Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Forsetafræðsla 2011 Margar hendur vinna létt verk.

Similar presentations


Presentation on theme: "Forsetafræðsla 2011 Margar hendur vinna létt verk."— Presentation transcript:

1 Forsetafræðsla 2011 Margar hendur vinna létt verk

2 Um Kiwanis Alþjóðahreyfing stofnuð í Detroit 1915 Kiwanis í Evrópu 1963 Kiwanis á Íslandi stofnað 1964 Hekla Umdæmisstjórn. Umdæmisstjóri, ritari, gjaldkeri, erlendur ritari, verðandi og fráfarandi umdæmisstjóri ásamt 5 svæðisstjórum. Margar hendur vinna létt verk

3 Hvað er Kiwanis? Stutta og auðvelda svarið er. Kiwanis er alheimssamtök sjálfboðaliða sem hafa að markmiði að bæta heiminn með þjónustu í þágu barna. Margar hendur vinna létt verk

4 Kjörorð Umdæmisstjórnar 2011 - 2012 Kjörorð umdæmisstjórnar 2011 – 2012 District Board Motto Margar hendur vinna létt verk Good Cooperation gets the work done Markmið umdæmisins starfsárið 2011 – 2012 District Goals Vinna - Saman Standa - Saman Fjölga - Saman Gaman - Saman Margar hendur vinna létt verk

5 Höfði,Jöklar, Jörfi, Katla og þyrill voru áður í Eddusvæði. Básar, Elliði, Esja, Geysir og Hekla voru áður í Þórssvæði

6 Færeyjasvæði Margar hendur vinna létt verk Eysturoy, Rósan og Tórshavn Tilheyrðu áður Þórssvæði

7 Sögusvæði Margar hendur vinna létt verk Eldfell var græðlingsklúbbur frá Helgafelli er áfram í sama svæði Mosfell var áður í Grettissvæði

8 Óðinssvæði Margar hendur vinna létt verk Skjöldur og Drangey voru áður í Grettissvæði

9 Ægissvæði Margar hendur vinna létt verk Óbreytt nema Varða kemur inn sem fullgildur Kiwanisklúbbur

10 1. Lesa vel fræðsluefni forseta Kiwanis, sem er aðgengilegt á kiwanis.is 2. Skipa formenn nefnda og tilnefna nefndarmenn í samráði við þá. 3. Búa til starfsskrá fyrir árið í samráði við formenn nefnda. 4. Sjá til þess að félagatal sé leiðrétt og frágengið. Senda til umdæmisins, ásamt mynd af forseta. 5. Útvega sérstaka skjalamöppu, sem þú hefur eingöngu undir gögn, sem varða starf þitt sem forseti. MINNISPUNKTAR FYRIR FORSETA Margar hendur vinna létt verk

11 6.Ganga frá stjórnarskiptafundi við svæðisstjórann. Jafnframt að sjá til þess að embættismerki séu til í klúbbnum. Bæði fyrir nýja og fráfarandi embættismenn. 7. Fjárhagsáætlun sé tilbúin og samþykkt fyrir 1. nóvember 2011. 8. Fjárhagsáætlun þarf að berast svæðisstjóra með októberskýrslu. 9. Fjárhagsáætlun á að vera tvískipt: Félagssjóður og styrktarsjóður. 10. Gera ráð fyrir eftirfarandi í fjárhagsáætlun: a)Kostnaður vegna forseta á svæðisráðsfundi og afmælisfundi. b) Kostnaður vegna ritara á svæðisráðsfundi. c) Kostnaður vegna gjafa til klúbba sem eiga stórafmæli (5, 10, 15 ára o.s.frv.). MINNISPUNKTAR FYRIR FORSETA Margar hendur vinna létt verk

