Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Er teymiskennsla árangursrík leið í skóla án aðgreiningar?

Similar presentations


Presentation on theme: "Er teymiskennsla árangursrík leið í skóla án aðgreiningar?"— Presentation transcript:

1 Er teymiskennsla árangursrík leið í skóla án aðgreiningar?
Myndin er fengin úr námskeiðsgögnum Andreu Honigsfeld (sjá Er teymiskennsla árangursrík leið í skóla án aðgreiningar? Ingvar Sigurgeirsson Erindi á fræðsludegi Félags sérkennara – 23. nóvember 2018

2 Efnið Í erindinu verður fjallað um teymiskennslu, hugsanlegan ávinning og hindranir, með hliðsjón af markmiðum um menntun fyrir alla. Fyrirlesarinn hefur rannsakað teymiskennslu og hefur verið ráðgefandi um innleiðingu hennar í nokkrum skólum hér á landi.

3 Hvers vegna er þetta efni á dagskrá?
Rannsóknin Starfshættir í grunnskólum (2009‒2013) náði til 20 skóla Níu skólanna reyndust byggja verulega eða að hluta til á teymiskennslu – sex voru einyrkjaskólar og fimm voru hvort tveggja Teymiskennsluskólarnir reyndust standa framar í mörgum atriðum Fjölbreyttari kennsluhættir og námsmat Jákvæðari viðhorf um marga mikilvæga þætti

4 Hvað er teymiskennsla? Tveir eða fleiri kennarar eru samábyrgir fyrir einum árgangi, aldursblönduðum hópi, námsgrein eða námsgreinum. Kennarar undirbúa sig saman og kenna einnig að einhverju marki saman. Tveir eða fleiri kennarar leggja saman krafta sína, hæfileika, áhuga og bjargir og bera sameiginlega ábyrgð á kennslu í tilteknum nemendahópi (Main og Bryer, 2005).

5 Co-teaching (skilgreining)
Tveir eða fleiri kennarar kenna blönduðum eða fjölbreyttum nemendahópi að miklu leyti saman í sama rými. Cook and Friend (1995) shortened the term cooperative teaching to co-teaching and further clarified the characteristics inherent in a true co- teaching relationship. They defined co-teaching as as; two or more professionals delivering substantive instruction to a diverse or blended group of students in a single physical space (p. 2). Cook,L. og Friend, M. (1991). Principles for the practice of collaboration in schools. Preventing School Failure, 35(4), 6-9.

6 Önnur skilgreining (co-teaching)
Það er sameiginlegt mörgum skilgreiningum á teymiskennslu (e. co-teaching) að þess er vænst að almennir kennarar og sérkennarar vinni saman að kennslu fatlaðra nemenda eða nemenda með námserfiðleika innan almenna skólakerfisins. Common to the many definitions of co‐teaching is an expectation that general and special education teachers work collaboratively within the general education setting to teach students with disabilities and those at risk for academic difficulty (Bauwens, Hourcade og Friend, 1989; Murawski og Lochner, 2011; Sileo, 2011)

7 Ótal afbrigði – mismunandi umfang
Kennarar í sama árgangi eða samliggjandi árgöngum vinna saman Nánast alltaf – eða stundum, t.d. hluta úr viku Faggreinakennarar vinna saman Bera saman ábyrgð á námsgrein í tilteknum hópum Leggja saman í þverfagleg viðfangsefni Í lengri eða skemmri tíma Í mis-umfangsmiklum verkefnum Sérkennarar (þroskaþjálfar) vinna með umsjónarkennurum (e. co-teaching)

8 Ensku hugtökin Team teaching Teaming Interdisciplinary team teaching
Collaborative teaching (eða cooperative teaching) Co-teaching

9 Rannsóknir á teymiskennslu
Teymiskennsla hefur verið rannsökuð í marga áratugi Á öllum skólastigum Víða um heim (Rannsóknum á árangursríkri teymisvinnu hefur einnig fleygt fram) Íslenskar rannsóknarniðurstöður

10 Dæmi um niðurstöður út Starfsháttarannsókninni:
Kennarar í teymiskennsluskólum ... eiga betri samskipti við nemendur telja samskipti nemenda betri telja starfsanda betri segja mun meiri áherslu lagða á samvinnu starfsfólks telja að mun betur gangi að innleiða nýbreytni taka mun meiri þátt í innleiðingu breytinga

