Download presentation
Presentation is loading. Please wait.
1
„Do–Live–Well“ = „Gerðu líf þitt gott“
Moll, S.E., Gewurtz, R.E., Krupa, T,M, Law, M.C., Larivie`re, N. og Levasseur, M.
2
Guðrún Pálmadóttir Gerðu líf þitt gott
3
líkanið „gerðu líf þitt gott“
Guðrún Pálmadóttir líkanið „gerðu líf þitt gott“ Sameinar hugmyndir iðjuþjálfunarfræði og heilsueflingar Hlutdeild í iðju, athafnamynstur, samfélagþátttaka, tímanýting og athafnir sem hafa merkingu eru grunnhugtök í iðjuþjálfunarfræði Rannsóknir hafa sýnt fram á ótvíræð tengsl þessara fyrirbæra við líkamlega, andlega og félagslega heilsu og velferð fólks á öllum æviskeiðum Sífellt fleiri rannsóknir sem gefa sterkar vísbendingar um heilsueflandi áhrif iðju/athafna
4
Guðrún Pálmadóttir Þróun líkansins Rýning í hugmyndir og líkön um tengsl iðju, heilsu og velferðar CMOP-E, PEO, COPM matstækið Hugmyndir Wilcock um tengsl iðju og heilsu og Hammel um „öðruvísi“ flokkun á iðju Hugmyndir Matuska (og fleiri fræðimanna) um jafnvægi í iðju Líkön og hugmyndir utan iðjuþjálfunarfræði, þ.á.m. ICF Gagnrýnið mat á fræðilegum skrifum og rannsóknum til að gagnreyna tengsl iðju og heilsu Fólk á ýmsum aldri og við góða heilsu Fólk með skerðingar og/eða langvinna sjúkdóma
5
Guðrún Pálmadóttir Þróun líkansins, frh. Aðkoma hagsmunaaðila til að móta lykilhugtök og meginskilaboð. Hagsmunaaðilar úr hópi Lýðheilsufræða Heilsueflingar Iðjuþjálfunarfræði Heilbrigðisstarfsfólks „Almennra borgara“ Ólík sjónarmið => sameiginleg þekking og skilningur
6
„Gerðu líf þitt gott“ það sem þú gerir dags daglega skiptir máli
Guðrún Pálmadóttir „Gerðu líf þitt gott“ það sem þú gerir dags daglega skiptir máli Reynsluvíddir (dimensions of experience) Fjölbreytt reynsla er mikilvæg Athafnamynstur (activity patterns) Eðli reynslunnar skiptir máli Heilsa og velferð sem útkoma (health and wellness outcomes) Athafnir daglegs lífs hafa veruleg áhrif á heilsu og velferð Einstaklingsbundin og samfélagsleg öfl (personal and social forces) Margs konar öfl geta haft áhrif á reynslu, athafnamynstur og útkomu
7
PERSÓNULEG OG SAMFÉLAGSLEG ÖFL
Guðrún Pálmadóttir „GERÐU LÍF ÞITT GOTT“ REYNSLUVÍDDIR ATHAFNAMYNSTUR HEILSA OG VELFERÐ SEM ÚTKOMA PERSÓNULEG OG SAMFÉLAGSLEG ÖFL
8
Guðrún Pálmadóttir reynsluvíddir Reynsla sem hefur gagnreynd tengsl við heilsu og velferð – sjá töflu 1: Virkja líkamann, hugann og skynfærin – (Activating your body, mind, and senses) Vera í tengslum við aðra – (Connecting with others) Leggja af mörkum til samfélagsins og þjóðfélagsins – (Contributing to community and society) Sinna sjálfum sér – (Taking care of yourself) Skapa sér félagslegt og fjárhagslegt öryggi – (Building security/prosperity) Þróa með sér og tjá eigin sjálfsmynd – (Developing and expressing identity) Þróa með sér hæfileika og möguleika – (Developing capabilities and potential) Upplifa ánægju og gleði – (Experiencing pleasure and joy)
9
Guðrún Pálmadóttir athafnamynstur Athafnamynstur sem hafa gagnreynd tengsl við heilsu og velferð – sjá töflu 2: Hlutdeild (engagement) Merking (meaning) Jafnvægi (balance) Stjórn / val (control / choice) Venjur (routine)
10
Heilsa og velferð sem útkoma
Guðrún Pálmadóttir Heilsa og velferð sem útkoma Heilsa er ástand þar sem líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan er til staðar, en ekki eingöngu að vera án sjúkdóms eða veikleika (WHO, 1948) Nær ekki eingöngu til líkamlegrar og andlegrar heilsu heldur einnig til félagslegrar, tilfinningalegrar og „trúarlegrar“ (spiritual) velferðar Útkoman getur verið í formi forvarna, heilsueflingar og/eða lífsgæða fyrir einstaklinga og/eða samfélög „Blómstrun“ (flourishing) = það að vera hamingjusamur og farnast vel í lífinu Hugtak komið frá „jákvæðri sálfræði“ Ath. að útkoma af iðju/athöfnum er ekki alltaf jákvæð
11
Einstaklingsbundin og samfélagsleg öfl
Guðrún Pálmadóttir Einstaklingsbundin og samfélagsleg öfl Ýmis atriði sem hafa áhrif á hvað fólk tekur sér fyrir hendur og hvernig Dæmi um einstaklingsbundna þætti: Aldur, félagsleg staða, kyn, heilsufar, fötlun, gildismat, kynþáttur, læsi Hafa áhrif á möguleika t.d. til að skapa sér félagslegt / fjárhagslegt öryggi eða til að vera við stjórn Dæmi um samfélaglega þætti: Efnahagsmál, stjórnmál, stjórnsýsla, samgöngur, byggðaþróun Hafa áhrif á aðgengi og möguleika til að stunda t.d. að atvinnu, nám eða tómstundastarf Þessi hluti líkansins dregur athyglina frá því eingöngu að breyta einstaklingnum til þess að hafa áhrif á hið samfélaglega umhverfi
12
Guðrún Pálmadóttir Niðurstaða Ákveðin reynsla af iðju/athöfnum getur eflt heilsu og velferð Athafnamynstur hafa áhrif á það að hvaða marki fólk býr við góða heilsu og velferð Einstaklingsbundnir og samfélagslegir þættir geta haft úrslitaáhrif á möguleika fólks til hlutdeildar í heilsusamlegu athafnamynstri og til að öðlast jákvæða reynslu Líkanið er ekki starfslíkan heldur hugmyndafræðilegur heilsueflingarrammi fyrir einstaklinga og samfélög til að ígrunda eigin athafnamynstur og skoða hvaða möguleika fólk hefur til að verja tíma sínum á einhvern þann hátt sem eflir heilsu og velferð
Similar presentations
© 2025 SlidePlayer.com. Inc.
All rights reserved.