12 11.Fara yfir mánaðarskýrslur með ritara. 12.Nauðsynlegt er að ritari mæti á svæðisráðsfundi og hafi með fjölfaldaða skýrslu. B-skýrsla á að fylgja. Benda öðrum félögum á að þessir fundir eru opnir öllum Kiwanisfélögum. 13.Lesa upp skýrslu þá sem lögð var fram á svæðisráðsfundi og taka úrdrátt úr öðrum skýrslum frá klúbbum í svæðinu, á næsta félagsmálafundi í klúbbnum. 14.Athuga í upphafi starfsárs með þá félaga sem mætt hafa illa og kanna viðhorf þeirra. 15.Gera ráð fyrir einum fundi til að ræða markmið Kiwanis og klúbbsins MINNISPUNKTAR FYRIR FORSETA

13 16. Halda stjórnarfundi reglulega, að minnsta kosti 1x í mánuði. 17. Nauðsynlegt er að þú sért í góðu sambandi við svæðisstjórann 18. Mundu að þetta er þitt ár sem forseti. Þó forseti beri ekki einn ábyrgð á starfinu, getur áhugi þinn og elja skipt sköpum fyrir klúbbinn. Ekki vera hika við að breyta til, ef þú heldur að það hafi jákvæð áhrif. MINNISPUNKTAR FYRIR FORSETA

14 A.t.h. ekki vera ræða fjármál klúbbsins á öllum fundum. 15-20 mínútur á einum fundi á að duga fjárhagsnefnd til að klára öll mál. Fjármál geta verið leiðinleg

15 KIWANIS LEIÐBEININGAR UM NEFNDARSTÖRF

16 NEFNDIR OG NEFNDARSTÖRF Eigi Kiwanis- klúbbur að geta náð árangri í starfi er nauðsynlegt að nefndir starfi vel Margar hendur vinna létt verk

17 Nefndir í klúbbum þurfa: C Að vera skipaðar félögum sem geta hugsað sér að vinna saman að hlutverki viðkomandi nefndar og þar með starfsemi Kiwanisklúbbsins C Að halda fundi reglulega og skrá fundargerðir um fundi nefndanna og gefa skýrslu á almennum fundum klúbbsins sé þess krafist Margar hendur vinna létt verk

18 Yfirbragð Yfirbragð fundarins: Yfirbragð fundarins fer að verulegu leyti eftir framkomu þess, sem fundinum stjórnar. Stjórnandinn á að vera ákveðinn, án þess þó að vera um of og umfram allt kurteis og heiðarlegur. Hann verður ætíð að vera hlutlaus. Forseta ber að halda virðingu sinni og aldrei ætti hann að láta gamanyrði sín verða of gróf. Margar hendur vinna létt verk

19 Skynsemi Skynsamur forseti gerir sér far um að láta ekki líta svo út sem hann einn stjórni klúbbnum. Oft er skynsamlegt að fá einhvern annan félaga til að kynna þínar eigin hugmyndir og tillögur, en gera það ekki ætíð sjálfur. Forsetinn er miklu fremur dæmdur eftir því, hve áberandi forsetinn er í störfum klúbbsins. Margar hendur vinna létt verk

20 Málskrúð Stuttorður og gagnorður: Hafðu tilkynningar þínar til klúbbsins stuttorðar og gagnorðar. Vertu fljótur, án þess að flýta þér. Forseti verður að vera fljótur að skera úr ágreiningi, vera ákveðinn, en gæta fullrar kurteisi í hvívetna, gagnvart öllum klúbbfélögum. Margar hendur vinna létt verk

21 Haaa!!! Raddbeiting: Forsetinn á að tala þannig að allir heyri til hans. Það skiptir meira máli að tala skýrt og greinilega heldur en að tala hátt. Það verða allir að heyra hvert einasta orð. Margar hendur vinna létt verk

22 Fundarsettning. Fundarsetning: Nákvæmlega á þeirri stundu, sem fundur á að hefjast ber forseti í fundarbjölluna og segir fund settan. Margar hendur vinna létt verk