11 Starfsþróun kennara er markviss hluti af skólastarfinu

12 Afstaða starfsfólks til fullyrðingarinnar Í mínum skóla gengur vel að innleiða breytingar í skólastarfinu

13 Rannsóknir meistaranema:
Svanhildur Ólafsdóttir (2009): Eigindleg rannsókn í þremur skólum (viðtöl og vettvangsathuganir) Þórhildur Helga Þorleifsdóttir (2013): Viðtalsrannsókn, rætt var við fjóra skólastjóra Fríða Rún Guðjónsdóttir (2014): Tilviksrannsókn í einum skóla (viðtöl og vettvangsathuganir) Sólveig Ásta Guðmundsdóttir (2014): Tilviksrannsókn í einum skóla (viðtöl og vettvangsathuganir) Björn Benedikt Benediktsson (2014): Viðtalsrannsókn (sjö kennarar í tveimur skólum) Kristín Margrét Gísladóttir (2015): Eigindleg rannsókn í þremur skólum (unglingastig) Anna Steinunn Friðriksdóttir (2015): Eigindleg rannsókn í þremur skólum (viðtöl og áhorf – áhersla á samstarf umsjónarkennara og sérkennara) Svanhildur kallaði ritgerð sína: Ef teymiskennsla er svarið hver er þá spurningin?

14 Anna Steinunn Friðriksdóttir (2015)
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að teymiskennsla styður við skólastarf í skóla án aðgreiningar með faglegri samvinnu teymisfélaga. Í slíkri samvinnu þarf að fara fram markviss og gagnrýnin samræða um aðferðir og nálganir í kennslu í samræmi við hugmyndafræði skóla án aðgreiningar. Teymisfélagar þurfa að líta á fjölbreytileika nemenda sem hið sanna viðmið og nýta kraft samvinnunnar til að leita markvissra og fjölbreyttra lausnaleiða þeim til handa með sveigjanleika að leiðarljósi. Samvinna kennara og sérkennara í teymi gefur aukna möguleika á fjölbreyttum aðferðum og nálgunum í kennslu í takti við styrkleika þeirra sem þjóna hagsmunum fjölbreyttra nemendahópa.

15 Hvað segja rannsóknir um kostina?
Verkaskipting – vinnuhagræðing ólíkir styrkleikar / menntun / reynsla kennara eða annarra starfsmanna nýtur sín betur Jafningjastuðningur Betri lausnir Agavandamál eru auðleystari Kennarar verða nemendum fyrirmyndir (um samvinnu) Við lærum hvert af öðru Hugmyndin um skólann sem lærdómssamfélag

16 Fleiri kostir Traustara námsmat
Nemendur (og foreldrar) hafa ákveðið val um kennara Ávinningur í tengslum við kennaramenntun Kandídatsárið Að vinna á gólfinu með öðrum fullorðnum veitir aðhald Auðveldara er að glíma við forföll Hvernig mætum við auknu álagi í starfi kennara? Yfirleitt vilja þeir sem starfa í teymum ekki fara til baka!

17 Mikilvægar forsendur Viðhorf kennara skipta sköpum
Það er hægt að læra að vinna í teymi Mikilvæg skilyrði Gagnkvæmt traust innan teymisins Hreinskilin samskipti Skipuleg vinnubrögð Stuðningur skólastjórnenda er afar þýðingarmikill Skipan í hópa Stundatöflur Hvatning

18 Hvað segja rannsóknir (og reynsla) um gallana - vandann
Tímaskorturinn Teymi ná ekki saman (samstarfsörðugleikar) Teymiskennsla er líklega ekki fyrir alla! Vandinn með hreinskilnina! Oft er vandi að taka ákvarðanir Þegar einhver eða einhverjir leggja minna af mörkum Aðstæðurnar – rýmið Stundatöflurnar Þegar nemandi finnur sig ekki í þessu skipulagi

19 Stærstu áskoranirnar Nemendur með alvarleg námsvandamál
Nemendur sem glíma við geðræn vandkvæði

20 Reynslan af nýjum innleiðingarverkefnum
Viðtöl við teymi í skólunum í Borgarbyggð, Húnaþingi og á Ísafirði Mörg dæmi um að vel gangi þegar: Tveir kennarar – sem ná vel saman – eru með hóp í sama rými Tveir eða fleiri (ólíkir) kennarar kenna stærðfræði saman (jafnvel í aldursblönduðum hópum) Samvinna þroskaþjálfa og kennara skilar góðum árangri

21 Að nýta styrkleika hvors/hvers annars
... ég sé að megninu til um agamálin ... hann er meira skapandi ... þetta er svona good cop ... bad cop ... við erum þó nógu líkir til að skilja hvorn annan vel ... ég get farið um víðan völl ... fengið óvæntar hugmyndir ... þegar ég fer of langt er hann jarðtenging ... (úr viðtali við miðstigsteymi í skóla í dreifbýli).

22 Að nýta styrkleika hvors/hvers annars
Ég held að við séum mjög ólíkar en það hefur gengið mjög vel hjá okkur ... erum líka mjög duglegar að styðja hver aðra þegar það er eitthvað erfitt ... og þegar nemendur eru erfiðir er hægt að segja „æ, getur þú tekið þennan ... hann er bara búinn með mig ... að geta róterað svoleiðis og líka bara ... mér finnst bara ógeðslega gott að vinna með þeim. Við bætum hver aðra upp (úr viðtali við unglingastigs- teymi í skóla í dreifbýli).

