Download presentation
Presentation is loading. Please wait.
1
Tölvustutt tungumálanám og námsmat
Anna Svava Sólmundardóttir
2
Námsmat á nýrri öld Tölvur hafa skapað nýtt námsumhverfi
Þar af leiðandi er hægt að fara nýjar leiðir í námsmati Með tölvum má hugsanlega auka fjölbreytni í námsmati og auðvelda starf kennarans Námsmat verður að vera í takt við kennsluna hverju sinni
3
Hefðbundið námsmat Í gegnum tíðina hafa verið farnar fjölmargar leiðir í námsmati og margar þeirra er hægt að tölvuvæða Til dæmis matslista, markmiðslista, einkunnir, umsagnir og fl. Þetta auðveldar kennaranum að halda utan um allt námsmatið
4
Námsmat þarf að vera: Námsmatið þarf að vera réttmætt (validity) og mæli það sem því er ætlað að mæla. Námsmatið þarf einnig að vera áreiðanlegt (reliability) Það þarf að vera sveigjanlegt (flexibility) með aðstoð margvíslegra aðferða Það þarf að vera sanngjarnt (fairness) og uppbyggjandi fyrir nemendur
5
Sagan Próf sem eru gerð og tekin í tölvum (Computer-based tests) hafa verið notuð síðan snemma á 9. áratugnum Þau eru forverar tölvustuddra prófa sem eru notuð með Internetinu (Web-based tests) Nú eru fjölmörg kennsluforrit í boði sem bjóða upp á prófagerð og verkefnagerð,sem og tilbúin stöðluð próf og verkefni Alltaf í sífelldri þróun
6
Próf á tölvum – Computer-based tests
Eru auðveld í notkun og mun auðveldara að leggja þau fyrir heldur en hefðbundin próf Gefa svör og endurgjöf strax Hægt er að meta nemendur á margvíslegan hátt til að mynda með gagnvirkum prófum og verkefnum: Krossapróf Innfyllingarverkefni Felligluggapróf Krossgátur Orðaforðaverkefni og fleira
7
Gagnvirk próf Þessi próf gefa uppbyggjandi svör um leið og prófinu er lokið Geta hjálpað nemendum að átta sig á til hvers er ætlast af þeim Nemendur geta lært af mistökum sínum Nemendur geta lært af hvor öðrum
8
Gagnvirk próf frh. Til að nota og gera gagnvirk próf þarf sérstakan hugbúnað Mikið til af slíkum hugbúnaði í dag og er sífellt í þróun Dæmi: Hot Potatoes og Spellmaster Kennarar geta komið sér upp prófabanka
9
Tölvustudd próf - Web-based tests
Eru notuð á Internetinu og eru skrifuð á tölvumálinu HTML Er einungis hægt að nota með aðgangi að Internetinu Góð að því leyti að hægt er að opna þau í mörgum tölvum í einu, það er nemendanna og kennarans. Svör nemenda sendast beint í tölvu kennarans
10
Tölvustudd próf – Web-based tests
Þá er tölvan notuð sem milliliður milli kennara og nemenda Geta verið margvísleg verkefni: Vinna nemandans sem hann sendir frá sér með tölvupósti Þátttöku í umræðu í gegnum tölvupóst eða spjallsvæði Stærri verkefni unnin með aðstoð hugbúnaðar eins og ritvinnslu og töflureiknis. Munnlegum prófum teknum á prófstað eða með aðstoð hugbúnaðar Kennari getur fylgt með framgangi nemandans í gegnum tölvu og metið virkni hans og fleira Dæmi: Blakkur
11
Ýmsir þættir sem hægt er að meta með tölvum
Heimapróf, t.d. gagnvirk vefpróf eða á ritvinnslu formi. Meta þátttöku í umræðum, t.d. í tölvupósti, vefspjalli og spjalli í beinni. Meta þátttöku í hópverkefnum sem geta verið unnin á á tölvu t.d. á vefsíðum eða kynnt með skjásýningu. Meta vinnumöppu (portfolio) og skýrslur sem unnar eru í tölvu. Munnleg próf þar sem notast er t.d. við spjallrásir (spjall í beinni).
12
Jafningjamat Nemendur deila verkefnum, viðbröðgum, hugmyndum og áætlunum með samnemendum til dæmis í gegnum tölvupóst og spjallrásir Fá utanaðkomandi aðila til að taka þátt í námsmatinu Nemendur deila lokafurð með samnemendum til að fá mat og viðbrögð Deila með nemendum sýnishornum af námsmati til að þeir geti skipulagt námið og sett sér skýr markmið
13
Færniþættirnir fjórir
Dæmi um námsmat og verkefni fyrir færniþættina 4: Lestur: Nemendur lesa texta og svara spurningum í gagnvirku verkefni Hlustun: Ýmis hlustunarverkefni s.s. tónlist, kvikmyndir og myndskeið. Má til dæmis nota YouTube Ritun: Ritunaverkefni á tölvum t.d. Word eða álíka Talað mál: Hægt að nota Skype eða þess háttar til að spjalla við kennarann nú eða svona talglærur!
14
Kostir Getur verið ódýrara þegar upp er staðið heldur en að vera sífellt að ljósrita Mikill sveigjanleiki í námi sem hentar mörgum vel Eflir skilning nemenda á tölvum og þjálfar þá í notkun þeirra Býður upp á fjölbreytt verkefni og próf
15
Gallar Nemendur mismunandi færir á tölvur til að mynda við innslátt og almennt tölvuumhverfi Tæknin getur oft á tíðum strítt okkur og tölvurnar geta frosið eða ekki opnað skjölin rétt Nemendur geta misnotað aðstæður og svindlað á prófum eða verkefnum
16
Framtíðin Miklir möguleikar eru fyrir hendi í tölvustuddu námsmati
Til dæmis: Skapa sýndarveruleika til að líkja eftir raunaðstæðum (Authentic) Verið er að þróa hugbúnað þar sem tölvan fer yfir ritgerðir og aðra skrifaða texta
17
Heimildir: Ásrún Matthíasdóttir (án árs): Carsten Roever (2001): Web-based language testing, in: Language Learning and Techonology, Vol. 5, no. 2, s James Dean Brown (1997): Compters in language testing: present research and some future directions, vol. 1, no. 1, s
Similar presentations
© 2025 SlidePlayer.com. Inc.
All rights reserved.