Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Fjarnám og -kennsla: Teaching & learning at a distance (Simonson og fl

Similar presentations


Presentation on theme: "Fjarnám og -kennsla: Teaching & learning at a distance (Simonson og fl"— Presentation transcript:

1 Fjarnám og -kennsla: Teaching & learning at a distance (Simonson og fl
Fjarnám og -kennsla: Teaching & learning at a distance (Simonson og fl.) Sólveig Jakobsdóttir

2 Fjarnám og -kennsla: Teaching & learning at a distance: Foundations of DE (Simonson og fl.) Sólveig Jakobsdóttir Sæl og blessuð. Þetta er Sólveig Jakobsdóttir dósent í fjarkennslufræðum við KHÍ að kynna fyrstu þrjá kaflana í aðaltextabók námskeiðsins Fjarnám og –kennsla. Bókin heitir Teaching and learning at a distance og er eftir Michael Simonson, Sharon Smaldino, Michael Albright og Susan Zvacek. Við höfum verið að lesa 2.útgáfu bókarinnar sem er frá árinu 2003 en fyrsta útgáfan kom út árið 2000 og ber hún það dálítið með sér m.a. að því leyti að umfjöllun um notkun Netsins er í minni kantinum. En á hinn bóginn gefur bókin nokkuð gott yfirlit yfir sögu fjarmenntunar og gefur gott yfirlit yfir ýmsa mikilvæga þætti sem tengjast fjarnámi og –kennslu. Við höfum þann háttin á í námskeiðinu að skipta á milli okkar köflum bókarinnar og mun ég sjálf fjalla um kafla 1-3 en aðrir nemendur taka að sér flesta af þeim köflum sem eftir verða. Vísað verður í þær kynningar frá vef námskeiðsins og/eða þær lagðar inn á umræðuvef. 1.kaflinn sem ég mun fjalla um hér er um Stoðir eða ýmis grunnatriði sem tengjast fjarmenntun eða foundations of DE 2. kaflinn um ýmis hugtök, skilgreiningar, sögu og kenningar og 3. kaflinn er um rannsóknir á fjarnámi og - kennslu

3 Stoðir Ef við skoðum aðeins fyrst helstu þætti sem teknir eru fyrir í undirstöðukaflanum.

4 Fortíð og framtíð Höfundar ræða um mismunandi sjónarhorn í fortíð og framíð. En áður var margstaðfest að fjarnemendur höfðu tilhneigingu til að kjósa fremur stað- en fjarnám, en færu bara í fjarnám því þær gætu ekki ýmissa hluta vegna ekki stundað venjulegt staðnám – þessar skoðanir voru á þeim tíma þar sem fjarnám byggðist á notkun prentmiðla og/eða útsendingarmiðla (útvarp/sjónvarp). Nú er hins vegar sífellt meiri þróun í þá átt að nemendur krefjist þess að hafa aðgang að fjarnámi og viljí ráða hvar og hvenær þeir stundi sitt nám. Athyglisverð er t.d. í þessu samhengi grein Pat Rogers um “The forced evolution of higher education” þar sem lýst er þróun undanfarinna ára þar sem háskólastofnanir verða hvort sem þeim líkar betur eða verr að bjóða upp á fjarnám. Þessi þróun hefst með síaukinni netnotkun og möguleikum á að vera í “sýndarskólum”. Þegar rætt er um þá þróun að nemendur vilji í síauknum mæli stjórna því hvað þeir læra og hvenær þá má heldur ekki gleyma að einnig hlýtur að vera áfram þörf fyrir samstætt nám þar sem nemendur byggja upp fagþekkingu og verða hluti af náms- og fagsamfélagi. En þarna er kannski töluverð togstreita á milli og t.d. uppkomnir ýmsir fjarskólar sem eingöngu eru með kennslu en hafa ekki rannsóknir með. Þar er komin sú áhersla að þjóna eingöngu áhuga/þörfum einstaklinga fremur en að tengjast meira samfélaginu og einnig er komin sú hætta að ákveðin stöðnun eigi sér stað ef ekki er hugað jafnframt að rannsóknarþættinum og reynt að flétta hann sem mest og best saman við kennsluna.

