Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006

Similar presentations


Presentation on theme: "Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006"— Presentation transcript:

1 Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006
23 February 2019 Námsmat á grunnskólastigi: Hver er staðan? Hvert stefnir? „Hvað eru allir að stressa sig á þessum samræmdu prófum?“ Stúlka í 10. bk. vorið 2006 Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006 Meyvant Þórólfsson KHÍ-Símenntun - Meyvant Þórólfsson

2 Skúffureglan (Pigeonhole principle) Reglan um „dúfnahólfin“
n hólf og m>n dúfur. Hér er n=9 og m=25

3 „Dúfnahólf“ og einkunnadreifing
Samræmd próf í 9. bekk (n=5 og m≈4000). Tíðnidreifing löguð að normaldreifingu: A B C D E 280 960 1520 Samræmdar einkunnir í stærðfræði vorið 2006 (n=19 og m=4508 1,0 1,5 2,0 5,0 9,0 9,5 10,0 146 169 190 306 237 180 49 3,2% 3,7% 4,2% 6,8% 5,3% 4,0% 1,1%

4 „Dúfnahólf“ og viðmiðatöflur (Rubrics)
Super Clear understanding. Communicates concept in multiple representations... Sally  Latania  + Greg Sal On Target Understands or is developing well. Uses designated models. Lavant Tanisha Julie Lee George J. B. Maria John H. Not Yet Some confusion or misunderstands. Only models idea with help John S. Mary John A. Van de Walle 2001

5 Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006
Helstu heimildir og uppsprettur upplýsinga: Umsjón með námskeiðum í nokkrum grunnskólum (MÞ/JK/IS o.fl.) Rannsókn IS/JK/MÞ á stöðu námsmats (Stendur yfir) Rannsókn Ernu I. Pálsdóttur Námsmat í höndum kennara (Meistaraprófsritgerð við HA vorið 2006) Þóra Björk Jónsdóttir o.fl. – Evrópskt samstarfsverkefni um námsmat í skóla fyrir alla (Skýrsla væntanleg) B.Ed.-verkefni Maríu Lapas – viðtöl við foreldra barna sem hafa þreytt samræmd próf í 4., 7. og 10. bekk. (Ekki komið til birtingar) Skýrsla starfshóps um tónlistaruppeldi – Niðurstöður könnunar á fyrirkomulagi tónmenntakennslu í grunnskólum Reykjavíkur 2003 B.Ed.-verkefni Sigríðar Rafnsdóttur – Innan eða utan rammans 2005 Opinberar námskrár, starfsáætlanir, reglugerðir, skólanámskrár o.fl. gögn

6 Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006
Mat er að stórum hluta byggt á skriflegum verkum nemenda (próf, verkefni...) Kennarar segja samræmd próf stýra matsaðferðum að miklu leyti, skrifleg próf virðast því vega þungt og einnig verkefni sem miða að undirbúningi fyrir samræmd próf Hin megindlega (kvantítatífa) sýn á námsmat birtist m.a. í upplýsingum um vægi: Árseinkunn 40%, lokapróf 60%... Hugtakið símat kemur mjög víða fyrir, en sjaldnast nógu vel útskýrt hvað í því felst

7 Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006
Algengt er að kennarar tilgreini vinnubrögð, virkni, framfarir og iðni sem grundvöll námsmats, einkum í list- og verkgreinum og yngri stigum Skv. könnun á tónmenntakennslu 2003 er námsmat í tónmennt mjög fjölbreytilegt, sums staðar ekkert, símat, mat á verkefnum, virkni, félagsfærni, áhugi, samvinna, hegðun, frumkvæði. Skrifleg próf stöku sinnum nefnd Munur er eftir aldursstigum á hugmyndum kennara um námsmat og fyrirkomulag þess

8 Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006
Námsmat í skóla fyrir alla með virkri blöndun (inclusion) vefst fyrir mörgum. Svipað er að segja um einstaklingsmiðað nám (differentiation) og sveigjanlega kennsluhætti Í samantekt um Norðurlönd kemur fram að þátttaka nemenda og foreldra í námsmati gefist vel, virk tjáskipti, samskipti og samvinna (collaboration) skipti máli Svolítil umræða fer fram um aðkomu annarra en kennara að mati (sbr. sjálfsmat, jafningjamat, foreldramat...), en tregða að stíga það skref, þekking og reynsla e.t.v. of lítil

