Download presentation
Presentation is loading. Please wait.
1
Að byggja á góðum grunni Ragnheiður Gísladóttir Verkefnisstjóri í frístundaheimilinu Vík
2
Frístundaheimilið Vík Veturinn 2005-2006 voru ca. 35 börn í vistun. Síðast liðinn vetur voru börnin ca. 86, þegar þau voru sem flest. Starfsmenn að meðaltali 8 á degi hverjum, veturinn 2009-2010. Öll aðstaða frístundaheimilisins inni í skólanum. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
3
Frístundaheimilið Vík Í upphafi var lítið um sýnilegt eða myndrænt skipulag fyrir börnin. Mikið var um að börnin þyrftu að bíða í röðum við ýmsar aðstæður. Lítið var um skipulagða verkaskiptingu starfsfólksins á staðnum. Virkni og þátttaka barnanna í uppbyggingu á starfinu var lítil. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
4
Fyrsta skóflustungan Markmiðin Að efla samskiptafærni barnanna. Að auka félagsfærni barnanna. Að styrkja sjálfsmynd barnanna. Að efla virkni og þáttöku barnanna. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
5
Byrjað að byggja grunninn Myndrænt val með ritmáli - börnin velja sér svæði eftir áhugasviði og/eða vinahópum. - algjör undantekning ef tímamörk eru á svæðunum. - börnin geta haft áhrif á það sem er í vali á hverjum degi. - börnin bera ábyrgð á því að flytja nöfnin sín á milli svæða. - börnin bera ábyrgð á því að virða fjöldatakmörk á svæðum, þar sem það á við. - börnin bera ábyrgð á því að ganga frá eftir sig á valsvæði. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
6
Byrjað að byggja grunninn Sýnilegt skipulag fyrir starfsmenn. Hver og einn starfsmaður er með ákveðin verk yfir daginn sem hann ber ábyrgð á. Starfsmenn rúlla á milli svæða og vinna mismunandi verk á degi hverjum. Starfsmenn hafa áhrif á verkskiptingu. Einnig farið eftir áhugasviði starfsmanna hvernig verkaskiptingu er háttað á frístundaheimilinu. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
7
Byrjað að byggja grunninn Flæði – Flæði – Flæði Lögð er mikil áhersla á að hafa flæði fyrir börnin. Nánast allar raðir teknar út. Áhersla lögð á að starfsmenn séu komnir á sínar starfsstöðvar þegar börnin koma í frístundaheimilið. Börnunum kennt að bera ábyrgð á því að láta vita hvert þau eru að fara (valtafla) og einnig kennt að þau geti borið ábyrgð á því að fara á milli svæða án þess að sýna óæskilega hegðun á leiðinni. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
8
Byrjað að byggja grunninn Hlýleiki, snyrtileiki og góður frágangur hafður að leiðarljósi. Í leikskóla er lögð áhersla á að börnin læri að ganga vel um og séu dugleg við frágang. Mikilvægt að halda í þessa færni og efla hana enn meira inn á frístundaheimilum. Lögð er áhersla á að starfsmenn tileinki sér góða umgengni. Í augum foreldra og annarra, segir umgengni oft mikið til um innra starf á frístundaheimilinu. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
9
Grunnurinn Nú er grunnurinn kominn Sýnilegt skipulag fyrir börnin Sýnilegt skipulag fyrir starfsmenn. Flæði í öllu starfinu. Hlýleiki, snyrtileiki og góður frágangur. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
10
Á bjargi byggði hygginn maður hús..... Ofan á grunninn koma svo óteljandi spennandi og skemmtilegir hlutir: Klúbbastarf. Vinna með elstu börnunum (3. og 4. bekkur). Hugmyndabankar. Þemavinna. Krakkafundir. Skilaboðaskjóða fyrir börnin. Samstarf við skóla, leikskóla og aðra aðila í hverfinu. Upplýsingatöflur fyrir börn, starfsfólk og foreldra. Ýmsir árvissir viðburðir, t.d. jólakaffi, páskaratleikur o.m.fl. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
11
Þegar góður grunnur er kominn á Þá eru möguleikarnir óteljandi í þróun á starfinu. Samvinna á meðal barna og starfsmanna er frábær. Vellíðan barna og starfsmanna er augljós. Öryggi og gagnkvæm virðing einkennir starfið hjá börnum og starfsmönnum. Foreldrar ánægðir. Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
12
Að lokum... Hvet ég ykkur til að koma í málstofuna eftir hádegi um skipulag á innra starfi tómstundaheimila. Takk fyrir mig Að byggja á góðum grunni - RG apríl 2010-
Similar presentations
© 2025 SlidePlayer.com. Inc.
All rights reserved.