Download presentation
Presentation is loading. Please wait.
1
Grunnskólabraut KHÍ Námskrárfræði og námsmat
Meyvant Þórólfsson Janúar 2005 KHÍ - Meyvant Þórólfsson janúar 2005
2
Kynning námskeiðs Megináhersla á:
... skipulag náms og kennslu og mat á því …grunnhugtök námskrárfræða, námskrárgerðarlíkön og hugmyndafræði sem þau byggjast á. …námsmat, prófagerð og mat á skólastarfi ...námskrárgerð, markmiðssetning og námsmat á Íslandi KHÍ - Meyvant Þórólfsson janúar 2005
3
Kynning námskeiðs Vinnulag:
Fyrirlestrar, umræðutímar, hópvinna og einstaklingsvinna. Gert ráð fyrir sjálfstæðri vinnu kennaranema og virkni í umræðum. KHÍ - Meyvant Þórólfsson janúar 2005
4
Kynning námskeiðs Námsmat: Einstaklingsverkefni í mars (25%)
Hópverkefni í apríl (25%) Skriflegt lokapróf í maí (50%). Einnig þarf hver og einn að taka þátt umræðu um vandamál til íhugunar Í námsmati reynir annars vegar á fræðilega þekkingu og skilning, og hins vegar á færni og beitingu hugtaka og aðferða. KHÍ - Meyvant Þórólfsson janúar 2005
5
Kynning námskeiðs - námskrárfræði
Áætlun: 17/1 til 19/2 (fimm vikur): Námskrárfræði, tilgangur og markmið, skipulag náms og kennslu, námskrár á Íslandi. 21/2 til 19/3 (fjórar vikur): Námsmat, gerð prófa, óhefðbundið námsmat, samræmd próf, einkunnagjöf. 21/3 til 14/4 (3 ½ vika): Vettvangsnám og undirbúningur þess. 15/4 – 30/4 (2 ½ vika): Samvinnuverkefni um námsmat og mat á skólastarfi. Maí: Próf. KHÍ - Meyvant Þórólfsson janúar 2005
6
Að hverju þarf að huga? Nýr skóli ...
Engin opinber stefna til að fara eftir... Engin aðalnámskrá ... Engin gögn ... Aðeins skólahús, 280 nemendur og foreldrar/forráðamenn skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, 25 kennarar ...og aðrir starfsmenn KHÍ - Meyvant Þórólfsson janúar 2005
7
Hverju þarf að svara? Þarf að huga að því...
...hvað nemendur eiga að læra í skólanum? ...hvers vegna þeir eiga að læra það frekar en annað? ... að segja e-ð um tilgang og markmið skólastarfsins? ... hvernig á að skipuleggja skólastarfið svo námið gangi sem best fyrir sig? ...hvaða umhverfi og aðstæður er heppilegast? ... hvernig á að meta námið og til hvers? ?
8
Rökleg nálgun: Ralph W.Tyler
Fjórar meginspurningar sem þarf að svara: 1. What are the purposes of the school? -Við verðum að hugsa um, geta réttlætt og sett skipulega fram hvað við ætlum okkur (markmið). Við verðum að geta rökstutt hvers vegna það sem á að læra og kenna er mikilvægara en eitthvað annað. Til hvers? 2. What educational experiences are related to those purposes? - Hvaða viðfangsefni og námsaðstæður stuðla best að því að þessi tilgangur náist?
9
Ralph W.Tyler Fjórar meginspurningar frh.:
3. What are the organizational methods which will be used in relation to those purposes? – Hvaða kennsluhættir og kennsluaðferðir falla best að þessum tilgangi og viðfangsefnum? 4. How will those purposes be evaluated? –Hvernig hyggjumst við meta hvað lærðist af því sem átti að læra? Tyler, R. W. (1949) Basic principles of curriculum and instruction
10
Nám, kennsla, menntun Nám, kennsla, menntun
Námskrá, kennsluskrá, menntunarskrá HVAÐ á að nema og kenna? HVER á að nema og HVER á að kenna? HVAR á að nema og kenna? HVENÆR á að nema og kenna? HVERNIG á að nema og kenna? HVENÆR telst maður hafa menntast?
11
Nokkrir meginþræðir til um hugsunar
Staða námskrár í kerfinu... Hvernig námskrá? Opinber skrifuð námskrá? Dulin námskrá? Núll-námskrá? Sverðkattanámskrá? Gátlistanámskrá? Hvað er eiginlega námskrá?
12
Staða námskrár í kerfinu ...
Kerfið sbr. TIMSS-rannsóknina Raunveruleg reynsla/afrakstur Experienced curriculum Aðgerðir skólanna Enacted curriculum Aðstæður nemandans, ófyrirséð reynsla Opinber fyrirmæli Planned curriculum Skólinn/skólaumhverfið Samfélagið
13
Hvers konar námskrár? Í Educational Leadership 2004 Elliot Eisner:
“Það síðasta sem við þurfum í lýðræðisþjóðfélagi er “one-size-fits-all” námskrá með einu setti af markmiðum handa öllum.” Í Educational Leadership 2004 Hin röklega nálgun Ralphs Tylers (1949) hafði lengst af áhrif, en í seinni tíð er talið eðlilegt að námskrá sé sniðin eftir samhengi og aðstæðum hverju sinni, sveigjanleg. Athugum þó hina íslensku þjóðarnámskrá...