9 Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006
Í viðtölum við foreldra kemur m.a. í ljós undrun vegna einhæfra kennsluaðferða og matsaðferða á unglingastigi. Ein móðir leggur til að nemendur séu „látnir kynna og kenna“. Þannig læri þeir betur en við stöðuga miðlun frá kennara Slakur nemandi í 10. bekk vorið 2006 setti þessa yfirskrift á spjallsíðu á Netinu: „Hvað eru allir að stressa sig á þessum samræmdu prófum?“ Mjög sterkur nemandi sem valdi öll prófin sagðist ekki sjá tilgang með sjálfum samræmdu prófunum, hún væri ekki að læra til að ná háum einkunnum á þeim, heldur vegna áhuga á að læra efnið og vegna inntökuskilyrða framhaldsskóla

10 Vísbendingar um stöðuna í grunnskólum árið 2006
Í viðtölum við foreldra koma fram áhyggjur af því að skipulag náms og námsmats sé kerfismiðað og staðlað, ekki nemendamiðað þrátt fyrir umræðu um einstaklingsmiðað nám Kennari nefnir í viðtali að svokölluð geislabaugsáhrif (halo effect) og skyld áhrif vegi talsvert í námsmati. Það virðist stundum skipta máli hvaða nemandi eigi í hlut þegar ákveðið sé í hvaða „hólfi“ hann lendir

11 Samandregið... Skólinn hefur nokkuð skýran tilgang og markmið skv. lögum og námskrám. Námsreynsla sem nemendur gangast undir á vegum skólans er margbreytileg, þótt ákveðnir drættir virðist meira áberandi þar en aðrir og svipaða sögu er að segja um kennsluhætti/kennsluaðferðir En kennarar virðast að einhverju leyti ráðvilltir þegar fella á námsmat að öllum þessum markmiðum, námsreynslu og kennsluháttum. Þess vegna vakna spurningar um réttmæti þegar námsmat er annars vegar

12 Hvert stefnir? Enn betri skóli. Þeirra réttur-okkar skylda 1998:
Kröfur um undirbúning nemenda úr grunnskóla hafa nær eingöngu miðast við árangur í bóklegum greinum, þ.e. íslensku, erlendum tungumálum og stærðfræði, enda er stærstur hluti náms sem völ hefur verið á í framhaldsskóla fólginn í fræðilegu námi sem að mestu leyti er sett fram á óhlutlægan hátt. Sett verða inntökuskilyrði á námsbrautir framhaldsskóla og þannig reynt að tryggja að nemandi hafi öðlast nægjanlegan undirbúning til að takast á við það nám sem hann innritast í. Inntökuskilyrði miðast við einkunnir á samræmdum prófum og skólaeinkunnir við lok grunnskóla. (Bls )

13 Hvert stefnir? Samkeppni mun halda áfram um sæti í
eftirsóknarverðum „hólfum“ sem hlýtur að leiða til: ...prófkennslu og ytri stýringar á hugsun nemenda, sem getur sljóvgað eðlilegt vitsmunastarf ...að nemendur forðast að taka áhættu í námi sínu, enda eru samræmd próf áhættupróf (high-stake tests) ...aukinnar hættu á áhugaleysi nemenda gagnvart raunverulegu námi, orkan fer í að leita leiða til að lenda í réttu „hólfunum“, ekki í að brjóta hugmyndir til mergjar eða leit að vitrænni merkingu og samhengi

14 Hvert stefnir? Þrátt fyrir vaxandi umræðu um aðrar leiðir í námsmati
en þær hefðbundnu (próf, skrifleg verkefni...) þarf meira til: ... Gagngera „jarðvegsvinnu“ til að þessar leiðir skili sér í skólastarf (menntun kennara, jafningjakennsla um „best practices“ o.fl.) ...Tekið verði mið af kenningum um nám og hvaða þýðingu þær hafa fyrir námsmat ...Rækileg umræða fari fram um tilgang námsmats, hvað eigi að meta, hvernig og hverjir o.s.frv.

15 Hvert stefnir? ... Möguleikar eigindlegs (kvalítatífs) mats verði reyndir og því VONANDI BEITT TIL AÐ RÆKTA OG LAÐA FRAM MARGBREYTILEGA HÆFILEIKA BARNA Í STAÐ ÞESS AÐ SKIPA ÞEIM Í HÓLF EFTIR ÞRÖNGUM VIÐMIÐUM ... Jón Gunnar Kristinsson (Jón Gnarr): Mér fannst skólar leiðinlegir...hef alltaf átt erfitt með að einbeita mér að einhverju sem ég hef ekki beinan áhuga á...Ég hef sjálfmenntað mig...stundað fjarnám í gegnum Google...Wikipedia hefur líka reynst mér haukur í horni...Það er hræðileg líðan að hafa eitthvað að segja en kunna ekki að segja það. -Fréttablaðið 6. júlí 2006


Download ppt "Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2006"

Similar presentations


Ads by Google