23 Fyrri hluti fundar: Á fyrri hluta Kiwanisfundar, er máltíðar neytt, menn ræða saman, mætingarkortum er safnað saman, gestir eru kynntir, fundargerð lesin og tilkynningar. Þessi hluti fundarins er algjörlega óformlegur. Þegar gestir eru kynntir, ætti að gera þeim ljóst, að ekki er ætlast til að þeir svari fyrir sig. Fundir fyrri hluti Margar hendur vinna létt verk

24 Fundir seinni hluti Síðari hluti fundar: Síðari hluti fundarins einkennist af því, að hann er í föstum skorðum, allt fer þar fram með virðuleik og ró. Það er svo forseti, eða einhver, sem hann til þess velur, sem kynnir ræðumanninn. Kynningin ætti ekki að vera það eitt að nefna nafn ræðumannsins. Segja skal frá manninum og því sem hann hefur gert. Gera skal ræðumanni grein fyrir lengd ræðu, td. 15 – 20 mínútur og leyfa annað eins í fyrirspurnir. Margar hendur vinna létt verk

25 Fundarslit: Kiwanisfundir skulu að jafnaði ekki vera lengri en 2 t í mar. Það er forsetinn, sem á að þakka r æ ðumanni fyrir, eða formaður dagskr á rnefndar. Forseti tilkynnir s í ðan, að fundi s é slitið. Mj ö g vel fer á þv í að þakka r æ ðumanni fyrir með þv í að afhenda honum sm á gj ö f. Fundarslit Margar hendur vinna létt verk

26 Fundarstjóri þarf að hafa í huga 1. Að kunna góð skil á lögum klúbbsins. 2. Hann þarf að vera röggsamur og ákveðinn. 3. Hann skal vera reiðubúinn að athuga réttlátar ábendingar fundarmanna. 4. Hann verður að vera hlutlaus og tekur því ekki þátt í málflutningi. Sjái hann nauðsyn á að taka til máls, þá skal hann afhenda öðrum fundarstjórn á meðan. 5. Vegna hlutleysis, hafa margir þá reglu, sem fundarstjórar, að taka ekki þátt í opinni atkvæðagreiðslu. 6. Fundarstjóri getur ef ókyrrð er, þurft að beita verulegri ákveðni til að kveða niður læti eða skarkala, láti fundarmenn ekki segjast við tilmæli, hefur hann vald til að fresta fundi þar til kyrrð hefur komist á. 7. Setja fund á réttum tíma og passa að fundir séu almennt ekki lengri en 2 tímar. Ræðumenn hafi 15 – 20 mínútur og fyrirspurnir annað eins. Margar hendur vinna létt verk

27 Ávörp á fundum Á v ö rp miðast við emb æ tti og skulu vera í á kveðinni r ö ð, eins og sýnt er h é r að neðan: Forseti viðkomandi kl ú bbs, eða fundarstj ó ri ef annar en forsetinn, er á vallt á varpaður fyrst. Ef fundarstj ó ri stýrir fundi, þ á er forseti á varpaður í ö ðru á varpi. Það n æ gir að forseti/fundarstj ó ri á varpi gesti með virðingarheitum í upphafi fundar. Þeir sem á eftir koma þurfa þ á aðeins að á varpa forseta/fundarstj ó ra og s í ðan gesti og f é laga. Ef einhver amb æ ttismaður Kiwanis er fyrirlesari, er hann á valt á varpaður með emb æ ttistitli. Margar hendur vinna létt verk

28 Ávörp á Kiwanisfundum: 1.Fundarstjóri/Forseti 2.Forseti 3.Umdæmisstjóri 4.Evrópuforseti 5.Kjörumdæmisstjóri 6.Fráfarandi umdæmisstjóri 7.Umdæmisritari 8.Umdæmisféhirðir 9.Svæðisstjóri 10.Aðrir embættismenn umdæmisins 11.Forsetar í öðrum klúbbum 12.Gestir 13.Kiwanisfélagar Margar hendur vinna létt verk