5 Hvað er. Nemandi aðskilinn/fjarri kennara. Fjar
Hvað er? Nemandi aðskilinn/fjarri kennara. Fjar? landfræðilega, tímalega?, vitsmunalega? Coldeway: st-sp, st-dp, ("synchronous") dt-sp, dt-dp ("asynchronous") Fjallað er um hvað fjarnám táknar - það sem er sammerkt með þeim ótal skilgreiningum sem til eru er það að nemandinn er á einhvern hátt aðskilinn eða fjarri kennara en hvað er þá átt við með fjar eða fjarri? Þá er oftast verið að vísa í landfræðilega eða tímalega fjarlægð en höfundar bókarinnar tala þó um að jafnvel geti verið átt við vitsmunalega fjarlægð. Þeir vísa í Coldeway sem skipti tegundum menntunar í fernt: Annars vegar samtíma (“synchronous”) - sami tími-sami staður (hefðbundið); sami tími – mismunandi staður (t.d.með myndráðstefnum, spjalli); og hins vegar “asynchronous” – mismunandi tími – sami staður; mismunandi tími – mismunandi staður (vefráðstefnur). Ég hef líka tekið upp umræðu um það hvort hægt sé að líta á fjarkennslu sem sérstaka kennsluhætti en það er mikið álitamál. Ingvar Sigurgeirsson einn helsti kennslufræðingur landsins lítur á að kennsluhættir samanstandi yfirleitt af nokkrum kennsluaðferðum. Ljóst er að hægt er að nota ýmsar kennsluaðferðir hvort sem er í stað- eða fjarnámi/kennslu, dæmi er lausna-leitanám, samvinnunám, fyrirlestrar o.s.frv. Því virðist erfitt að flokka fjarkennslu sem undirflokk kennsluhátta – nær væri kannski að líta á hana sem yfirflokk – hvað finnst ykkur?

6 Miðlar; áhrif miðla? - Clark 83; Kozma 91; fjarnemar læra hvorki betur né verr en aðrir; en ath. ný tækni gefur nýja möguleika getur breytt leiðum Höfundar tala líka um áhrif miðla og klassísk skrif um þau áhrif. Annars vegar grein Clark frá 1983 og hins vegar grein Kozma frá Í þeirri fyrrnefndu gagnrýndi Clark mjög samanburðarrannsóknir á áhrifum mismunandi miðla og hélt því fram að aðferðir og innihald skiptu aðalmálinu og kom með þá líkingu að miðillinn væri eins og mjólkur/flutningabíll - skipti litlu máli upp á innihaldið að gera. Gagnrýni Clark á að ýmsu leyti góðan rétt á sér – ekki síst þar sem samanburðarrannsóknir á áhrifum miðla hafa oft verið mjög gallaðar, vægast sagt. T.d. vegna þess að reynt er að láta mismunandi miðla gera eins líkan hlut og hægt er – dæmi rannsókn Katz sem lesin var í leshring þar sem hann komst m.a. að raun um að myndráðstefnur væru miklu árangursríkari en að nota Netið í fjarkennslu. En ekkert var þá tekið inn í myndina, samhengi hlutanna, reynsla og menning viðkomandi hóps, reynsla kennara, hvernig kennsluaðferðir var um að ræða og í hverju var prófað. En Kozma benti hins vegar á að skynsamlegt væri að skoða til hvers nota ætti mismunandi miðla og nota þá einmitt á mjög mismunandi vegu eftir eðli þess náms og þörfum hópsins sem um væri að ræða. Ný tækni gæfi oft nýja möguleika og gæti breytt þeim leiðum og kennsluaðferðum sem notaðar væru. Dæmi um slíkt eru þau áhrif sem hefur haft á mína eigin kennsluhætti að hafa verkfæri s.s. vefráðstefnur, og gagnagrunnstengda vefi. En hugsanlegt er að nota kenningar s.s. activity theory (athafna- eða virknikenninguna) til að rannsaka áhrif verkfæranna á aðferðir, innihald, og nám og nota þá ekki síst eigindlegar rannsóknaraðferðir.

