Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Hvað þarf til...?. Svið: Verksvið, starfssvið, fræðasvið.

Similar presentations


Presentation on theme: "Hvað þarf til...?. Svið: Verksvið, starfssvið, fræðasvið."— Presentation transcript:

1 Hvað þarf til...?

2

3

4 Svið: Verksvið, starfssvið, fræðasvið

5 Hverjir eru hæfileikar mannsins?

6 Heilinn

7 Hvað er greind? Er greind meðfædd og óumbreytanleg eða er hún breytanleg?

8 Hefðbundin skilgreining á greind Greind er ein eining Fólk fæðist með ákveðna greind Það er erfitt að breyta greind – hún er í genunum ef svo má segja Sálfræðingar segja þér hversu greind(ur) þú ert með því að leggja fyrir þig greindarpróf.

9 Greindarvísitala greindaraldur deilt með lífaldri sinnum 100 GV = LA X 100 GA

10 Alfred Binet 1857- 1911 Nokkrir nútíma heimspekingar...fullyrða að að greind einstaklings sé ákveðin stærð (magn) sem ekki sé hægt að auka. Við verðum að mótmæla þessu og bregðast við þessari hrottalegu bölsýni....Með æfingu, þjálfun og framar öllu aðferðum getum við aukið athygli okkar, minni, dómgreind og í orðsins fyllstu merkingu orðið greindari en við vorum áður. (Binet, 1909/1973, bls. 105 – 106)

11 Terman (1877-1956 ) það er oft gefið í skyn að einstaklingur sem á erfitt með að höndla sértæka hugsun en er leikinn í að beita verkfærum eða góður í hafnarbolta sé ekki endilega minna greindur en sá sem leysir stærðfræðijöfnur, býr yfir miklum orðaforða eða yrkir ljóð. Ályktunin er að þessir tveir einstaklingar séu ólíkir að því leyti að þeir búa yfir ólíkum gerðum greindar, en hvorug er æðri eða betri en hin. (Terman. 1921, bls. 128)

12 Fjölgreindakenningin Howard Gardner Frames of Mind (1983) Multiple intelligences (1993) Intelligence Reframed (1999) Multiple Intelligences: New Horizons (2006)

13 Bækur eftir Gardner The Quest for Mind (1973) The Arts and Human Development (1973) The Shattered Mind (1975) Developmental Psychology (1978) Artful Scribbles (1980) Art, Mind and Brain (1982) Frames of Mind (1983) The Mind´s New Science (1985) To Open Minds (1989) The Unschooled Mind (1991) Creating Minds (1993) Leading Minds (1995) Intelligence: Multiple Perspectives (1996) Extraordinary Minds (1997) The Disciplined Mind (1999) Intelligence Reframed (1999) Good work (2001) Making Good (2004) Changing Minds (2006)

14 Greindir Maðurinn býr yfir líf- sálfræðilegum hæfileikum til að leysa mál eða skapa afurðir sem eru metnar innan eins eða fleiri menningarsamfélags Greind er ekki ein eining heldur margar. Maðurinn býr yfir mörgum greindum. Fjölgreindakenning – ekki fjölgreindarkenning

15 Mælikvarði um hvað kallast greind Staðsetning í heilanum og einangrun við heilaskaða Vitnisburður ofvita (idiots savants), afburðagreinds fólks og annarra álíkra frávikshópa Þroskaferli greindar og skilgreinanlegur hámarksárangur

16 Mælikvarði um hvað kallast greind Þróunarsaga og sögulegt samhengi Sálfræðilegar mælingar Stuðningur frá tilraunasálarfræði Greining á kjarnastarfsemi Tákn og táknkerfi

17 Lykilatriði Hver einstaklingur býr yfir öllum greindunum Flestir geta þróað hverja greind á viðhlítandi getustig Greindirnar starfa saman á flókinn hátt Það er hægt að vera greindur á mismunandi hátt á hverju sviði

18 Skoðun Gardners FG-kenningin skiptir máli fyrir menntun og skóla en hún er hvorki grundvallarforsenda né markmið í sjálfu sér. Kenning um að maðurinn búi yfir mörgum greindum og að greindasnið einstaklinga séu mismunandi getur haft margar og andstæðar kennsluaðferðir í för með sér.

19 Skoðun Gardners Kenning mín styrkir þá hugmynd að einstaklingar búi yfir fjölbreytilegum hæfileikum sem komi samfélaginu til góða; að ein mæling (próf) sé óhentug aðferð til að ákvarða hvaða nemendur útskrifast, fái inngöngu í framhalds- og háskóla o.sfrv.; Að mikilvægt námsefni megi kynna á margvíslegan hátt þannig að margar greindir séu örvaðar og námið styrkt.

20 Inngönguleiðir viðfangsefni

21 Inngönguleiðir Frásagnir. Inngangurinn felst í því að nota sögu eða sögur sem lýsa viðfangsefninu á líflegan og skapandi hátt. Rök- og mælanleiki. Þessi inngangur beinist að tölulegum hliðum viðfangsefnisins og/eða afleiðslu, t.d. „ef – þá“ rökhendu.

