Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Að verða læs og skrifandi á nýjan miðil Þuríður Jóhannsdótttir Fyrir stúdenta KHÍ framhaldsdeild 26. janúar 2001.

Similar presentations


Presentation on theme: "Að verða læs og skrifandi á nýjan miðil Þuríður Jóhannsdótttir Fyrir stúdenta KHÍ framhaldsdeild 26. janúar 2001."— Presentation transcript:

1 Að verða læs og skrifandi á nýjan miðil Þuríður Jóhannsdótttir Fyrir stúdenta KHÍ framhaldsdeild 26. janúar 2001

2 Marchall Mcluhan: The Medium is the Massage 1967 “The alphabet and print technology fostered and encouraged a fragmenting process, a process of specialism and of detachment. Electric technology fosters and encourages unification and involvement. It is impossible to understand social and cultural changes without a knowledge of the workings of media”

3 Spurt er:  Hvernig hefur tækniþróun haft áhrif á menntun hingað til  Kemur tölvutækni og Internet til með að hafa meiri áhrif á menntun en aðrar tækninýjungar 20. aldarinnar?  Hvernig breytir Netið möguleikum í menntun?  Hvernig endurspeglast póstmódernískar hugmyndir í námskenningum?  Hvaða áhrif hefur það á nám og kennslu þegar nemendur og kennarar tka upplýsinga- og samskiptatækni í þjónustu sína?

4 Veiðum menntun í Netið Um námskenningar og nýja miðla og áhrif þeirra á nám og kennslu  Miðlun þekkingar og áhrif tækni á menntun  Stefnur og straumar í námskenningum og tengsl þeirra við nýtingu upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu  Nám sem félagslegt fyrirbæri; tölvustutt samvinnunám, gildi samræðu, tungumálið og önnur verkfæri í námi  Áhrif upplýsinga- og samskiptatækni á nám og kennslu  Að verða læs og skrifandi á nýjan miðil – verkefni nemenda og kennara á nýrri öld

5 Frá munnlegri miðlun til handrita  Munnleg miðlun þekkingar – Kennarinn fræðaþulur sem nemendur hlusta á – Samræðan mikilvæg – sbr. Sókrates – Sókrates hafði vantrú á ritmálinu  Ritmál - handrit geyma fróðleik – Skólasetur miðalda byggjast á handritamenningu – Fáir hafa aðgang að þekkingunni – Handritin eru dýrmæt – slitna við notkun – Lestrarkunnátta verður forsenda náms – Ath stöðu kvenna og karla

6 Skólaform nútímans byggir á útbreiðslu bóka  Prenttækni og pappír sem auðveldar útbreiðslu ritmáls gerir kennslubókina að kennslutæki  Fleiri fá aðgang að menntunarauðlindum sem eru varðveittar í texta á bók  Til þess þurfa fleiri að verða læsir  Strákar helst líka að læra að skrifa og seinna stelpur líka

7 Myndir og hljóð  Ljósmyndatækni og kvikmyndatækni gera kleift að varðveita menningararf öðru vísi en með texta  Útvarp miðlar hljóði - upptökutæki gera fólki kleift að taka upp og hafa aðgang að hljóði eftir þörfum  Sjónvarp miðlar hljóði og mynd – myndbandstækin gera kvikmyndaefni aðgengilegt almenningi eftir þörfum

8 Tölvan og Internetið  Tölvan annars eðlis – ekki fyrst og fremst miðlill eins og bók, útvarp og sjónvarp  Geymir upplýsingar í texta, mynd og hljóði  Tæki til að setja fram þekkingu í texta, mynd og hljóði  Getur unnið úr efni, virkar sem framlenging á getu mannsins – fljótari og nákvæmari  Internetið er flutninga- og samskiptatæki sem bætist við tölvuna.  Staður fyrir birtingu efnis og öflugt alþjóðlegt samskiptatæki

9 Tækniþróun í kennslu  Comenius talaði um mikilvægi þess að höfða til allra skynsviða í kennslu þegar á 17. öld  Tilraunir með nýsigögn – en kennslubókin í aðalhlutverki alla þessa öld  Ingvar Sigurgeirsson: doktorsritgerð um notkun námsefnis í skólum, rannsókn hófst 1987 – Flestir kennarar reiða sig á skólabækur: “Efni þeirra er undirstaða kennslunnar sem jafnframt stýrir því hvaða viðfangsefni eru tekin fyrir og í hvaða röð. [...] Allar algengustu kennsluaðferðirnar byggðu á því að farið var yfir skólabækurnar.” (I.S. 1994, 118)