7 Sýn höfunda á fjarnám: gagnvirkt, í rauntíma
Sýn höfunda á fjarnám: gagnvirkt, í rauntíma?, þegar hentar, nemendamiðað, með raunverulegt gildi; skólastofur - "með útsýni" Sýn höfunda á fjarnám virðist beinast að möguleikum í gagnvirkni og rauntíma þegar hentar, að námið sé nemendamiðað með raunverulegt gildi og að veggir skólastofu séu víkkaðir út. En hver er ykkar sýn – mín eigin sýn varðandi uppbyggingu náms á brautinni sem ég stýri kemur að nokkru leyti fram í greininni United we stand divided we fall sem er inni á UGLU námskeiðsins.

8 Dæmi frá mismunandi löndum - langmesti vöxturinn vegna Netsins; US öðruvísi en víða annars staðar - meiri áhersla á fjarkennslu á grunn- og framhaldskólastigi Þeir taka fyrir dæmi frá mismunandi löndum en benda réttilega á að langmesti vöxtur á sviði fjarnáms sé tilkominn vegna Netsins. En fjarnám í US sé öðruvísi en víða annars vegna meiri áherslu á fjarkennslu á grunn- og framhaldskólastigi en í fullorðinsfræðslu eða á háskólastigi. Athugið að á leslista námskeiðsins hefur verið reynt að taka fyrir ýmis dæmi um fjarnám og –kennslu á mismunandi skólastigum hér á Íslandi og þið fenguð líka kynningu í staðbundinni lotu og frá Önnu Ólafsdóttur. En spennandi væri að vita um ykkar eigin reynslu af mismunandi skólastigum.

9 Hugtök, saga, kenningar

10 Skilgreiningar margar...

11 Saga

12 Kenningar

13 Sjálfstætt nám (independent study)
Wedemeyer 1981 Moore 1970+

14 "iðnvædd" (industrialized" kennsla) Otto Peters 1988
Skömmtun, verkaskipting, sjálfvirkni, færiband, massaframleiðsla, undirbúningsvinna, áætlanir, skipulag, "vísindaleg" stjórnun/greining, formlegt, stöðlun, breyting í "fúnksjón", hlutgerð?, samþjöppun

15 Samskipti (interaction, communication) Holmberg 1986, 1995
Áhersla á samskipti kennara og nemenda, tilfinningaleg tengsl mikilvæg, líkleg til að auka ánægju af námi og vera áhuga/námshvetjandi, vinalegur persónulegur tónn, auðvelt aðgengi að námsefni Viðbætur 95 (sjá bls

16 Samsuða kenninga - Perraton 1988
Hvernig fjarnám getur "hámarkað" menntun (5 staðh.) Þörf á að auka samræður (dialog, 4 staðh.) Aðferðin (5 staðh.) margmiðlun, kerfisb. kennsluhönnun, endurgjöf, verkefni

17 Kenningarammi/Spurningar Keegan 1986
Er fjarmenntun menntunartengd afhöfn (frekar en á sviði viðskiptalífs/iðnaðar? Er fjarmenntun tegund af hefðbundinni menntun eða meira sjálfstætt form? Er fjarmenntun möguleg eða er um hugsanavillu að ræða? Fjarkennsla möguleg en ekki fjarmenntun. 5 breytingar á hefbundinni kennslu (munnlegt, hópskipt): tengd skipulagi og stofn/einkavæðingu

18 Fordismi, ný-fordismi, eftir-fordismi t. d
Fordismi, ný-fordismi, eftir-fordismi t.d. Badham&Mathews 1989, Campion 95 Fordismi: lítið um nýjungar, lítill sveigjanleiki í ferli, lítil ábyrgð hjá þeim sem vinna við Ný-fordismi: miklu meiri sveigjanleiki/breytileiki í framleiðslu og ferli, en mjög miðstýrt vinnuafl Eftir-fordismi: mikill sveigjanleiki/breytileiki í ferli, mikið um nýjungar, ábyrgð hjá þeim sem vinna

19 Rannsóknir

20 Námsárangur Mikið af rannsóknum/samanburður á áhrifum miðla á árangur - mjög vafasamar margar en leiða yfirleitt í ljós lítinn mun nema? Er vísbending um breytingu fjarnemum í hag?

21 Viðhorf fjarnema T.d. gagnvart kennara/kennslu, tækni, stjórn/skipulagi námskeiðs, starfsfólki á stað, gögn komi tímanlega, stuðningsþjón., samsk. v. kennara utan kennslustofu


Download ppt "Fjarnám og -kennsla: Teaching & learning at a distance (Simonson og fl"

Similar presentations


Ads by Google