Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir í Kársnesskóla Ingvar Sigurgeirsson – Kársnesskóli September 2006.

Similar presentations


Presentation on theme: "Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir í Kársnesskóla Ingvar Sigurgeirsson – Kársnesskóli September 2006."— Presentation transcript:

1 Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir í Kársnesskóla Ingvar Sigurgeirsson – Kársnesskóli September 2006

2 Hvaðan kemur einstaklingsmiðað nám? Stefnumörkun fræðsluyfirvalda í Reykjavík:... á næstu árum verði unnið að þróun kennsluhátta þannig að skipulag námsins verði einstaklingsmiðaðra en nú er og aukin áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti, s.s. með auknu vali, samkennslu árganga, aukunni hóp- og þemavinnu og nýtingu netsins... (Starfsáætlun fræðslumála í Reykjavík 2004) Sjá m.a. í bæklingi Gerðar G. Óskars- dóttur (2003): Skólastarf á nýrri öld.Skólastarf á nýrri öld

3 Gamalt vín á nýjum belg Hugmyndir um einstaklingsmiðun hafa lengi verið uppi og gengið undir ýmsum nöfnum: –Opinn skóli, opin skólastofa, sveigjanlegir kennsluhættir, virkir kennsluhættir, nemendamiðað nám, námsaðlögun, námsaðgreining. Fleiri skyld hugtök: Samkennsla, fjölgreindakennsla, fjölmenningarleg kennsla, skóli fyrir alla –Ensk heiti: T.d. individualized instruction, differentiation, open school, open classroom, responsive learning, personalized instruction...

4 Rök fyrir einstaklingsmiðuðu námi hér á landi eru gjarnan sótt í löggjöf og námskrá: Lög um grunnskóla og Aðalnámskrá grunnskóla mæla fyrir um að skólum sé skylt að leitast við að koma sem best til móts við þarfir hvers og eins Slík ákvæði hefur verið að finna í lögum og námskrám fá því er grunnskólalög voru fyrst sett árið 1974

5 Markmið grunnskólans 2. grein Hlutverk... er að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Starfshættir... skulu því mótast af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á kjörum fólks og umhverfi, á íslensku þjóðfélagi, sögu þess og sérkennum og á skyldum einstaklingsins við samfélagið. Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins (leturbr. mín). Grunnskólinn skal veita nemendum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni og temja sér vinnubrögð sem stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal því leggja grundvöll að sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra.

6 Aðalnámskrá grunnskóla 1999 Það er skylda hvers skóla að laga námið sem best að nemendum hverju sinni. Nemendur eiga rétt að viðfangsefnum sem henta námsgetu þeirra og hæfni. (Aðalnámskrá grunnskóla. 1999:21) Val á kennsluaðferðum og skipulag skólastarfs verður að miðast við þá skyldu grunnskóla að sjá hverjum nemanda fyrir bestu tækifærum til náms og þroska. Kennslan verður að taka mið af þörfum og reynslu einstakra nemenda og efla með nemendum námfýsi og vinnugleði. (Aðalnámskrá grunnskóla. 1999:32)

7 Einstaklingsmiðað nám merkir oftast að kennarar reyna, eftir því sem unnt er, að koma til móts við hvern nemanda með hliðsjón af... Getu, kunnáttu og aðstæðum hvers og eins Hæfileikum Áhuga Hvernig nemendum hentar best að læra (námstíl þeirra) Framtíðaráformum

8 Rök fyrir breyttum kennsluháttum Samfélagsbreytingar Hnattvæðing Ör tækniþróun Þróun miðla Nýjar (?) kröfur í atvinnulífi Nemendahópurinn verður stöðugt fjölbreyttari Kennslufræðileg rök

9 Hvaða markmið skipta mestu? Tjáning (ritfærni, munnleg tjáning) Samstarfshæfni Þekking – eða hæfni í þekkingarleit - upplýsingalæsi Gagnrýnin hugsun Sköpun Frumkvæði, áræðni Dugnaður Hversu þungt eiga þessi markmið að vega í skólastarfi?

