Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Ríkisendurskoðun Stjórnsýsluendurskoðun Kristín Kalmansdóttir, viðskiptafræðingur, CIA Stjórnsýslusvið Ríkisendurskoðunar Morgunverðarfundur FIE 10. febrúar.

Similar presentations


Presentation on theme: "Ríkisendurskoðun Stjórnsýsluendurskoðun Kristín Kalmansdóttir, viðskiptafræðingur, CIA Stjórnsýslusvið Ríkisendurskoðunar Morgunverðarfundur FIE 10. febrúar."— Presentation transcript:

1 Ríkisendurskoðun Stjórnsýsluendurskoðun Kristín Kalmansdóttir, viðskiptafræðingur, CIA Stjórnsýslusvið Ríkisendurskoðunar Morgunverðarfundur FIE 10. febrúar 2010

2 Ríkisendurskoðun Efnisyfirlit Ríkisendurskoðun Stjórnsýsluendurskoðun Ferli stjórnsýsluúttekta Starfsáætlun stjórnsýslusviðs 2009-2011 Nokkrar úttektir í kjölfar efnahagshrunsins Önnur atriði tengd efnahagsástandinu

3 Ríkisendurskoðun Forsagan I Endurskoðun landsreikninga fluttist til Íslands frá Kaupmannahöfn 1879 –Með stjórnarskránni 1874 öðlaðist Alþingi bæði löggjafarvald í svokölluðum sérmálum og fjárveitingavald –Hin umboðslega endurskoðun var sjálfstæð sýslan með sérstakan starfsmann Stjórnarráðið sett á laggirnar 1904 –Endurskoðun landsreikninga var fyrst í höndum starfsmanna skrifstofu III í hinu nýja Stjórnarráði sem sá m.a. um fjárreiður ríkisins –Féll undir fjármáladeild, þ.e. fjármálaráðuneytið, þegar hinar formlegu deildir Stjórnarráðsins urðu þrjár árið 1917

4 Ríkisendurskoðun Forsagan II Aðalendurskoðandi 1931 –Löggjöf um ríkisbókhald og endurskoðun ríkisreiknings –Sérstök endurskoðunarskrifstofa en heyrði undir fjármálaráðherra –Nafnið breyttist formlega í Ríkisendurskoðun með lögum nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands en hafði þá fest sig í sessi í talmáli um langt skeið –Var ráðuneytisskrifstofa frá 1904 til 1987 Lög um Ríkisendurskoðun nr. 12/1986 – tóku gildi 1. jan. 1987 –Fluttist undir Alþingi og varð þar með óháð framkvæmdarvaldinu –Markmið laganna m.a. að efla eftirlitshlutverkið – liður í því er 9. grein laganna sem kveður á um heimild til að framkvæma stjórnsýsluendurskoðun –Stjórnsýsluendurskoðun þó frá 1979 en í mjög takmörkuðum mæli – Siglingamálastofnun ríkisins

5 Ríkisendurskoðun Starfsemin er þáttur í eftirliti þingsins með framkvæmdarvaldinu Endurskoðar ríkisreikning og reikninga ríkisaðila Aðstoðar þingnefndir – einkum fjárlaganefnd Er engum háð í störfum sínum en forsætisnefnd getur krafið hana um skýrslur – stofnunin ákveður afmörkun og framkvæmd –Beiðnum hefur fækkað á síðustu árum –Hugsanlega vegna þess að Ríkisendurskoðun reynir að fylgjast betur með en áður

6 Ríkisendurskoðun Hlutfallsleg skipting virkra vinnustunda eftir verkefnum 2008

7 Ríkisendurskoðun Ríkisendurskoðun hefur heimild til að endurskoða... Allar stofnanir, sjóði, félög og fyrirtæki –þar sem kostnaður eða reikningslegt tap er greitt af ríkissjóði –sem ríkið á að hálfu eða meira þó öðrum sé falin fjárhagsendurskoðun hjá þeim Starfsemi eða þjónustu sem ríkið greiðir fyrir en sveitarfélög eða einkaaðilar annast samkvæmt samningi Ýmsa styrki og greiðslur