22 Fagurfræði. Inngangurinn leiðir að listrænni túlkun eða hliðum á viðfangsefninu. Tilraunir, áþreifanleg verkefni. Nú fá nemendur tækifæri til að handleika efnislega hluti og gera ýmsar tilraunir.

23 Inngönguleiðir Samskipti. Að vinna og læra með öðrum. Tilvistar- grundvallaratriði. Inngangurinn leiðir að grundvallar- og heimspekilegum spurningum um eðli viðfangsefnisins.

24 Inngönguleiðir Gardner telur að þessar inngönguleiðir styrki greindirnar og bendir á að þar sem hver nemandi hefur sinn greindaprófíl leiti hver nemandi sinnar inngönguleiðar. Gardner, 1991. Gardner, 1999, Kornhaber o.fl. 2004).

25 Nemandi Námskrá: Læsi/ námsgreinar Hlutverk fullorðinna Færni og starfsgreinar Námsaðstæður: Skóli eða annað

26 Námskrá grunnskóla Íslenska Upplýsinga- og tæknimennt Náttúrufræði Samfélagsgreinar Heimilisfræði Listgreinar Íþróttir – líkams- og heilsurækt Stærðfræði Erlend tungumál Lífsleikni Kristin Fræði, siðfræði, trúarbragðafræði

27 Fjölgreindir Málgreind Tónlistargreind Rök- og stærðfræðigreind Rýmisgreind Líkams- og hreyfigreind Samskiptagreind Sjálfsþekkingargreind Umhverfisgreind

28 Málgreind Rök- og stærðfræðigreind Rýmisgreind HreyfigreindTónlistargreind Samskiptagreind Sjálfsþekkingargreind Umhverfisgreind Heimild: ThomasArmstrong. 1944. Multiple Intelligences in the Classroom. Bls 39.

29 Sebrahestur er svartur og hvítur. Hann er grasæta og lifir í Afríku.

30

31 Howard Gardner 1999 Menntun felst í því að efla skilning á Hinum eðlisfræðilega heimi Hinum líffræðilega heimi Heimi mannsins Heimi afurða mannsins Heimi sjálfsins

32 Þekking og þekkingarleit Heimur eðlisfræðinnar Heimur mannsins Heimur líffræðinnar Heimur afurða mannsins Heimur sjálfsins

33 Efnisheimurinn Eðlisfræði Efnafræði Jarðfræði Eðlisræn landsfræði Stjörnufræði

34 Heimur líffræðinnar Líffræði Grasafræði Dýrafræði Dýralandafræði Vistfræði

35 Heimur mannsins Mannfræði Félagsfræði Saga Bókmenntir Tungumál Málvísi Trúarbrögð

36 Heimur afurða mannsins Listir Fornleifafræði Arkitektúr Verkfræði Hagfræði

37 Heimur sjálfsins Sálarfræði Félagssálfræði Heimspeki Siðfræði Bókmenntir Lífsleikni

38 Þekking og þekkingarleit Hinn eðlisræni heimur Hinn líffræðilegi heimur Heimur mannsins Heimur afurða mannsins Heimur sjálfsins

39 SUMIT Project SUMIT (Schools Using Multiple Intelligence Theory) is supported by the Geraldine R. Dodge Foundation and the Schwab Foundation for Learning. http://pzweb.harvard.edu/SUMIT/

40 Project Sumit Rannsóknarhópur um skóla sem nota fjölgreindakenninguna Rannsóknin stóð í þrjú ár og náði til 41 skóla Tillögur og ábendingar - áttaviti

41 Samræmd próf Agamál Foreldrasamstarf Nemendur með sérþarfir

42 Samræmd próf

43 Agamál

44 Foreldrasamstarf

45 Nemendur með námsörðugleika

46 Málgreind Lykilfærni málgreindar –að skynja eða mynda talað eða ritað mál –skýr tjáskipti og skilningur –næmi fyrir hárfínni merkingu í máli Undirfærni: að beita máli –á tjáningarríkan hátt, segja frá, segja sögur –á lýsandi hátt, í kennslu, í skýrslugerð –á skáldlegan hátt, í orðaleikjum

47 Málgreind Dagleg notkun málgreindar lesa dagblöð skrifa bréf sækja fundi Málgreind er EKKI –að vera tvítyngdur (getur þó falið í sér hæfni til að læra erlent mál). –að vera skrafhreifinn, hafa gaman af að tala.

48 Rök- og stærðfræðigreind Lykilfærni rök- og stærðfræðigreindar –að nota og meta óhlutstæð tengsl –að nota tölur og rökhugsun Undirfærni: –talnarök (útreikningur, áætlun, magnmæling) –rökleg lausnaleit (beina athygli að heildarformgerð og tengslum, draga röklegar ályktanir)

49 Rök- og stærðfræðigreind Dagleg notkun rök- og stærðfræðigreindar –lesa áætlun strætisvagna –leysa ráðgátur –sjá um heimilisbókhaldið Rök- og stærðfræðigreind er EKKI –eingöngu bundin tölum.