10 Mynd- og hljóðmiðlar í kennslu  Fræðslumyndir gott dæmi um uppbót  Útvarp í fjarkennslu – framburðarkennsla  Skólasjónvarp reynt – vídeó breytir möguleikunum á að nýta sjónvarpsefni mikið  Kennslugögn nú: bók, myndband, kennsluforrit, hljóðsnælda, vefsíður

11 Staðsetning tölva í skólanum  Tölvuver: það þarf að kenna nemendum á tölvur svo að þeir geti notað þær – sambærilegt við læsi á texta svo bókin nýtist  Tölva í kennslustofu endurspeglar áherslu á nýtingu tölvu í námi og samþættingu tölvutækni og námsgreina  Tölva á bókasafninu merkir að tölvan er viðurkennt tæki til upplýsingaöflunar

12 Af hverju er líklegt að tölvan breyti meiru ?  Tæki sem nemandi getur nýtt sér til náms – Til upplýsingaöfluar – Til úrvinnslu úr upplýsingum – Til framsetningar á því sem hann hefur tileinkað sér  Fyrri tæki notaði kennarinn sem hjálpartæki við miðlun þekkingar – Ef það verður áfram svo er þá líklegt að tölvan og Netið breyti einhverju ? – Er það forsenda breytinga að áherslan flytist frá kennslu á nám ?

13 Að skilja Netið sem miðil  ný grunngerð (infrastructure) í miðlun þekkingar  bylting sambærileg prenttækni (pappír )  aðgangur að þekkingu  tæki til samskipta  staður fyrir útgáfu/birtingu efnis  alþjóðlegt eðli miðilsins mikilvægt

14 Netið gefur kost á að hafa áhrif á lýðræði  fleira fólk á þess kost að fá aðgang að menntunarauðlindum  fleiri eiga þess kost að taka þátt í uppbyggingu menningararfsins  að geta „lesið og skrifað“ á Netinu er þó forsenda þátttöku og áhrifa  Sumir segja að Netið ýti undir anarkisma og grafi undan valdi ríkisins. Er það gott eða vont  Grefur Netið þá kannski undan valdi kennarans ?

15 Áhrif Netsins á menntun og skóla  nýtt innra skipulag skóla  námskrá sem byggir á nýrri hugmyndafræði  menntun kennara þarf að breytast  mat á námsárangri þarf að breytast  tengsl háskóla og grunnmenntunar verða nánari Sjá McClintock, http://www.ilt.columbia.edu/mcclintock/ak ademie3000/index.html Sjá McClintock, http://www.ilt.columbia.edu/mcclintock/ak ademie3000/index.html

16 Sigurjón Mýrdal og Hörður Bergmann: hugmyndir um nám  Curriculum- haupabraut  Að ganga menntaveginn  Að afla sér menntunar  Netið er veiðarfæri  Hörður Bergmann heldur því fram að með upplýsingatækni skapist forsendur til að losa um tengsl menntunar og skóla

17 Skólinn þjálfi annars konar færni  Færni í að skanna – vera fljót að öðlast yfirsýn yfir þær upplýsingar sem tiltækar eru. Mjög góð lestrarfærni er þarna forsenda árangurs.  Færni í að tileinka sér mikið magn upplýsinga hratt og skipulega, að kunna að greina hismið frá kjarnanum og átta sig á hvað gagnast hverju sinni. Þetta krefst skarpar hugsunar.  Færni í samskiptum sem felst í að geta komið frá sér afrakstrinum af því sem fékkst með því að skanna og tileinka sér þannig að aðrir skilji. Til þess þarf nákvæmni og skýra hugsun og mjög góða ritfærni. (Byggt á hugmyndum Donlevy og Donlevy (1995) samkvæmt Collis 1996:588)

18 Stuðla að árangursríkri notkun Netsins  Skapa aðgang að ríkulegum upplýsingum.  Hvetja til merkingarbærs samspils nemenda og efnis á Netinu.  Skapa tengls á milli fólks sem á síðan að örva, styðja og veita hvert öðru svörun. (Greeno og fl. 1998:17, vitnað eftir Wilson, 2000:5)

19 Vel heppnuð samvinna ?  virk þátttaka  persónuleg ábyrgð  að þörfin hvert fyrir annað sé raunveruleg  að deila með öðrum  að láta sig varða - námið og aðra  ávinningur t.d. af verkaskiptingu, skoðanaskiptum, jafningjamati...