8 Ríkisendurskoðun Stjórnsýsluendurskoðun Ríkisendurskoðun sækir heimild sína til stjórnsýsluendurskoðunar í 9. gr. laga nr. 86/1997 um Ríkisendurskoðun en þar eru ítarlegri ákvæði en í lögum nr. 12/1986 Markmið stjórnsýsluendurskoðunar er að veita ráðuneytum, stofnunum og fyrirtækjum nauðsynlegt aðhald í rekstri með því að draga fram frávik frá gildandi lögum, reglum, kröfum og/eða markmiðum um hagkvæmni, skilvirkni og árangur í rekstri

9 Ríkisendurskoðun Stjórnsýsluendurskoðun felst í að... Lög nr. 86/1997 um Ríkisendurskoðun Kanna meðferð og nýtingu ríkisfjár Meta hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins Skoða hvort gildandi lagafyrirmælum sé framfylgt í þessu sambandi

10 Ríkisendurskoðun Alþjóðlegir staðlar Við stjórnsýsluendurskoðun er höfð hliðsjón af alþjóðlegum stöðlum INTOSAI – alþjóðleg samtök ríkisendurskoðenda Jafnframt er mikið samstarf við EUROSAI – Evrópusamtök ríkisendurskoðenda Ríkisendurskoðun er aðili að bæði INTOSAI og EUROSAI Innan samtakanna er lögð vaxandi áhersla á að ríkisendurskoðendur aðildarlandanna innleiði alþjóðlegu staðlana í starfsemi sína

11 Ríkisendurskoðun Eftirfylgd með lýðræðislegri ábyrgð stjórnvalda – ein af áherslum staðlanna Stjórnsýsluendurskoðun er ein aðferða ríkisendurskoðana um heim allan til að sinna því meginhlutverki sínu að stuðla að lýðræðislegri ábyrgð stjórnvalda á skynsamlegri og markvissri meðferð og nýtingu almannafjár Lýðræðisleg ábyrgð (public accountability) felur í sér að þeir sem höndla með skattfé verða að svara fyrir forgangsröðun og framkvæmd verkefna og sýna fram á að opinber rekstur sé skilvirkur og árangursríkur Til þess verða upplýsingar um verkefnin að liggja fyrir Stjórnsýsluendurskoðun stuðlar að því að löggjafinn, skattgreiðendur, stjórnendur, fjölmiðlar og fleiri hafi kost á að öðlast innsýn í rekstur ríkisins og veita stjórnvöldum nauðsynlegt aðhald

12 Ríkisendurskoðun Breyttar áherslur í opinberri stjórnsýslu Stofnunum og fyrirtækjum ríkisins er nú veitt aukið svigrúm frá því sem áður var til að haga rekstri sínum eftir aðstæðum svo lengi sem fjárlög leyfa Samhliða taka þau á sig aukna ábyrgð á að bæta árangur sinn og ná settum markmiðum Þetta hefur í för með sér Aukna þörf fyrir virkt eftirlit og aðhald Fleiri ábendingar um það sem betur má fara í stjórnun og rekstri stofnana og ríkisfyrirtækja og þar með fleiri tillögur til úrbóta

13 Ríkisendurskoðun Hverju á stjórnsýsluendurskoðun að skila? Niðurstöðum sem skal kynna fyrir hlutaðeigandi stjórnvöldum, t.d. Alþingi, ráðuneyti, stofnunum eða öðrum aðilum Reglur forsætisnefndar um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar frá febrúar 2008 –ætlað að formfesta betur samskipti stofnunarinnar við þingið og tryggja að fastanefndir, og eftir atvikum Alþingi, fjalli um skýrslurnar –styrkir eftirlitshlutverk stofnunarinnar Vekja athygli á því sem talið er að betur megi fara í rekstri og starfsemi, t.d. varðandi skipulagningu, rekstur, starfsmannamál, eftirlit, markmiðssetningu og verklag Setja fram faglegar og raunhæfar tillögur til úrbóta Meira en 80 skýrslur hafa verið unnar frá árinu 1987 – bæði um stofnanir ríkisins og málaflokka