10 Einstaklingsmiðun – dæmi um áherslur Nemendur taka aukna ábyrgð á eigin námi (námsáætlanir, námsamningar, sjálfstæð viðfangsefni, þátttaka í mati) Sveigjanlegir námshópar, aldursblöndun, samvinnunám Leitast er við að koma til móts við áhuga nemenda (val, áhugahópar, frjáls verkefni) Áhersla á að nemendur séu virkir í náminu Tjáning, samræða Unnið með fjölbreytta miðla Skapandi viðfangsefni, listiðkun Hugsun, skilningur, lausnaleit Hvetjandi, hlýlegt námsumhverfi Markvisst samstarf við foreldra Öflug tengsl við umhverfið

11 Kársnesskóli Móðurskóli söguaðferðarinnar Forystuskóli í tónlistaruppeldi Samvinnuverkefni kennara um fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám Kennarar skipuðu sér í teymi og unnu með nemendum fjölbreytt verkefni af ýmsu tagi

12 Áhersla var m.a. lögð á Koma til móts við ólíka getu nemenda Heildstæð verkefni sem náðu til allra nemenda í hverjum árgangi Virkja áhuga nemenda – hafa enn meira gaman í skólanum Hvers konar sköpun og fjölbreytt verkefni: Söngur, leiklist, framsögn, leikir, námspil, dans, tónsmíðar, ritun, ljóðagerð, málun, mótun, leir, skartgripagerð, sýningar, samræður, myndasýningar, hópverkefni, upplýsingaöflun, heimildaleit Að nota tölvur við heimildaöflun og úrvinnslu (m.a. heimasíðugerð og nota ýmis forrit) Val um viðfangsefni Að nemendur tækju þátt í mati á verkefnunum Kynningar fyrir foreldra

13 Verkefnin í Kársnesskóla Bekkjarbland: Getuskipt hópvinna í 1. bekk: Árganginum var blandað saman eina kennslustund í viku og þeim fengin fjölbreytt verkefni þar sem leitast var við að koma sem best til móts við þarfir hvers og eins. Einstaklingsmiðað nám í stærðfræði í 2. bekk: Kennarar skiptu árganginum í þrjá hópa eftir getu eina kennslustund á viku. Verkefni með nemendum í 3. bekk: Saga af Suðurnesjum: Samþætt söguaðferðarverkefni. Gaman í stærðfræði. Nýbreytni í kennsluháttum í stærðfræði í 4. bekk: Einstaklingsmiðað nám þar sem nemendur settu sér markmið og lögðu mat á árangur. Verkefni í 5. bekk: Krakkar og dýr í Afríku: Samþætt verkefni með áherslu á skapandi starf. Hringekja í 6. bekk: Fjölbreytt verkefni í íslensku og stærðfræði. Vinnusvæði í 7. bekk: Unnið með fjölbreytt verkefni í ýmsum námsgreinum sex kennslustundir á viku.

14 Verkefni í 8. og 9. bekk: Smásögur eftir íslenska höfunda: Unnið með fjölbreyttum hætti með sex smásögur. Samþætting náttúrufræði- og tölvukennslu í 8. bekk: Nemendur skiluðu verkefnum sínum með því að búa til heimasíður. Stærðfræðiverkefni í 8. bekk. Um tvívídd og þrívídd með söguaðferðarívafi. Hönnunarverkefni: Nemendur lærðu á hönnunarforrit og hönnuðu og innréttuðu húsbyggingu. Náttúrufræði í 10. bekk: Nemendur unnu líffræðiverkefni í hópum, fluttu fyrirlestra og unnu með niðurstöður í tölvum (umbrotsforrit, heimasíðugerð). Útrás í smíðum: Samþætt verkefni í smíðum og lestri. Könnun á þátttöku í félagsstarfi: Könnun meðal foreldra og starfsmanna skólans. Líf mitt og heilsa: Verkefni í heimilisfræði Skipulagt skólaumhverfis, myndræn stundaskrá og Sólin (leikvallarverkefni)

15 Heimasíða verkefnisins Þróunarverkefni í Kársnesskóla 2004–2006 Fjölbreyttir kennsluhættir og einstaklingsmiðað nám http://starfsfolk.khi.is/ingvar/Skolathroun/Karsnesskoli/index.htm

16 Auðvelt er að finna heimildir um einstaklingsmiðað nám á Netinu: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/ http://starfsfolk.khi.is/ingvar/ Kennsluaðferðavefurinn Skref í átt til einstaklingsmiðaðs náms


Download ppt "Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir í Kársnesskóla Ingvar Sigurgeirsson – Kársnesskóli September 2006."

Similar presentations


Ads by Google