29 Ítrekun!!! Það n æ gir að forseti/fundarstj ó ri á varpi gesti með virðingarheitum í upphafi fundar. Þeir sem á eftir koma þurfa þ á aðeins að á varpa forseta/fundarstj ó ra og s í ðan gesti og f é laga. Margar hendur vinna létt verk

30 Svæðisstjóri framkvæmir stjórnarskipti. Svæðisstjóri tekur við stjórn fundarinns, en honum til aðstoðar er kjörsvæðisstjóri, sem nælir embættismerki í stjórnina. Framkvæmd stjórnarskipta á að vera virðuleg og hátíðleg stund. Dagsetningar, tímasetning og stað fyrir innsetningu embættismanna þarf að ganga frá þegar fræðsla er haldin fyrir forseta klúbbanna, eða í síðasta lagi á Umdæmisþingi. Svæðisstjóri þarf eftirfarandi upplýsingar minnst viku fyrir athöfnina: a) Staðfesting á dagsetningu, tímasetningu og stað athafnarinnar. b) Er þetta sérstakur atburður eða reglulegur fundur? c) Er mökum boðið til fundarins? d) Nöfn og staða allra fráfarandi stjórnarmanna og ebættismanna og hverjir verða viðstaddir. Svæðisstjóri ráðfæri sig við forseta klúbbsins um uppröðun og framkvæmd stjórnarskiptanna. Það þarf að vera nægilegt pláss. Stjórnarskipti Margar hendur vinna létt verk

31 Keðjunotkun  Allstaðar þar sem forseti kemur fram sem í nafni klúbbsins  Á fundum  Í heimsóknum í klúbba  Á svæðisráðstefnum og öðrum ráðstefnum  Á Afmælis- og Vigsluhátíðum og öðrum hátíðum  Við afhendingu gjafa.  Á Umdæmisþingi  Forseti skal taka keðju niður strax að athöfn lokinni Margar hendur vinna létt verk

32 Bjöllunotkun  Setningu og slit funda  Frestun fundar og þegar fundi er fram haldið  Þegar tilkynnt er um ákvarðarnir t.d. um styrkveitingar og fjáraflanir  Niðurstöður atkvæðagreiðslu  Litla bjallan er notuð til að kalla til fundar og minna félaga á að hafa hljótt á fundi Bjallan er notuð þegar tilkynnir eitthvað, t.d.: Bjallan er notuð þegar forseti tilkynnir eitthvað, t.d.: Margar hendur vinna létt verk

33 LEIÐBEININGAR fyrir ræðumenn

34 Tíu boðorð ræðumanns: Fyrsta:Byrjaðu ekki ræðu á afsökunum Annað: Notaðu ekki tölur í óhófi Þriðja:Vertu ekki of tilfinningasamur Fjórða:Íktu ekki Fimmta:Vertu ekki kaldhæðinn eða ófyrirleitin Sjötta:Vertu ekki leiðinlegur Sjöunda:Misþyrmdu ekki móðurmáli þínu Áttunda:Haltu þig við kjarna málsins Níunda:Eyddu ekki tíma áheyrenda að óþörfu Tíunda:Vertu ekki of háfleigur

35 Forðast ber: 1.Að hafa hendur í vösum 2.Að hringla í peningum eða lyklum 3.Að róa fram og aftur 4.Að klóra sér í höfðinu 5.Að leika sér með penna eða aðra hluti 6.Að taka sífellt ofan gleraugun 7.Að meðhöndla ræðublöðin í tíma og ótíma Umfram allt verið eðlileg

