skil á skuldum ríkisins og hættir því varla að nota evru
44
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
4 Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði Sameiginleg stjórn ríkisfjármála (e. fiscal federalism) felst í, að hópur landa kemur sér saman um sameiginleg fjárlög og fjárframlög (e. fiscal transfers) milli landa Ef lönd í myntbandalagi kæmu sér saman um stjórn ríkisfjármála, færi fjármálastjórnin í bandalaginu í heild fram eins og nú tíðkast í hverju landi fyrir sig Skattgreiðendur í einu landi væru þó e.t.v. ekki ánægðir með, að skattfé þeirra væri varið til framlaga til fólks og fyrirtækja í öðrum löndum
45
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Án sameiginlegrar stjórnar ríkisfjármála er hætt við, að einhver lönd hegðuðu sér eins og laumufarþegar (e. free riders) Þegar ríkisstjórn steypir sér í skuldir, myndast hætta á því, að hún geti ekki staðið í skilum – hvernig? Með verðbólgu og gengisfalli, ef landið er utan myntbandalags Bandaríkin taka lán í dollurum Með vanskilum, ef landið er í myntbandalagi Grikkir og Ítalar taka lán í evrum
46
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Skuldugar ríkisstjórnir þurfa því að greiða hærri vexti en ella af skuldum sínum á fjármálamörkuðum Vaxtaálagið endurspeglar mat markaðsins á hættunni á því, að landið lendi í vanskilum Hærri vextir ýta einnig undir ríkishallann og meðfylgjandi skuldasöfnun ... ... þar eð fjármögnun hallans er dýr, ef vextir eru háir
47
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Í myntbandalagi myndu önnur aðildarlönd líklega kjósa að koma skuldugu aðildarlandi til hjálpar til að forða vanskilum Þá er einnig við því að búast, að vaxtaálagið á skuldugar ríkisstjórnir verði að því skapi minna Þetta er spurning um traust
48
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
En úr því að ríkisstjórnir annarra aðildarlanda ganga í ábyrgð fyrir skulduga ríkisstjórn, þurfa þær sjálfar að sæta hærri vöxtum en ella vegna áhættunnar Skuldug ríkisstjórn getur tekið sér ódýrari lán innan myntbandalags en utan … … og leggur aukinn vaxtakostnað á önnur aðildarlönd bandalagsins
49
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Skuldug ríkisstjórn, sem leggur aukinn vaxtakostnað á önnur aðildarlönd myntbandalagsins með hallarekstri sínum, hegðar sér eins og laumufarþegi Hún þiggur farið – þ.e. ávinninginn af verunni í bandalaginu – án þess að greiða kostnaðinn til fulls, því að hún varpar hluta kostnaðarins yfir á axlir annarra
50
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Lönd í myntbandalagi geta samið um að koma ekki hvert öðru til bjargar Óvíst er, hvort slíkt samkomulag teldist trúverðugt Í staðinn geta löndin komið sér saman um fastar reglur um stjórn ríkisfjármála Við stofnun EMB (e. EMU) voru slíkar reglur teknar upp (Stability and Growth Pact, SGP)
51
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Höfuðákvæði SGP eru Aðildarlönd stefna að hallalausum fjárlögum Lönd með ríkishalla umfram 3% af VLF greiða sekt, sem getur numið allt að 0,5% af VLF ... ... nema landið hafi orðið fyrir óvenjulegum skakkaföllum ... ... eða niðursveiflu, þar sem VLF dróst saman um 2% eða meira á einu ári
52