20 Hlutverk kennara mikilvægt  gefandi samskipti  skjót svörun  leiðsögn sem tekur mið af einstaklingsþörfum og aðstæðum  hvatning og umræða um verkefni nemenda fremur en einkunnir og rétt svör  markmið kennara að auðvelda nám

21 Viðhorf til tækni gegnum tíðina 1.Þróun tækninnar óhjákvæmileg - leiðir til velmegunar 2.Tæknin óumflýjanleg en siðferðilega spillt og leiðir til eyðileggingar mennskunnar (George Orwell, Aldous Huxley) 3.Menn stjórna tækninni – tæknin verkfæri sem nota má bæði í jákvæðum og neikvæðum tilgangi – hreyfiafl breytinga er mannleg framfaralöngun – tækniframfarir afleiðing af langri þróun fremur en stökk

22 Hvernig viljum við nota tæknina?  Til að gera núverandi kerfi skilvirkara?  Efasemdir Betty Collis  Til að leiða menntakerfið út úr kreppunni sem það er í ?  Varað er við tæknihyggju sem heldur að skólar muni sjálfkrafa breytast með tilkomu tölvu- og upplýsingatækni  Langtímaáhrif oftast ófyrirséð og önnur er búist var við  Skilja tæknina og möguleikana  Skilja vanda skólakerfisins

23 Eftirnútíminn (póstmódernismi) og ný hugsun  Hvorki með né á móti tækninýjungum  Hluti af fjölbreytilegu samfélagi  Tími hinna stóru kerfa og stórasannleika er liðinn  Gjaldþrot nútíma framfarahugsunar  Tími hinnar módernísku vissu og sannleika vísindanna liðinn  Áhrif kaoskenninganna

24 Internetið og kaoskenningar  kaoskenningar komnar frá raunvísindunum  eiga ekki síður við um félagsleg kerfi eins og skóla  grafa undan viðteknum aðferðum í skólaþróun sem líta á skólakerfið eins og verksmiðju þar sem stýra má ferlum  grefur undan markmiðssetningarstefnu sem byggir á opinberum markmiðum í námskrá  markmið sem einstaklingur setur sér merkingarbærari

25 Internetið er póstmódernískur miðill  Prentað mál hefur einkenni stöðugleika  Línuleg framsetning textans er rökleg og leiðir til niðurstöðu  Texti á Netinu er óstöðugur  Sannleikurinn fljótur að breytast  Texti hefur hvorki upphaf né endi  Lesandinn verður sjálfur að ákveða hvenær hann hefur komist að niðurstöðu og getur hætt

26 Tölvan og Netið sem verkfæri  verkfæri til: – samskipta – þekkingaröflunar – útgáfu/birtingar efnis  hanna námsumhverfi sem nýtir kosti tölvunnar og Netsins  kaos á Internetinu - nýta sér sköpunarkraftinn sem felst í óreiðunni  gefa þó nemendum akkeri eða öryggisnet

27 Þekkingarfræðin og kennslufræðin “ Eftir hrun stórsagnanna höfum við ekki fyrirframgefin markmið sem segja okkur fyrir verkum, heldur verðum við sjálf að skapa inntak, merkingu og markmið lífs okkar. “ (Sigríður Þorgeirsdóttir. TMM 1998) – Afstaða til þekkingar hefur breyst – Þekkingin er ekki viss staðreynd heldur afstæð og skeikul – Hversu langan tíma tekur að breyta viðhorfum fólks til þess hvað skóli og menntun á að vera ? – Hvenær eru nemendur tilbúnir til að taka ábyrgð á eigin námi’ – Hvenær eru kennarar tilbúnir til að leyfa þeim það?


Download ppt "Að verða læs og skrifandi á nýjan miðil Þuríður Jóhannsdótttir Fyrir stúdenta KHÍ framhaldsdeild 26. janúar 2001."

Similar presentations


Ads by Google