36 Hvatning: 1.Gangið að ræðupúltinu ákveðnum öruggum skrefum. 2.Beinið þunga líkamans á annan fótinn í einu og skiptið þannig stöðu í ræðustólnum, fremur en að standa stöðugt í báða fætur. 3.Hefjið aldrei flutning ræðu strax og þið komið í ræðustólinn. Bíðið þar til hlustendur eru tilbúnir að hlusta. 4.Í upphafi ræðu er gott að byrja á því að horfa yfir hlustendahópinn og horfast í augu við flesta viðstadda. 5.Þegar þið snúið ykkur í eina átt í salnum, þá talið beint til hlustenda í þeim hluta salarins. 6.Náið trúnaði hlustenda þegar í upphafi með því að sýna að þið séuð einn af þeim. 7.Beitið raddbreytingu, þegar efnið krefst þess. Takmark hvers ræðumanns er að breyta áhorfendum í áheyrendur

37 Upphaf og endir ræðu: Hvernig byrja skal ræðu: Persónuleg smáskrítla, vísa, málsháttur eða þín eigin reynsla, í stuttu máli. Berðu fram spurningu, næstu setningar gefa þér tilefni til að svara eigin spurningu. Berðu fram athyglisverða staðhæfingu, sem getur ýtt við áheyrendum. Gerðu eitthvað, einhverja athöfn og skýrðu svo frá hversvegna. Hvernig enda skal ræðu: 1.Samantekt. - Umfram allt ekki þreytandi endurtekning. 2.Tillaga. - Segðu áheyrendum þínum nákvæmlega til hvers þú ætlast af þeim. 3.Gerðu tilboð. 4.Farðu fram á aðgerðir. 5.Ljúktu ræðunni á þeim tíma sem þú lofaðir. Upphaf og endir ræðu er sá hluti ræðunnar sem áheyrendur muna helst. Fyrstu orðin ættu því að miðast við að ná tökum á áheyrendum.

38 Frábær klúbbur. Margar hendur vinna létt verk

39 Frábær klúbbur Margar hendur vinna létt verk Frábær klúbbur kemur á framfæri metnaðarfullri fræðslu og reynslu til allra klúbbfélaga. Með því að segja frá jákvæðri klúbbreynslu, fræðslu og hvatningu, tekur þú mikilvæg skref til að viðhalda krafti og styrk til að fjölga í Kiwanis. Þú getur hjálpað klúbbnum þínum og félögum með því að segja frá þinni klúbbreynslu. Það er á ábyrgð félaga klúbbsins að gera klúbbinn sterkari og betri. Þetta er ekki próf, þú munt ekki falla - aðeins könnun til að sjá hvað megi betur fara í klúbbnum þínum.

40 0 = aldrei 1 = sjaldan 2 = stöku sinnum 3 = oft 4 = alltaf Fjölgun félaga: _____ Það er virk fjölgunarnefnd í klúbbnum. _____ Það er farið í fjölgunarherferð einu sinni á ári. _____ Klúbburinn setur sér markmið um raun fjölgun _____ Nýjir félagar eru hvattir til að bjóða vinum sínum til að ganga til liðs við klúbbinn. _____ Félagar sem eru meðmælendur með nýjum félögum, fá viðurkenningu fyrir. _____ Gestir eru alltaf boðnir velkomnir og kynntir á klúbbfundum. _____ Nýjir félagar eru teknir inn í klúbbinn á virðulegan hátt. _____ Nýjir félagar eru teknir í fræðslu um Kiwanis. Margar hendur vinna létt verk

41 0 = aldrei 1 = sjaldan 2 = stöku sinnum 3 = oft 4 = alltaf Þjónusta í byggðarlaginu: _____ Klúbburinn gerir könnun á þörf fyrir þjónustu í samfélaginu amk. annað hvert ár. _____ Klúbburinn veitir félögum viðurkenningu fyrir þátttöku í verkefnum. _____ Flestir klúbbfélagar taka þátt í verkefnum á vegum klúbbsins. _____ Hugmyndir um ný verkefni eru oft ræddar innan klúbbsins. Margar hendur vinna létt verk