14 Ríkisendurskoðun Árangursmat Dæmi um mælikvarða –Fjöldi ábendinga sem framkvæmdar hafa verið 3 árum eftir útkomu skýrslu – getur verið nokkuð huglægt mat, sérstaklega í eldri skýrslum 2007 – eftirfylgni á úttektum frá árinu 2004 2008 – eftirfylgni á úttektum frá árinu 2005

15 Ríkisendurskoðun Áhersla er lögð á að skoða... Hagkvæmni: Er gætt að sparnaði og ráðdeild í rekstri? (Economy – keeping the costs low) Skilvirkni: Eru framleiðni og afköst nægjanleg eða viðunandi? (Efficiency – making the most of available resources) Markvirkni: Hefur tekist að ná settum markmiðum? (Effectiveness – achieving the stipulated aims or objectives)

16 Ríkisendurskoðun Hagkvæmni Hagkvæmni lýsir kostnaði við rekstur eða rekstraraðföng (ráðdeild, sparnaði) Er kostnaður vegna rekstraraðfanga innan tiltekinna marka miðað við magn þeirra, gæði, nýtingu og þörf? –Eru húsnæði og búnaður stofnunar vel nýtt? –Er mannafli skipulagður með tilliti til hámarksafkasta? –Er leitast við að kaupa vörur og þjónustu á eins hagstæðu verði og mögulegt er, t.d. í útboðum?

17 Ríkisendurskoðun Skilvirkni Skilvirkni lýsir sambandi aðfanga (fjármagns, vinnuframlags) og afurða (magn þjónustu eða framleiðsluvara) Horft er til framleiðni fjármagns annars vegar og framleiðni vinnuafls hins vegar –Hvað kostar að mennta einn viðskiptafræðing? –Hvað sinnir einn heilsugæslulæknir mörgum sjúklingum á dag?

18 Ríkisendurskoðun Markvirkni (árangur) Markvirkni lýsir tengslum markmiða og útkomu (árangurs eða áhrifa) –Hafa markmið stjórnvalda (lög, stefna í tilteknum málaflokkum) gengið eftir og haft tilætluð áhrif? Fullnægja framhaldsskólar lágmarkskröfum um skólahald? –Nær stofnun þeim mælanlegu markmiðum sem fram koma í árangursstjórnunarsamningi við ráðuneyti?

19 Ríkisendurskoðun Ferli stjórnsýsluúttekta I Verkefnaval – með tvenns konar hætti –Ríkisendurskoðun ákveður að ráðast í úttekt byggt á greiningu á fjárhagslegu eða samfélagslegu mikilvægi áhættu í rekstri og starfsumhverfi. –Brugðist við aðsendum beiðnum um úttektir – fylgja ekki alltaf formlegu ferli stjórnsýsluúttekta Ríkisendurskoðun ákveður afmörkun og framkvæmd Forkönnun –Aðalúttekt ótímabær eða ávinningur minni en kostnaður – lokið með stuttu bréfi til málsaðila –Nauðsynlegum ábendingum komið á framfæri án frekari athugunar - lokið með stuttri, opinberri skýrslu og bent á atriði til úrbóta –Ávinningur af aðalúttekt – úttektaráætlun samin, afmörkun skilgreind og úttektarspurningar ákveðnar, æskilegar aðferðir valdar og tiltekinn nauðsynlegur tími og mannskapur

