Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Útikennsla í Álftanesskóla

Similar presentations


Presentation on theme: "Útikennsla í Álftanesskóla"— Presentation transcript:

1 Útikennsla í Álftanesskóla
Málþing um náttúrufræðimenntun 2006 Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri Íris Ósk Hafþórsdóttir fagstjóri náttúrufræði

2 Meginmarkmið skólastarfs Álftanesskóla
Vinátta, Vísindi, Listir – allir eru einstakir Þannig vill starfsfólk Álftanesskóla byggja upp sjálfstæða og heilbrigða einstaklinga sem bera virðingu fyrir sjálfum sér, umhverfi sínu og samferðamönnum. Í góðu samstarfi og samvinnu bæjarstjórnar, starfsmanna skólans, foreldra, nemenda og íbúa sveitarfélagsins viljum við í Álftanesskóla efla og þroska gott skólastarf. Álftanesskóli

3 Áherslur í skólastarfi skólans 2006 – 2007 verða:
Uppbyggingarstefnan – Restitution ( ) Uppeldi til ábyrgðar - Sáttmáli um samskipti – Leiðarljós starfsmanna, bekkjarsáttmálar nemenda. Námsaðlögun ( ) Leitað leiða til að þróa og efla námsaðlögun í skólastarfinu enn frekar en gert er. Umhverfismennt/útikennsla ( ) ,,Lesið í Nesið” Margæsardagur – samstarfsverkefni (nánar hér á eftir) Grænfánaverkefnið Útikennsla - ,,heilbrigði og hreysti” Íþróttir og útivist – fjölgreinakennsla Samþætting náttúru - og listakennslu Álftanesskóli

4 Náttúra og listir – samþætting námsgreina
Vísindi og listir Náttúra og listir – samþætting námsgreina Námsaðlögun Lotuskipulag – kennslustundir/ skiptistundir Fjölbreytni í hreyfingu og listum Stærðfræði- og tækniver Útikennsla: s.s. Margæsardagur, Grænfánaverkefnið, bókarlausir dagar og ýmis minni verkefni. Álftanesskóli

5 Útikennsla í Álftanesskóla
Markmið skólans með útikennslu er að: Efla hreyfingu nemenda Efla útiveru og hreysti Efla námsaðlögun með samþættingu námsgreina s.s. ,,bóklegra greina”, lífsleikni, íþrótta og náttúrufræði Efla þekkingu nemenda á nærsamfélaginu Taka virkan þátt í vísindaverkefnum og gefa af sér Efla uppeldi og sjálfsstjórn Álftanesskóli

6 Útikennsla í Álftanesskóla
Leiðir: Í stundaskrá skólans er ein klukkustund (1*60 mín.) á viku tileinkuð útikennslu í öllum árgöngum. Þrjár klukkustundir (3*60 mín.) á viku á stundaskrá í íþróttum (leikfimi og sund) en þar af er 1*60 mín ætluð í útikennsluna í samþættingu með umsjónarkennurum í bekk. Verkefni: Hvað gert er, fer að miklu leyti eftir því hvað umsjónarkennarar eru að vinna með hverju sinni s.s. íslenska, enska, stærðfræði, efnafræði, líffræði, samfélagsfræði. Álftanesskóli

7 Dæmi um verkefni tengd útikennslu:
Íslenska: sóknarskrift- nemendur vinna í hópum og sækja orð í setningu úr safni orða sem hanga t.d. í tré eða körfuboltahring eða finna nafnorð. Enska: fótboltaleikur á sparkvelli – áhorfendur og leikmenn ræða allt á ensku – það má kalla fótboltaorð. Samfélagsfræði: Tóftir við Grástein. Íþróttir: Leikir og þrautir. Líffræði: Lífið í tjörnum í frosti og funa. Eðlis- og efnafræði: Snjókallagerð, mælingar s.s. Lengdar- og hraðamælingar. Álftanesskóli

8 Þekking er: Afl sem gerir okkur fært um að taka virkan þátt í því samfélagi sem er á ábyrgð okkar allra. (John Dewey) Álftanesskóli

9 Margæsardagur Margæs, hvað er nú það?
Íris Ósk Hafþórsdóttir, fagstjóri náttúrufræði. Margæs, hvað er nú það? - Norræn gæsategund og er farfugl. - Ferðast milli varpstöðva í Kanada og vetrarstöðva í Evrópu (4.500 km), með viðkomu á Íslandi. Margæsirnar halda sig á strandsvæði Vesturlands á Íslandi, m.a. á Álftanesi. Álftanesskóli

10 Margæsardagur Margæsardagur verður haldinn i vor, þriðja árið í röð í Álftanesskóla. Um er að ræða þróunar- og samstarfsverkefni Álftanesskóla, sveitarfélagsins Álftaness, Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisráðuneytisins. Einnig er hann unnin í samvinnu við vísindamenn frá Noður-Írlandi (wwt.> Saving wetlands for Wildlife and People). John McCullough, Community Education Officer og Emma Meredith, Learning Manager. Álftanesskóli

11 Margæsardagurinn Dagurinn er haldinn hátíðlegur með ýmsum verkefnum tengdum gæsinni og skoðunarferðum. Hann endar svo með veisluhöldum, veitingum og leikjum. Álftanesskóli

12 Ísland - Norður-Írland
Álftanesskóli er í samvinnu við skóla í útjaðri Belfast við Strangford Lough á Norður Írlandi. Nemendur Álftanesskóla og Nendrum College hafa verið að skrifast á og í vor ætla nokkrir nemendur að heimsækja okkur. Stefnt er svo að því að við förum og heimsækjum N-Íra heim næsta vor. Unnið var að sameiginlegu listaverki síðasta ár. Nemendur sendu inn teiknaðar myndir af margæs og úr því var búið til eins konar mósaík-listaverk. Í verkefninu tóku um 500 skólar þátt. Álftanesskóli

13 Mósaík-listaverkið Álftanesskóli

14 Margæsardagur Ört stækkandi verkefni þar sem allir taka þátt.
Ýmsir möguleikar, t.d. að nemendur aðstoði við talningar fyrir NÍ og fylgist með merkingum. Supergoose! Fylgist með ævintýrinu eða Álftanesskóli


Download ppt "Útikennsla í Álftanesskóla"

Similar presentations


Ads by Google