14
Hvers konar námskrár? Aðalnámskrá grunnskóla 1999: Skýr markmið eru grundvallarþáttur skólastarfs. Markmið eru leiðarvísir í öllu skólastarfi og forsenda áætlanagerðar um nám og kennslu. Þau stýra kennslunni og námsmatinu og eru grundvöllur mats á gæðum skólastarfs. –Almennur hluti Að mínum dómi tekur núverandi aðalnámskrá of mikið ómak af kennurum og sníður þeim of þröngan stakk við markmiðssetningu og val á viðfangsefnum. Þetta setur kennara í afar erfiða stöðu. – Börkur Vígþórsson
15
Hin opinbera námskrá – hin dulda námskrá ...
Eðlilegt er að námskrá hafi á sér tvær hliðar: Hina „sýnilegu” og hina „ósýnilegu”. Dennis P. Doyle í Educ. Leadership Hin sýnilega feli í sér hefðbundnar, formlegar inntakslýsingar: t.d. „hefðbundnar námsgreinar” sem hafa það markmið að efla sjálfstæða hugsun, skilning og persónuleika. Hin ósýnilega námskrá feli í sér eflingu góðra siða (gilda): „Values are caught, not taught”.
16
Hin opinbera námskrá – hin dulda námskrá ...
Minnir óneitanlega á slagorð sem oft hafa heyrst í seinni tíð: „Nemendur séu bæði fróðir og góðir”. Hin dulda námskrá: Skólabragur, viðmót og samskiptasiðir o.s.frv. Birtist jafnvel í “sýn” skóla. Hér vakna spurningar um raunverulega birtingu námskrár: skrifuð, rædd, hugsuð ...að hluta þegjandi samkomulag. Ath. þrjá meginþætti sem skólinn leggur áherslu á: Bókvit, siðvit og verkvit.
17
Hin opinbera námskrá – hin dulda námskrá ...
Hverjir eru hinir raunverulegu áhrifavaldar þegar námsreynsla barna er til umræðu? „Planned curriculum” eða „Hidden curriculum”? Hverjir eru hinir duldu áhrifaþættir, hverjir þeirra hafa mest áhrif? Má líta á duldu námskrána sem hindrun eða tækifæri til að bæta nám og kennslu? Er til heildarskilgreining á námskrá sem tekur duldu námskrána með í myndina? Já.
18
Núll-námskrá ... Þegar velja á markmið, viðfangsefni og námsgögn í skóla er óhjákvæmilegt að sleppa einhverju, en hverju á að sleppa? !! Elliot Eisner talaði um hina svonefndu núll-námskrá (null curriculum): ... It is my thesis that what schools do not teach may be as important as what they do teach. I argue this position because ignorance is not simply a neutral void; it has important effects on the kinds of options one is able to consider, the alternatives that one can examine, and the perspectives from which one can view a situation or problems Elliot Eisner 1994
19
„Sverðkattanámskrá“ Í frægri ádeilu, The Saber-Tooth Curriculum, er sagt frá ákveðinni leikni hjá fornum ættbálki að hrekja burt sverðketti með eldi og ýmsa aðra leikni. Sá tími kom að aðstæður breyttust og ekki var þörf fyrir slíka leikni, heldur aðra. Þá vildu öldungarnir ekki varpa hinum eldri vinnubrögðum fyrir róða. Í þeim fælist nefnilega „hin sanna menntun“. J. Abner Peddiwell. 1939
20
„Sverðkattanámskrá“ Er eitthvað sem styður það, að haldið sé í forna kunnáttu og gömul gildi? Er eitthvað sem hindrar að svo sé gert? Hugsum í því ljósi um menntun sem virðisauka á „sönnu manneðli“ annars vegar (sbr. GF 1907) og hins vegar sem „innvígslu í menningu“, samfélag sem tekur breytingum (e. enculturation). Eru „sverðkattanámskrár“ enn við lýði, opinberar og/eða duldar?
21
Gátlistanámskrá: „Hundavaðsháttur“
Nýlegar námskrár í ýmsum greinum, bæði fyrir grunnskóla og framhaldsskóla, innihalda lista yfir efnisatriði sem eru svo langir og miklir að ekki er nokkur von til að takist að þjálfa upp leikni í nema litlu af því sem upp er talið. Þrautalendingin verður því að göslast yfir á hundavaði. Atli Harðarson 24/1/2004 Lesbók Mbl.
22
Hvað er eiginlega námskrá?
Curriculum = Hlaupabraut, línuleg með fyrirframákveðið upphaf og endi (upphafl. merking) Áætlun eða leiðarvísir um hvað skuli gert (lært, kennt) í skólum. - Andri Ísaksson Skólanámskrá: Rökstudd, skrifleg lýsing á því sem gert er og gera á í skólanum . – Aðalnámskrá grunnskóla 1989 (Hrólfur Kjartansson) Vinnuskilgreining Marsh og Willis: An interrelated set of plans and experiences that a student undertakes under the guidance of the school
23
Til umræðu: Eru sverðkattanámskrár nauðsynlegar eða virka þær sem hindrun í vegi fyrir eðlilegri skólaþróun? Er vænlegt að vera með nákvæm og sundurgreind markmið fyrir öll svið skólastarfs eða… Er skólastarfið svo flókið, krókótt og óútreiknanlegt í eðli sínu að ógerlegt sé að vera með fyrirfram skrifaða dagskrá? Hversu mikill sveigjanleiki á að vera innbyggður í námskrá?
24
Reynið að svara: Hvað eru námskrárfræði? Hverjar eru megináherslurnar í þeim fræðum? Íhugið öll þau álitamál sem gætu falist í spurningunum fjórum neðst á bls. 11 í bókinni Að mörgu er að hyggja.
Similar presentations
© 2025 SlidePlayer.com. Inc.
All rights reserved.