20 Ríkisendurskoðun Ferli stjórnsýsluúttekta II Aðalúttekt og skýrslugerð –Leitast við að fylgja úttektaráætlun –Safna saman, greina og meta á hlutlægan og faglegan hátt þau gögn sem svara úttektarspurningum –Draga niðurstöður saman í skýrslu. Setja fram skýrar og rökstuddar ábendingar um þau vandamál sem komu í ljós og möguleika til úrbóta –Drög send til umsagnar til hlutaðeigandi aðila og endanleg skýrsla síðan birt opinberlega á heimasíðu Ríkisendurskoðunar Eftirfylgni, í síðasta lagi að þremur árum liðnum –Þremur árum eftir lok aðalúttektar er árangur úttektar metinn, þ.e. viðbrögð stofnunar, ráðuneytis eða Alþingis við ábendingum Ríkisendurskoðunar. –Niðurstöður settar fram í eftirfylgniskýrslu og birtar á heimasíðu Ríkisendurskoðunar –Getur leitt til nýrrar úttektar

21 Ríkisendurskoðun Áherslur í starfi 2009–2011 Í starfsáætluninni er athygli einkum beint að vandamálum sem íslensk stjórnvöld og ríkisstofnanir standa frammi fyrir vegna hruns innlenda fjármálakerfisins haustið 2008 –minnkandi ríkistekjur og áætlaður samdráttur í opinberum rekstri –fyrirhuguð endurskipulagning opinberrar þjónustu Helstu áhersluþættir –Úttektir sem beinast að sparnaðaraðgerðum ríkisins –Úttektir sem fela í sér aukið samtímaeftirlit –Efla sveigjanleika í starfi sérfræðinga –Skýrari afmörkun efnis –Hraðari málsmeðferð –Auka áherslu á þverfaglegt samstarf milli sviða –Auka sýnileika Ríkisendurskoðunar

22 Ríkisendurskoðun Áætlaðar úttektir 2009 - 2011 Innkaup ríkisins á vörum og þjónustu Kaup á þjónustu heilsugæslulækna Fjármálastjórnun ráðuneyta Ráðningarmál ríkisins (frá ráðningu til starfsloka) Áformuð sameining ríkisstofnana Árangursstjórnun ríkisstofnana/ríkisverkefna Styrkir og framlög ríkisins til einkaaðila Virkni opinbers eftirlits Örúttektir á sérstaklega völdum stofnunum - sem eiga við fjárhagsvanda að etja eða eru undir miklu álagi vegna samdráttar og aukinna krafna um hagræðingu Eftirfylgniskýrslur (vegna úttekta síðastliðinna ára) Nánari afmörkun í verkefnaáætlunum Listinn ekki tæmandi - verkefnaval er í sífelldri endurskoðun – ræðst af fjárhagslegu mikilvægi og mati á því hvort starfsemi/verkefni sé nægilega hagkvæm, skilvirk eða árangursrík.

23 Ríkisendurskoðun Dæmi um aðsent erindi í kjölfar efnahagshrunsins – sveitarfélagið Álftanes Vissir þættir sem snerta fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftaness skoðaðir –Ekki hefðbundin fjárhags- eða stjórnsýsluúttekt enda falla málefni sveitarfélaga að jafnaði ekki undir skoðunarumboð stofnunarinnar –Aðkoma Ríkisendurskoðunar í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga –Unnið skv. samkomulagi milli Ríkisendurskoðunar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga Úttektin beinist að tveimur atriðum: 1.Mat á sjónarmiðum sveitarstjórnar um að gildandi reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga taki ekki nægilega mikið tillit til aðstæðna í sveitarfélaginu, sérstaklega hvað varðar rekstur grunnskóla 2.Meta hvaða einstakar ákvarðanir bæjarstjórnar hafa leitt sveitarfélagið í þá fjárhagslegu stöðu sem það er nú í, hvort umræddar ákvarðanir hafi verið í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og hvort upplýsingaskyldu hafi verið sinnt með lögmætum hætti

24 Ríkisendurskoðun Dæmi um úttektir sem koma í kjölfar efnahagshrunsins – beint eða óbeint Fjármálastjórn ráðuneyta og skil rekstraráætlana (í samstarfi við önnur svið) Fjármálastjórn 50 stofnana (í samstarfi við önnur svið) Framkvæmd fjárlaga 2009 – jan. til ág.(í samstarfi við önnur svið) Innkaup ríkisins á vörum og þjónustu (í samstarfi við önnur svið) Undirbúningur sameininga í ríkisrekstri

