Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Líffæra og lífeðlisfræði 103 Guðrún Narfadóttir

Similar presentations


Presentation on theme: "Líffæra og lífeðlisfræði 103 Guðrún Narfadóttir"— Presentation transcript:

1 Líffæra og lífeðlisfræði 103 Guðrún Narfadóttir
4. Kafli: Vefir Líffæra og lífeðlisfræði 103 Guðrún Narfadóttir

2 Vefur / líkamsvefur (tissue)
Vefur er hópur svipaðra frumna, oftast af sama stofni, sem starfa saman Til vefjarins tilheyrir líka millifrumuefnið (matrix) Meginvefjaflokkar líkamans eru: Þekjuvefur (epithelial tissue) Stoðvefur (connective tissue) Vöðvavefur (muscle tissue) Taugavefur (nervous tissue)

3 Þekjuvefur (epithelium)
Undirflokkar þekjuvefjar: yfirborðsþekja (covering and lining epithelium) Hefur alltaf frítt yfirborð kirtilþekja (glandular epithelium) Innkirtlar og útkirtlar

4 Einkenni þekjuvefjar Frumur þétt saman, lítið millifrumuefni
Myndar þekju úr einu eða fleiri frumulögum Grunnhimna (basement membrane) tengir vefinn við undirliggjandi bandvef Hefur ekkert blóðflæði Er taugatengdur (has nerve supply) Hefur mikla endurnýjunarhæfni

5 Yfirborðsþekja Flokkun yfirborðsþekju byggir á: Lögun frumna
Flögulaga (squamose) Teningslaga (cuboidal) Stuðlalaga (columnar) Uppröðun frumna Eitt lag (simple) Mörg lög (stratified) Fölsk marglaga þekja (pseudostratified) Dæmi: einföld flöguþekja í lungnablöðrum og háræðum marglaga flöguþekja í húð einföld stuðlaþekja í þörmum

6 Kirtilþekja (glandular epithelium)
Kirtill er ein fruma eða frumuhópur sem myndar og seytir efnum Innkirtlar (endocrine glands) (table 4.1J) kallast líka lokaðir kirtlar eru án kirtilrása seyta hormónum út í blóðið Útkirtlar (exocrine glands) (table 4.1K) kallast líka opnir kirtlar hafa kirtilrásir seyta efnum út um húð eða út í meltingarveg

7 Stoðvefur (connective tissue)
Algengasta vefjagerðin Gerður úr frumum og millifrumuefni (matrix) Millifrumuefnið er úr grunnefni (ground substance) og þráðum (fibers) hlutfallslega mikið millifrumuefni miðað við frumur Hefur ríkulegt blóðflæði nema brjósk, sinar og liðbönd sem eru án blóðflæðis Hefur taugatengingu brjósk er þó undantekning

8 Frumur í stoðvef Frumur eru breytilegar eftir vefjagerð
t.d. blóðkorn í blóði og beinfrumur í beinvef Algengar frumugerðir í stoðvef Fibroblastar (þráðmyndunarfrumur) Macrophagar (átfrumur) Mastfrumur (mynda histamín) Fitufrumur

9 Millifrumuefni (matrix) í stoðvef
Milli frumna er grunnefni með próteinþráðum Þræðirnir eru þrenns konar: Stífir kollagenþræðir t.d. í beinum og sinum Teygjuþræðir t.d. í húð, æðum og lungum Netjuþræðir t.d. milli fitufrumna og í eitlum

10 Flokkun stoðvefjar Laus bandvefur (loose connective tissue)
Þéttur bandvefur (dense connective tissue) Bein (bone tissue) Brjósk (cartilage) Blóð (blood tissue) Vessi (lymph)

11 Flokkun á lausum bandvef
Laus almennur bandvefur (areolar connective tissue) Fituvefur (adipose tissue) Netjubandvefur (reticular connective tissue) Í lausum bandvef er hlutfallslega meira af grunnefni en þráðum

12 Laus almennur bandvefur (table 4.2A)
Margar frumugerðir Milli frumna er mjúkt grunnefni með kollagenþráðum, teygjuþráðum og netjuþráðum Vefurinn er mjúkur og teygjanlegur Finnst víða í líkamanum, m.a. í undirhúð og slímhimnum Myndar fylliefni milli líffæra