50 Tónlistargreind Lykilfærni í tónlistargreind –að skynja og skilja mynstur hljóða –að skapa og tjá merkingu hljóða Undirfærni –að skynja tónlist –að framleiða tónlist –að semja tónlist /nótnaskrift

51 Tónlistargreind Dagleg notkun tónlistargreindar –hlusta á tónlist –syngja í kór –leika á hljóðfæri –greina á milli mismunandi hljóða í bílnum Tónlistargreind er EKKI –örvuð með því að leika bakgrunnstónlist.

52 Rýmisgreind Lykilfærni rýmisgreindar –skynja og umbreyta sjónrænum eða þrívíðum upplýsingum –endurskapa myndir úr minninu Undirfærni –skoða og skilja orsakatengsl eða hagnýt tengsl –nota rúmfræðilegar upplýsingar til stýra í rýminu –næm skynjun eða athugun á hinu sjónræna og listum –búa til sjónræn gögn eða listaverk

53 Rýmisgreind Dagleg notkun rýmisgreindar –rata í ókunnri borg –vísa til vegar/ fylgja leiðbeiningum –tefla Rýmisgreind er EKKI –bundin við hið sjónræna (blint fólk getur búið yfir sterkri rýmisgreind).

54 Líkams- og hreyfigreind Lykilfærni líkams- og hreyfigreindar –líkamleg færni til að skapa afurðir eða leysa mál –færni í að stjórna líkamanum eða einstökum líkamshlutum. Undirfærni –hreyfingar í íþróttum –skapandi hreyfingar, þ.á m. við tónlist –líkamsstjórn og góðar fínhreyfingar –skipuleggja og semja hreyfingar (semja listdans)

55 Líkams- og hreyfigreind Dagleg notkun líkams- og hreyfigreindar –Boltaleikir –standa og halda jafnvæi í strætisvagni á ferð –Hjóla –lagfæra eitthvað smágert eða fíngert. Líkams- og hreyfigreind er EKKI –alltaf það sem órólegt barn eða barn með mikla hreyfiþörf sýnir –óskipuleg orkulosun í líkamsrækt.

56 Samskiptagreind Lykilfærni samskiptagreindar –næmi fyrir tilfinningum, viðhorfum, skapi og fyrirætlan annarra –að nota þann skilning til að eiga góð og árangursrík samskipti við aðra –að færa sér samskiptahæfni í nyt til að ná eigin markmiðum Undirfærni –gegna mismunandi félagslegum hlutverkum (s.s. leiðtogi, vinur, foreldri) –ígrunda félagslegar aðstæður á gagnrýninn hátt –taka virkan þátt (s.s. í stjórnmálum, sem ráðgjafi, kennari)

57 Samskiptagreind Dagleg notkun samskiptagreindar –eiga í viðskiptum –biðja um eða gefa leiðbeiningar –samskipti við samstarfsfólk –vera foreldri Samskiptagreind er EKKI –að vilja helst vinna með öðrum –að vera vel liðinn –að vera kurteis og fágaður í framkomu –að vera siðferðilegur eða manneskjulegur.

58 Sjálfsþekkingargreind Lykilfærni sjálfsþekkingargreindar –gerir einstaklingum fært að þekkja sjálfa sig –að nota sjálfsþekkingu þegar taka þarf ákvarðanir –að þekkja og greina eigin tilfinningar, skap og fyrirætlanir og sjá fyrir eigin viðbrögð við því sem getur gerst í framtíðinni. Undirfærni –sjálfsskilningur, hæfni til að íhuga sjálfan sig á greinandi hátt –sýna þann skilning á fjölbreyttan hátt, s.s. í ljóðum, málun, söng o.s.frv. –nota sjálfsskilning sinn vel, í eigin þágu og samfélagsins

59 Sjálfsþekkingargreind Dagleg notkun sjálfsþekkingargreindar –mat á starfi eða starfsferli –trúariðkun –sálræn meðferð Sjálfsþekkingargreind er EKKI – að kjósa að vinna einn eða í einangrun.

60 Umhverfisgreind Lykilfærni umhverfisgreindar –að skilja náttúruna og starfa í henni á árangursríkan hátt –að greina á milli, flokka og nota sérkenni umhverfisins –að flokka og aðgreina manngerða hluti Undirfærni –að athuga af gaumgæfni –þekkja mynstur og flokka fyrirbæri –nýta þekkingu á náttúrunni til að leysa mál

61 Umhverfisgreind Dagleg notkun á umhverfisgreind –Matreiðsla –Garðyrkja –að flokka og raða hljómdiskum eða öðru safni Umhverfisgreind er EKKI –bundin við hinn ytri heim. –(Viens og Kallenbach, 2004)


Download ppt "Hvað þarf til...?. Svið: Verksvið, starfssvið, fræðasvið."

Similar presentations


Ads by Google