25 Ríkisendurskoðun Fjármálastjórn ráðuneyta og skil rekstraráætlana I Í ársbyrjun 2009 ákvað Ríkisendurskoðun að gera átak í eftirliti með fjármálastjórn ráðuneyta og stofnana Sjónum var einkum beint að skilum stofnana á rekstraráætlunum til ráðuneyta, skráningu þeirra í bókhalds- og fjárhagskerfi ríkisins (Oracle) og eftirliti með framkvæmd þeirra Einnig voru kannaðir vissir þættir innra eftirlits og hvort ráðuneytin hefðu reynt að meta áhrif samdráttar fjárveitinga á magn og gæði þjónustu

26 Ríkisendurskoðun Fjármálastjórn ráðuneyta og skil rekstraráætlana II Svara var m.a. leitað við eftirfarandi spurningum: Hafa orðið breytingar á eftirliti með framkvæmd fjárlaga? Hvernig mega stofnanir nýta ónýttar fjárheimildir á árinu? Verður uppsafnaður halli fluttur milli ára? Hafa áherslur vegna innkaupa, ferðakostnaðar, risnu o.fl. breyst? Hafa verið gerðar einhverjar áætlanir um sparnaðarmöguleika, t.d. til að undirbúa fjárlög 2010? Hefur verið lagt mat á áhrif samdráttar fjárveitinga á rekstur einstakra stofnana, t.d. gæði og magn þjónustu? Hefur verið lagt mat á hvort álag á einstaka stofnanir mun aukast? Hver ákveður hvar er skorið niður í starfsemi einstakra stofnana? Hvernig verður fylgst með að stofnanir nái markmiðum sínum?

27 Ríkisendurskoðun Fjármálastjórn ráðuneyta og skil rekstraráætlana III Helstu niðurstöður – 1. jan. til 31. mars 2009 – skýrslan kom út í júní 2009 10 af 233 áætlunum hafði verið skilað innan þeirra tímamarka sem reglugerð kveður á um, þ.e. fyrir árslok 2008 og 14 áætlanir höfðu verið samþykktar innan tímamarka, þ.e. fyrir miðjan janúar Af 222 samþykktum rekstraráætlunum höfðu 179 verið skráðar í Oracle í byrjun maí eða um 81% Nokkur ráðuneyti höfðu ákveðið að auka eftirlit með framkvæmd fjárlaga með því að bera oftar saman rekstur og áætlanir stofnana, þ.e. mánaðarlega í stað ársfjórðungslega eins og almennt tíðkast Rekstrarstjórar ráðuneytanna höfðu sameinast um að þrýsta á stjórnvöld að flýta ákvörðun um útgjaldaramma ráðuneyta á árinu 2010 en fyrr gat undirbúningur sparnaðaraðgerða ekki hafist fyrir alvöru

28 Ríkisendurskoðun Fjármálastjórn ráðuneyta og skil rekstraráætlana IV Helstu ábendingar – 1. jan. til 31. mars 2009 – skýrslan kom út í júní 2009 Ráðuneyti geri áætlun ef stofnun skilar ekki Skylt verði að gera áætlanir fyrir nær alla fjárlagaliði (er um 50% nú) Allar samþykktar rekstraráætlanir skráðar í Oracle – samtímaeftirlit eftirlitsaðila marklaust ef ekki er aðgangur að áætlunum Ráðuneytin samræmi eftirlit –Rekstur stofnana borinn saman við áætlun mánaðarlega Ákvörðun útgjaldaramma 2010 yrði flýtt Væntanleg áhrif niðurskurðar á þjónustu yrði metin –Stofnanir geri grein fyrir því hvernig lækkun fjárveitinga verði mætt Settar yrðu reglur um meðferð ónýttra fjárheimilda –Samræmdar –Hámark á ónýttar heimildir sem má flytja yfir áramót –Setja í reglugerð um framkvæmd fjárlaga