23 Kostir við teymiskennslu
... þetta jafnar út dagsform ... við erum einhvern veginn svo ólíkir ... þegar hann á slæman dag, sefur illa ... þá sef ég oft sérstaklega vel ... og líður vel og svo öfugt ... (úr viðtali við miðstigsteymi í skóla í dreifbýli) ... ótrúlega margir ... nemendur hafa meira val um aðstoð ... við getum verið misjafnlega góð að útskýra námsefni ... okkar styrkur er mismunandi ... (úr viðtali við unglingastigsteymi í skóla í dreifbýli).

24 Kostir Þú getur alveg lent í því sem nemandi að vera með kennara í mörg ár sem þér líkar ekki við eða treystir ekki og þér líður ekki vel með honum. Hér gefur teymiskennslan möguleika (kennari í munnlegri skýrslu).

25 Sjónarhorn nemenda IS: En hvernig er að hafa svona tvo kennara?
Jú, sjáðu, maður getur fengið meiri hjálp Guðmundur útskýrir stærðfræðina miklu betur en það er betra að spyrja Gunnar um málfræðina Það er mjög gott – jú, sjáðu – til dæmis ef strákarnir eru óþægir getur annar kennarinn sinnt því, en hinn haldið áfram að kenna! Þeir eru svo miklu betri saman en sundur

26 Sjónarhorn nemenda IS: Hvernig er að hafa tvo stærðfræðikennara? Það er oft þægilegt að fá svona tvær ólíkar útskýringar ... þá færðu oft meiri dýpt. Sekkur betur ofan í efnið (nemandi í 9. bekk í viðtali).

27 Þroskaþjálfi í teyminu
IS (spyr þroskaþjálfann): Þú sérð fyrst og fremst kosti í þessu? Ég er vön því að hafa verið að taka nemendur út ... nú er ég bara inni í hópnum og það er ekki hægt að líkja því saman ... þú kynnist þeim allt öðruvísi og þau eru ekkert að upplifa sig sem einhverja sem er verið að taka út úr. Það er eitthvað svo frábært. Ég er vön því að vera með bekk og hún hefur verið að taka út nemendur og ég ætla heldur ekki að líkja þessu saman. Við erum báðar með puttana á því sem er að gerast. Ég veit hvað hún er að gera og við getum talað saman um það, borið saman bækur okkar – mér finnst þetta ólýsanlega gott. Ég get ekki hugsað mér að fara til baka ... ég held að við séum að mæta þeim miklu betur og við sjáum miklu meiri árangur. Ég hef aldrei séð jafn góðan árangur með krakka sem eiga við námsörðugleika að stríða ... eins og við erum núna að fá ... (Úr rýnihópaviðtali við teymi í þéttbýlisskóla)

28 Vandi Ákvarðanataka getur verið flókin því við þurfum að taka margar ákvarðanir saman. Þú þarft alltaf að bera undir annan ákvarðanir sem þarf að taka og það eru ekki allir alltaf sammála (viðtal við kennara í miðstigsteymi). Viðbragðssnjallir kennarar finna ráð

29 Fimmtán sekúndna spjallið
IS: Hvað gerið þið ef öðrum finnst hinn vera að taka vitlaust á málum? Við höfum ráð við því. Þá segir hinn: Má ég hitta þig hérna aðeins á bakvið ... og við eigum örstutt samráð ... tókum 15 sekúndna spjall ... veltum þessu upp eins einfalt og hægt er ... við berum virðingu fyrir hvor öðrum ... og treystum hvor öðrum ... málið er líka það að við spinnum ... og breytum stundum ... og þá nýtum við 15 sekúndna samtalið ... gerum þetta ... gerum þetta svona ... þetta er flott ... annar tekur af skarið ... og hinn ákveður að bakka það upp ... athugaðu að þetta er rosalega hnitmiðað ... (úr viðtali við miðstigsteymi í skóla í dreifbýli).

30 Til umhugsunar Skólum sem eru að innleiða teymiskennslu fjölgar jafnt og þétt Fullbókað er á ráðstefnu Samtaka áhugafólks um skólaþróun um teymiskennslu í ágúst – og langur biðlisti Áríðandi að kennarar taki sjálfir ákvörðun um hvort stíga eigi skref í þessa átt Sérstök sóknarfæri virðast tengjast sérkennslu

31 Og í lokin má aftur spyrja eins og Svanhildur Ólafsdóttir: Ef teymiskennsla er svarið hver er þá spurningin?


Download ppt "Er teymiskennsla árangursrík leið í skóla án aðgreiningar?"

Similar presentations


Ads by Google