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Hvers vegna er hallahámarkið 3% af VLF? Talan er reiknuð út frá ákvæði í Maastricht- sáttmálanum þess efnis, að skuldir ríkisins megi ekki fara upp fyrir 60% af VLF Hægt að sýna með reikningi, sleppum því Tölurnar eru samt teknar af handahófi Ekki heldur ljóst, hvers vegna SGP kveður á um hallalausan ríkisrekstur Um kosti og galla hallalausra fjárlaga er fjallað í 39. kafla; þið lesið hann á eigin spýtur, sjá einnig glærur
53
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Lykilspurningin var, hvort leyfður hámarkshalli á fjárlögum myndi duga til að virkja sjálfvirka höggdeyfa, þegar hagkerfið lendir í lægð Á fyrstu árum EMB óx VLF, og ríkishallinn í nokkrum aðildarlöndum EMB fór upp fyrir leyfilegt mark skv. SGP, t.d. í Frakklandi og Þýzkalandi Frökkum og Þjóðverjum tókst að sannfæra hin aðildarlöndin um að sekta þá ekki Jón og séra Jón; Grikkir gengu á lagið ESB ákvað 2004 að milda ákvæði SGP
54
Stjórn ríkisfjármála og myntsvæði
Strangar reglur um ríkisfjármál í EMB að viðlögðum sektum án trúverðugs aðhalds hafa ekki gefizt vel Nú reiðir ríkisfjármálastefna EMB sig á gagnkvæmt aðhald aðildarlandanna og skírskotun til orðspors hvers lands um sig Engin ríkisstjórn innan EMB kærir sig um, að litið sé á hana sem eyðslukló og ábyrgðarleysingja Og þó: Grikkir o.fl.
55
5 Ættu Íslendingar að taka upp evruna? Hvað segja bændur?
Eitt mál enn að endingu Ættu Íslendingar að taka upp evruna? Hvað segja bændur? Hvað segið þið? Skoðum rökin með og á móti
56
Sumir: Já, Ísland ætti að ganga í ESB
Viðskipti Íslands við ESB-lönd eru meiri miðað við VLF en í flestum öðrum ESB-löndum Minni viðskiptakostnaður Minni kostnaður í viðskiptum milli Íslands og annarra evrulanda Minni óvissa um gengi myndi gagnast mörgum íslenzkum fyrirtækjum, sem skipta við önnur evrulönd Meiri erlend fjárfesting myndi laðast að Íslandi ... ... ef traust útlendinga á Íslandi er ekki alveg horfið
57
Sumir: Já, Ísland ætti að ganga í ESB
Fyrirtæki hagnast á greiðari aðgangi að stórum innri markaði Sbr. Bandaríkin með sín 50 ríki Greiðari viðskipti með fjármagn myndu leiða til meiri samkeppni og hags af henni Í lægðum ættu Íslendingar greiðari aðgang að lánum í öðrum evrulöndum til að fleyta sér yfir tímabundna erfiðleika Stjórnmálarök: Ísland á heima í ESB Eins og við eigum heima í SÞ, NATO o.s.frv. Munið muninn á staðreyndahagfræði og stefnuhagfræði
58
Aðrir: Nei, Ísland ætti ekki að ganga í ESB
Íslendingar þyrftu að afsala sér sjálfstæðri stefnu í peningamálum og gætu því ekki notað gengisbreytingar með gamla laginu til að laga þjóðarbúið að ytri eða innri áföllum Ef hagsveiflan á Íslandi er ekki í takt við sveifluna í evrulöndum, er peningastefna evrulandanna e.t.v. óhentug handa Íslendingum 99,95%
59
Aðrir: Nei, Ísland ætti ekki að ganga í ESB
Íslendingar þyrftu að fylgja sameiginlegri stefnu evrulandanna í ríkisfjármálum Slök ríkisfjármálastjórn í evrulöndunum gæti haft óheppileg áhrif á Ísland Þau rök, að aukin fjármagnsviðskipti myndi hlífa Íslandi við áföllum og efnahagslægðum, hvíla e.t.v. á of milli bjartsýni, því að lánsviðskipti milli evrulanda eru frekar lítil Stjórnmálarök: Ísland á ekki heima í ESB Aðild myndi ógna fullveldi Íslands, sérstöðu og menningu
Similar presentations
© 2024 SlidePlayer.com. Inc.
All rights reserved.