42 0 = aldrei 1 = sjaldan 2 = stöku sinnum 3 = oft 4 = alltaf Samskipti og markaðssetning: _____ Klúbburinn okkar er með virka almannatengslanefnd. _____ Frásögnum af verkefnum fyrir börn er komið til fjölmiðla. _____ Frásögnum af verkefnum okkar er reglulega gerð skil í fjölmiðlum. _____ Félagar eru vel merktir þegar unnið er að verkefnum fyrir Kiwanis. _____ Merki Kiwanis er sýnilegt þegar unnið er að fjáröflunum og verkefnum. _____ Félagar eru duglegir við að kynna öðrum Kiwanis. _____ Klúbburinn er með vefsíðu sem er uppfærð reglulega. Margar hendur vinna létt verk

43 0 = aldrei 1 = sjaldan 2 = stöku sinnum 3 = oft 4 = alltaf Fræðsla og reynsla félaga: _____ Klúbburinn sendir verðandi embættismenn í fræðslu. _____ Klúbburinn sendir fulltrúa á umdæmisþing á hverju ári. _____ Fundir í klúbbnum eru skemmtilegir, skipulagðir og árangursríkir. _____ Væntingar eru til þess að klúbburinn sé fyrirmyndarklúbbur á hverju ári. _____ Klúbburinn gefur út félagatal sem innheldur dagskrá starfsársin _____ Klúbburinn stendur fyrir skemmtunum fyrir félaga, fjölskyldu og gesti á hverju ári. Stig samtals : Margar hendur vinna létt verk

44 Mat á frábærum klúbb. Niðurstöður: Það sem er svo gott við Kiwanis er að klúbbarnir eru með mismunandi verkefni og menningu. Markmiðin eru þau sömu fyrir alla Kiwanis fjölskylduna - að bjóða fram frábæra þjónustu í samfélagi okkar og mun sú reynslu verða þess valdandi að nýjir félagar ganga til liðs við okkur. Notið niðurstöður úr þessari könnun til að búa til eins til þriggja ára stefnumótun til hagsbóta fyrir klúbbinn ykkar. Niðurstöður stiga: Ertu með 80 stig eða meira? Til hamingju. Klúbburinn er mjög góður, starfið er gott og haldið áfram á sömu braut. Fagnið árangrinum og finnið leiðir til að gera góðan klúbb betri. Margar hendur vinna létt verk

45 Ertu með 60 til 80 stig? Vel gert. Byggið á þeim styrkleika sem þið hafið í klúbbnum. Ef þið eruð ekki örugg með hvar á að byrja, byrjið á klúbbfundum. Upplifun gesta af fyrsta fundi segir allt. Ef fundur er ekki skemmtilegur hugsar gesturinn sig tvisvar um áður en hann kemur aftur. Skoðaðu þá liði sem þú svaraðir með 1, 2 eða 3 og sjáðu hvort þú getir bætt þá. Eru stigin þín færri en 60? Þakka þér fyrir að vera heiðarlegur. Fyrsta skrefið er að viðurkenna að breytinga er þörf. Hvar byrjar þú? Áður en gesti er boðið á fund, ræðið hvernig hægt er að gera fundinn áhugaverðari. Farið í innri greiningu og stefnumótum og árangurinn mun ekki á sér standa. Margar hendur vinna létt verk

46 Takk fyrir. Allt efnið sem farið var yfir á þessari fræðslu er aðgengilegt inn á Kiwanis.is Margar hendur vinna létt verk Fræðsluefni.

47 Umdæmisstjórnarfundir 2011-2012 25. september 2011 Hornafjörður 26.nóvember 2011 Reykjavík 17. mars 2012 Reykjavík 14. september 2012 Reykjanesbær Margar hendur vinna létt verk


Download ppt "Forsetafræðsla 2011 Margar hendur vinna létt verk."

Similar presentations


Ads by Google