13 Fituvefur (table 4.2B) Fitufrumur (adipocytar)
mynda mestan hluta vefjarins stór fitudropi fyllir frumuna að mestu Fituvefur er m.a. í undirhúð, milli líffæra og í gulum beinmerg Hlutverk fituvefjar er forðanæring, einangrun og stuðningur

14 Netjubandvefur (table 4.2C)
Í netjubandvef eru netjufrumur (reticulocytar) Milli frumnanna eru netjuþræðir Vefurinn er í líffærum ónæmiskerfisins svo sem í lifur, eitlum og milta

15 Þéttur bandvefur Flokkun: Þéttur reglulegur bandvefur (4.2D)
Þéttur óreglulegur bandvefur (4.2E) Teygjanlegur bandvefur (4.2F) Í þéttum bandvef er hlutfallslega meira af þráðum en grunnefni. Þræðirnir auka styrk

16 Brjóskvefur Í brjóski er brjóskfrumur (chondrocytar) sem liggja í lónum (lagunae) stakar eða fleiri saman Í millifrumuefninu eru ýmist kollagen- eða teygjuþræðir Brjóskvefur hefur hvorki blóðflæði né taugatengingu

17 Flokkun brjóskvefjar Glærbrjósk (hyaline cartilage) (table 4.2G)
milli frumna eru fínlegir kollagenþræðir algengasta brjóskgerðin Trefjabrjósk (fibrocartilage) (table 4.2H) milli frumna eru stífir kollagenþræðir er t.d. í brjóskþófum milli hryggjarliða Gulbrjósk (elastic cartilage) (table 4.2I) milli frumna eru teygjuþræðir er t.d. í eyrum

18 Beinvefur Flokkun: Þétt bein (compact bone) Frauðbein (spongy bone)
Gert úr hringlaga einingum sem kallast Havers kerfi Frauðbein (spongy bone) Gert úr beinbjálkun Aðsetur rauða beinmergsins Nánari umfjöllun um beinvef í 6. kafla

19 Fljótandi stoðvefur Blóð Vessi Blóðvökvi (plasma) u.þ.b.55%
Blóðkorn u.þ.b.45% rauð blóðkorn (erythrocytar) flytja súrefni hvít blóðkorn (leucocytar) sjá um varnir líkamans blóðflögur (thrombocytar) sjá um stöðvun blæðinga Vessi tær vökvi, staðsettur í vessaæðum líkist blóðvökva, en hefur minna próteininnihald hefur nokkrar frumugerðir Nánari umfjöllun um blóð og vessa í LOL203 (kaflar 14 og 17)

20 Vöðvavefur Frumur vöðvavefjar eru sérhæfðar til samdráttar
Við vöðvasamdrátt er efnaorku (ATP) breytt í hreyfiorku Vöðvavefur er flokkaður í: Beinagrindarvöðva (skeletal muscle) Slétta vöðva (smooth muscle) Hjartavöðva (cardiac muscle) Nánari umfjöllun um vöðvavef í 8. kafla

21 Taugavefur Taugavefur Frumur í taugavef:
tekur á móti áreiti (stimuli) og breytir því í taugaboð flytur boðið áfram til annarra taugafrumna, vöðvafrumna eða kirtla Frumur í taugavef: Taugafrumur (neurones) eru sérhæfðar boðfrumur Taugatróð (neuroglia) flytur ekki boð en sér um ýmsa aðra starfsemi taugavefjarins Nánari umfjöllun um taugavef í 9. kafla

22 Himnur líkamans Líkaminn er þakinn og fóðraður af himnum
Himnurnar eru gerðar úr þekjuvef og undirliggjandi bandvef Himnunum má skipta í flokka: Slímhimnur (mucosa) Klæða holrými sem opnast út á yfirborð, t.d. meltingarveg Háluhimnur (serosa) Klæða líffæri að utan og líkamshol (brjósthol og kviðarhol) að innan Húð (cutis) Klæðir líkamann að utan Liðhimnur Hafa ekki þekjuvef Klæða liðhol að innan og mynda liðvökva


Download ppt "Líffæra og lífeðlisfræði 103 Guðrún Narfadóttir"

Similar presentations


Ads by Google