29 Ríkisendurskoðun Fjármálastjórn 50 stofnana I Í mars 2009 ákvað Ríkisendurskoðun að kanna sérstaklega fjármálastjórn 50 stofnana vegna efnahagsástandsins Markmið –Meta gæði rekstraráætlana og þar með hvort líkur væru á að fjárlög 2009 héldu –Kanna hvort mótaðar hefðu verið áætlanir um hagræðingu í rekstri og hvort og þá hvaða áhrif hún myndi hafa á magn og gæði þjónustu –Draga fram upplýsingar um bókhald –Kanna hvort og þá til hvaða ráðstafana stofnanir hefðu gripið til að bregðast við væntanlegum niðurskurði árið 2010

30 Ríkisendurskoðun Fjármálastjórn 50 stofnana II Val á stofnunum byggðist á eftirfarandi atriðum, einu eða fleirum –Mikill uppsafnaður halli –Hallarekstur um margra ára skeið –Hátt hlutfall sértekna og/eða markaðra tekna –Fjárveitingar samkvæmt reiknilíkönum –Vænta má mikils álags vegna efnahagsástandsins –Mikill samdráttur fjárveitinga –Viðskiptavinir og umbjóðendur þeirra þrýsta á um þjónustu

31 Ríkisendurskoðun Fjármálastjórn 50 stofnana III Helstu niðurstöður – birtar í júní 2009 –Flestar stofnanir stutt á veg komnar við undirbúning lækkunar fjárveitinga árið 2010 – útgjaldarammar ráðuneyta lágu ekki fyrir –Nokkrar stofnanir höfðu hafið vinnu við forgangsröðun verkefna vegna niðurskurðar –Líkur á að fjárlög ársins héldu hjá 28 st. en að óbreyttu ekki hjá 12 –Fjárhagsstaða 8 þeirra svo alvarleg að bregðast þurfti tafarlaust við –Rekstraráætlanir oftast vel unnar og eftirlit með framgangi reglulegt –Álag hafði aukist mikið hjá mörgum st. vegna ástandsins – aukin eftirspurn eftir þjónustu á sama tíma og t.d. yfirvinna var skorin niður. –Hjá mörgum stofnunum gáfu þriggja mánaða tölur ekki nægilega rétta mynd Tekjur ekki bókaðar nógu reglulega Útgjalda- og tekjudreifing önnur en áætlað var Stofnanir nota aðra áætlun en þá sem skráð er í Oracle

32 Ríkisendurskoðun Framkvæmd fjárlaga I Efnahagsástandið kallar á mjög aukið aðhald með útgjöldum ríkisins og meiri aga við framkvæmd fjárlaga. Enn meiri áhersla er nú lögð á að ráðuneyti og stofnanir –fylgi fjárlögum –gæti aðhalds og hagkvæmni í rekstri –leitist við að tryggja að starfsemi þeirra sé skilvirk og að væntur árangur náist Skýrslur um framkvæmd fjárlaga eru yfirleitt birtar árlega, stundum oftar – nú ráðgert að birta 2-3 skýrslur á hverju ári Engin skýrsla var unnin um framkvæmd fjárlaga vegna ársins 2008 –Ástæður: Hrunið og sú óvissa sem það skapaði í fjármálum ráðneyta og stofnana og sú ákvörðun að hrinda af stað átaksverkefni snemma árs 2009 til að meta framkvæmd fjárlaga í breyttu umhverfi

33 Ríkisendurskoðun Framkvæmd fjárlaga II Helstu niðurstöður um framkvæmd fjárlaga vegna janúar til ágúst 2009 –Almennt hafði ekki verið farið að tilmælum Ríkisendurskoðunar frá júní um að tafarlaust yrði brugðist við stöðu stofnana með alvarlegan rekstrarvanda –Flestir forstöðumenn virðast sér vel meðvitandi um nauðsyn aðhalds í rekstri og hafa gripið til ýmissa ráðstafana til að halda honum innan áætlana –Skortir á skýrari fyrirmæli hjá ráðuneytunum um samdrátt í þjónustu

34 Ríkisendurskoðun Framkvæmd fjárlaga III Nokkrar ábendingar (vegna janúar til ágúst 2009) –Taka fyrir alvöru á vanda stofnana Ráðuneytin verða að taka á vanda stofnana sem eru í verulegum rekstrarerfiðleikum Ólíklegt að stofnanirnar fái viðbótarfé í fjáraukalögum –Ná sátt um flutning fjárheimilda milli ára Taka strax ákvörðun um flutning ónýttra fjárheimilda milli áranna 2008 og 2009 - liggur ekki enn fyrir – frumvarp um lokafjárlög væntanlegt núna í febrúar Mikil óvissa um heildarfjárheimildir margra stofnana árið 2009 Ráðuneytin hafa sent stofnunum sínum mismunandi skilaboð Endurskoða lög um fjárreiður ríkisins – 10 ára –Skýra hlutverk og tilgang tilsjónarmanna Hvergi sagt um hlutverk þeirra í lögum né reglugerðum

35 Ríkisendurskoðun Innkaup ríkisins á vörum og þjónustu I Markmið –Meginmarkmið úttektarinnar er að kanna hvort ráðuneyti og stofnanir ríkisins fylgi innkaupastefnu ríkisins og hagi innkaupum sínum á vörum og þjónustu á hagkvæman, skilvirkan og árangursríkan hátt –Úttektin er liður í samtímaeftirliti Ríkisendurskoðunar og því einkum horft til ársins 2009 Hefði væntanlega verið unnin þó ekkert hrun hefði orðið

36 Ríkisendurskoðun Innkaup ríkisins á vörum og þjónustu II Athugun á innkaupastefnu allra ráðuneyta og valinna stofnana m.a. með eftirfarandi í huga: –Að kanna hvort innkaupastefnu ríkisins sé beitt með virkum hætti og árangur hennar metinn reglulega Könnun á einstökum viðskiptum ráðuneyta og stofnana t.d. –Birgjar sem eiga veruleg viðskipti við aðeins einn aðila (stofnun eða ráðuneyti) –Viðskipti við sama aðila sem fara umfram 5 m.kr. á árinu 2009 Einnig er til skoðunar að kanna notkun rammasamninga og gera viðhorfskönnun meðal stofnana á þjónustu Ríkiskaupa

37 Ríkisendurskoðun Undirbúningur sameininga í ríkisrekstri I Markmið að kanna hvort ráðuneyti undirbúi sameiningu með fullnægjandi hætti Sameiningarferlið skiptist í fjögur stig: 1. Forkönnun 2. Undirbúningur að framkvæmd sameiningar 3. Framkvæmd sameiningar 4. Eftirfylgni (1-2 ár) og mat á árangri (2-5 ár) Úttektin afmörkuð við fyrstu tvö stig sameiningar Frekari eftirfylgni á síðari stigum sameiningar er þó möguleg ef ástæða þykir til Úttektirnar eru samtímaeftirlit þ.e. skoðað hvort tiltekin undirbúningsvinna hafi farið fram en ekki horft til fortíðar eða metið hvort sameining sé réttmæt

38 Ríkisendurskoðun Undirbúningur sameininga í ríkisrekstri II Tilefni stjórnsýsluúttektar af tvennum toga –Áform stjórnvalda um endurskipulagningu opinberrar þjónustu. Tilkynning forsætisráðuneytis í september 2009 – um ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ráðast í viðamiklar sameiningar á ráðuneytum og ríkisstofnunum á næstu árum –Fyrri úttektir Ríkisendurskoðunar sýna að undirbúningur og framkvæmd sameininga ríkisstofnana er yfirleitt verulega ábótavant. Brotalamir í öllu sameiningarferlinu Skortir á að gerð sé formleg samrunaáætlun, mótuð sé skýr framtíðarsýn og sett fjárhagsleg eða fagleg markmið Verkefnastjórn veik og upplýsingamiðlun milli fagráðuneytis og sameinaðrar stofnunar takmörkuð

39 Ríkisendurskoðun Undirbúningur sameininga í ríkisrekstri III Samþykktar og fyrirhugaðar sameiningar Alþingi hefur samþykkt breytingar á verkefnum ráðuneyta, samruna Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. og sameiningu skattumdæma Heilbrigðisráðuneytið vinnur að sameiningu heilbrigðisstofnana á Vesturlandi og Norðurlandi Á þessu ári er stefnt að sameiningu héraðsdómstóla, lögregluumdæma og tveggja ráðuneyta Unnið er að fjölmörgum sameiningaráformum í ráðuneytunum

40 Ríkisendurskoðun Önnur atriði tengd efnahagsástandinu I Um mitt ár 2009 tók innri endurskoðun Ríkisendurskoðunar að sér innri endurskoðun Seðlabanka Íslands en fjárhagsendurskoðun hans var úthýst að kröfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna skorts á sérþekkingu á bankaendurskoðun Ríkisendurskoðun er fjárhagsendurskoðandi Fjármálaeftirlitsins Ekki hefur verið gerð stjórnsýsluúttekt á Fjármálaeftirlitinu né Seðlabankanum vegna aðdraganda hrunsins því það myndi skarast á við störf Rannsóknarnefndar Alþingis

41 Ríkisendurskoðun Önnur atriði tengd efnahagsástandinu II Ríkisendurskoðun ber lögum samkvæmt að annast endurskoðun nýju ríkisbankanna þriggja sem tóku við innlendri starfsemi Glitnis, Kaupþings og Landsbanka –Endurskoðunarfélögum var falið að annast vinnuna í umboði Ríkisendurskoðunar, m.a. vegna sérþekkingar þeirra á bankaendurskoðun –Ríkisendurskoðun áritar engu að síður stofnefnahagsreikninga og fyrsta ársreikning nýju bankanna Fylgist með áframhaldandi vinnu við endurskoðun bankanna sem kaupandi þjónustunnar Íslandsbanki hélt aðalfund í lok janúar sl. – nýir eigendur - ekki lengur á könnu Ríkisendurskoðunar Aðalfundur Arion banka verður væntanlega núna í febrúar – sama framvinda og hjá Íslandsbanka Landsbankinn verður áfram í meiri hluta eigu ríkisins - endurskoðun hans verður því á könnu Ríkisendurskoðunar en endurskoðunarfélagi falið að annast vinnuna í umboði stofnunarinnar

42 Ríkisendurskoðun Önnur atriði tengd efnahagsástandinu III Ríkisendurskoðun sér ekki um fjárhagsendurskoðun gömlu bankanna en mál vegna þeirra sem falla undir verksvið stofunarinnar eru helst: –Eftirlit með greiðslum vegna þeirra úr ríkissjóði –Mat á ábyrgðum sem ríkissjóður ber, s.s. vegna Icesave Á tímum efnahagsþrenginga er almennt meiri hætta á fjármálamisferli. Ríkisendurskoðun hefur –lagt sérstaka áherslu á að þessu sé aukinn gaumur gefinn við endurskoðun á ríkisstofnunum –hvatt forstöðumenn ríkisstofnana til að kynna sér leiðbeiningar stofnunarinnar til að öðlast þekkingu á þeim þáttum sem valda hættu á fjármálamisferli og þeim aðferðum sem nota má til að fyrirbyggja hana

43 Ríkisendurskoðun


Download ppt "Ríkisendurskoðun Stjórnsýsluendurskoðun Kristín Kalmansdóttir, viðskiptafræðingur, CIA Stjórnsýslusvið Ríkisendurskoðunar Morgunverðarfundur FIE 10. febrúar."

Similar presentations


Ads by Google